Nýjar brýr fyrir gangandi og hjólandi

Brú yfir Dimmu

„Þessi glæsilega hjóla- og göngubrú snertir kjarnann í því hvernig við lifum og hreyfum okkur í borginni – og hvernig við viljum að hún þróist á næstu árum,“ sagði Margrét Rós Sigurjónsdóttir varaborgarfulltrúi og fulltrúi í umhverfis- og skipulagsráði þegar hún opnaði, fyrir hönd Reykjavíkur, brú yfir Dimmu í Víðidal sem er austasti hluti Elliðaárdals.

Brúin kemur í stað veitustokks

Það voru Bryndís Friðriksdóttir, fulltrúi Vegagerðarinnar, Katrín Halldórsdóttir fulltrúi Betri samgangna, og Reykjavíkurborgar sem opnuðu brúna ásamt glöðum nemendum í fjórða bekk Árbæjarskóla. Brúin kemur í stað veitustokks sem nýttur var sem göngubrú.

Margrét Rós nefndi einnig nýja brú yfir Grænugróf sem tekin var í notkun um svipað leyti í sumar. Saman mynda þessar tvær brýr nýja möguleika í samgöngum Elliðaárdals. Lokafrágangur beggja stendur yfir. Heitið Dimma nær yfir hluta Elliðaánna, frá Elliðavatni að bugðunni við Grænugróf.

Hjólaborgin Reykjavík til 2030

Margrét Rós nefndi að á verkefnalista meirihlutans í Reykjavík til næstu fjögurra ára sé markmiðið að klára uppbyggingu hjólastíga í samræmi við Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar. Enda hefur það að ganga og hjóla góð áhrif á heilsuna og líka gleðina.

Nýjar brýr í Elliðaárdalnum eiga að styrkja tengingar austari hluta borgarinnar við miðjuna og bæta samspilið við Kópavog og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.

Margrét Rós segir það spennandi verkefni að klára nýja hjólreiðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. Sú áætlun byggir á reynslu síðustu ára, en í brennidepil er það sem skiptir mestu máli núna.

Í nýju hjólreiðaáætluninni verða einnig lagðar til aðgerðir til að styðja við hjólreiðar grunnskólabarna.

Við viljum að fólk hafi raunverulegt frelsi til að velja og færa hjólreiðar úr því að vera aukaval yfir í að vera raunhæfur samgöngumáti óháð aldri, árstíð, getu eða búsetu.

Margrét Rós Sigurjónsdóttir varaborgarfulltrúi

Góð frétt frá hjólateljurum

Tölur úr hjólateljurum Reykjavíkurborgar í ágúst sýna aukningu um 13% á milli ára. Þá var besti hjóladagur ársins á afmælisdegi borgarinnar 18. ágúst þar sem 18.249 hjóluðu framhjá teljurunum.