David Leitch og Kelly McCormick hljóta heiðursverðlaun RIFF
Leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick hlutu í gær, laugardaginn 26. september, heiðursverðlaun Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fyrir framúrskarandi listfengi.
Kraftmikil sjónræn frásögn, húmor og úthugsuð áhættuatriði
Verðlaunin voru afhent við móttöku og Reykjavíkurborgar og RIFF í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Rúnar Freyr Gíslason, formaður menningarráðs Reykjavíkur, afhenti verðlaunin.
Leitch og McCormick eru meðal heiðursgesta RIFF í ár og hafa sett sterkan svip á hasarkvikmyndir samtímans, þar sem kraftmikil sjónræn frásögn, húmor og úthugsuð áhættuatriði fara saman.
Leitch á að baki langan feril sem áhættuleikari og stjórnandi áhættuatriða áður en hann sneri sér að leikstjórn. Meðal þekktustu mynda hans eru Atomic Blonde, Deadpool 2, Bullet Train og The Fall Guy. Í verkum hans nýtur nákvæm þekking á hreyfingu, hrynjandi og líkamlegri frammistöðu sín í hasaratriðum sem þjóna jafnt persónusköpun og framvindu sögunnar.
McCormick hefur sem framleiðandi staðið að baki myndum á borð við Nobody, Violent Night, Bullet Train og The Fall Guy. Þau hjónin hafa með samstarfi sínu skapað vettvang fyrir hasarmyndir þar sem frumlegar hugmyndir og metnaðarfull útfærsla haldast í hendur.
Hjartað í hasarnum - meistaraspjall
Í tengslum við heimsókn þeirra Leitch og McCormick eru kvikmyndirnar Atomic Blonde og Bullet Train á dagskrá RIFF. Í Meistaraspjalli sem fram fór síðastliðinn laugardag ræddu þau David Leitch, Kelly McCormick og Elísabet Ronaldsdóttir um hvernig hasaratriði í samtímakvikmynd væri í raun byggt upp? Í meistaraspjallinu mættust sjónarhorn leikstjórans, framleiðandans og klipparans og var ferlið krufið frá fyrstu hugmynd að endanlegri útgáfu. Með sýningu valinna brota – þar á meðal, með fyrirvara, atriði úr nýjustu mynd þeirra – How to Rob a Bank
Gestir RIFF fengu þannig einstakt tækifæri til að kynnast fólkinu á bak við nokkrar af þekktustu hasarmyndum síðari ára og fá innsýn í þá fjölþættu sköpun sem liggur að baki.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík stendur til 4. október. Dagskrá og miðasala eru á riff.is.