Leikskóla- og daggæsluráð
Ár 2026, 28. september, var haldinn 5. fundur leikskóla- og daggæsluráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.33.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Sigrún Ásta Einarsdóttir formaður (D), Albert Guðmundsson (D), Helgi Áss Grétarsson (M), Margrét Rós Sigurjónsdóttir (C), Sandra Hlín Guðmundsdóttir (C), Silja Sóley Birgisdóttir (J) og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir (S). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Anna Laufey Stefánsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar og Linda Ósk Sigurðardóttir, starfsfólk í leikskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Frans Páll Sigurðsson. Eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs taka sæti á fundinum með rafrænum hætti: Hjörtur Ágústsson og Ólafur Brynjar Bjarkason. Guðrún Sigtryggsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning og umræða um niðurstöður PISA 2025. SFS26090134
Guðmundur Bjarki Þorgrímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kl. 14:22 tekur Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir sæti á fundinum og Helgi Áss Grétarsson víkur af fundi.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar taka niðurstöður PISA alvarlega og leggja áherslu á að viðbrögð borgarinnar nái til menntunar barna frá fyrstu árum. Leikskólinn er fyrsta menntastigið og þar er lagður mikilvægur grunnur að málþroska, læsi og áframhaldandi námi. Öflugt leikskólastarf er því lykilþáttur í þeirri menntasókn sem fram undan er í Reykjavík. Meirihlutinn leggur áherslu á að efla málörvun, orðaforða og undirstöður læsis í gegnum leik, lestur, samtal og daglegt starf. Jafnframt þarf að hlúa að forvitni barna, talnaskilningi og áhuga þeirra á umhverfinu. Börn sem þurfa aukinn stuðning eiga að fá hann snemma og tryggja þarf samfellu milli leik- og grunnskóla svo þekking á þörfum þeirra og árangursríkum leiðum í námi fylgi þeim milli skólastiga. Til þess þarf faglegan stuðning við kennara og annað starfsfólk og gott samstarf við fjölskyldur.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Niðurstöður úr PISA 2025 benda til þess að ójöfnuður hafi aukist þar sem nemendur sem eiga foreldra í slæmri félags- og efnahagslegri stöðu og nemendur með erlendan bakgrunn koma verr út úr könnuninni. Grípa þarf til aðgerða til að minnka þann ójöfnuð sem er að skapast í samfélaginu. Margt getur spilað inn í versnandi árangur nemenda í lesskilningi. Ósamræmi í kennsluaðferðum, skortur á skilvirkum stuðningi, almenn áhersla á notkun íslensku í samfélaginu, breytt námsumhverfi, áhrif gervigreindar og tækni og skortur á námsefni svo eitthvað sé nefnt. Brýnt er að auka samvinnu innan skólasamfélagsins, hlusta á ábendingar sérfræðinga og kennara, efla foreldra í sínu hlutverki og koma betur til móts við fjölbreyttan nemendahóp. Áherslan verður að vera á markvissa notkun gagnreyndra aðferða við lestrarkennslu og tryggja þarf öllum börnum sem ekki hafa íslensku að móðurmáli markvissa og öfluga íslenskukennslu. Mikilvægi leikskólans sem fyrsta skólastigsins verður ávallt að vera til umræðu þar sem málörvandi umhverfi á fyrstu árum ævi barna getur skipt sköpum fyrir máltöku barna.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins þakkar fyrir góða og greinargóða kynningu á niðurstöðum PISA. Niðurstöðurnar kalla á opna og fordómalausa umræðu um skipulag og framkvæmd skólastarfs, þar sem hagsmunir og námsárangur barna eru í fyrirrúmi. Núverandi staða er óásættanleg og taka þarf skólamálin föstum tökum. Öflugt íslenskt málumhverfi er ein mikilvægasta undirstaða leikskólastarfs. Þar er lagður grunnur að málþroska, læsi og framtíðarnámi barna. Markviss málörvun og lifandi samskipti á íslensku þurfa því að vera rauður þráður í daglegu starfi leikskólanna. PISA-niðurstöðurnar gefa tilefni til að skoða hvers vegna enskumælandi ríki virðast ná góðum árangri með börn af erlendum uppruna. Möguleg skýring er sú mikla enska sem börn heyra í tónlist, sjónvarpi, tölvuleikjum og á netinu. Bækur og námsefni nægja ekki ein og sér. Börn læra tungumál fyrst og fremst í lifandi samskiptum, leik, söng, lestri og samtölum við fullorðna. Vanda þarf ráðningar og tryggja nægilega sterka íslenskukunnáttu innan leikskólanna, samhliða stuðningi við starfsfólk sem vill efla íslensku sína. Góð mönnun felst ekki aðeins í að fylla stöður heldur að tryggja faglega hæfni og öflugt málumhverfi fyrir börnin.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Niðurstöður PISA 2025 kalla á viðbrögð á öllum skólastigum. Leikskólinn leggur grunn að málþroska, forvitni, félagslegri þátttöku og tækifærum barna til náms. Samfylkingin vill efla leikskólann sem menntastig fyrir öll börn. Tryggja þarf nægan tíma og faglegan stuðning til málörvunar í leik, lestri og samtali. Sérstaklega þarf að veita athygli börnum sem læra íslensku sem annað mál. Mikilvægt er að halda áfram að styrkja starfsaðstæður starfsfólks leikskóla.
Áheyrnarfulltrúar starfsfólks leikskóla og leikskólastjóra leggja fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúar starfsfólks og stjórnenda leikskóla fagna því að Reykjavíkurborg hyggist efna til víðtæks samtals um framtíð skóla- og menntamála. Mikilvægt er að samtalið sé vandað, markvisst og raunhæft og byggi á reynslu, þekkingu og faglegu mati starfsfólks skólanna. Umræðan má ekki einskorðast við framtíðarsýn og ný tækifæri heldur þarf einnig að taka á brýnum og langvarandi áskorunum. Þar ber sérstaklega að nefna viðvarandi skort á leikskólakennurum og öðru fagmenntuðu starfsfólki, sem hefur áhrif á gæði leikskólastarfs, stöðugleika, starfsálag og möguleika til að veita börnum þann stuðning, menntun og þjónustu sem þau eiga rétt á. Samtalið þarf að fjalla um raunhæfar leiðir til að styrkja leikskólastigið, fjölga fagmenntuðu starfsfólki, bæta starfsumhverfi og starfsaðstæður, draga úr álagi og auka stöðugleika í starfsmannahaldi. Jafnframt þarf að efla leikskólann sem faglegan og eftirsóknarverðan starfsvettvang. Þátttaka starfsfólks og stjórnenda má ekki vera formsatriði heldur þarf hún að hafa raunveruleg áhrif á stefnumótun, forgangsröðun og framkvæmd. Reykjavíkurborg þarf að tryggja gagnsætt, lýðræðislegt og faglegt samráð og nýta þekkingu og reynslu starfsfólks við ákvarðanatöku. Framtíð skóla- og menntamála krefst skýrrar forgangsröðunar, raunhæfra markmiða, nauðsynlegra fjárfestinga og aðgerða sem taka mið af aðstæðum barna, starfsfólks og stjórnenda. Aðeins þannig verður unnt að tryggja faglegt sjálfbært leikskólastarf til framtíðar.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. september 2026, um samþykkt borgarráðs um aðgerðir í skólamálum vegna niðurstaðna PISA könnunar. MSS26090052
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar fagna samþykkt borgarráðs um að móta markvissar aðgerðir til að bæta námsárangur barna. Meirihlutinn leggur áherslu á eina samstæða menntasókn fyrir leik- og grunnskóla, þar sem ráðin vinna náið saman og ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni er skýr. Í tillögunum verði sett fram afmörkuð verkefni, tímasetningar, kostnaðarmat og mælikvarðar sem gera kleift að fylgjast með árangri. Á leikskólastiginu verði sérstök áhersla á málþroska og undirstöður læsis, snemmtækan stuðning og samfellu milli skólastiga. Huga þarf sérstaklega að íslenskunámi fjöltyngdra barna og stuðningi við starfsfólk til að skapa öllum börnum ríkt málumhverfi. Byggja skal á fagþekkingu og reynslu úr leikskólastarfinu og aðferðum sem studdar eru rannsóknum, með það að markmiði að umbæturnar festist í daglegu starfi.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fagnað er því að unnið verður að aðgerðaráætlun vegna niðurstaðna PISA könnunar. Sérstaklega er jákvætt að tryggð sé aðkoma leikskóla- og daggæsluráðs enda er leikskólinn fyrsta skólastigið. Tryggja þarf aðkomu sérfræðinga á sviði menntavísinda í vinnunni sérstaklega læsissérfræðinga. Við eigum aragrúa af rannsóknum á kennsluaðferðum sem sýna árangur og því tímabært að framfylgja þeim inn í almennt skólastarf. Í framkvæmd er nauðsynlegt að efla stuðningsúrræði fyrir börn sem það þurfa og styðja við faglegt starf kennara en einnig að fræða leiðbeinendur og stuðningsfulltrúa um þeirra hlutverk í námi barna. Samhliða aðgerðaráætlun í skólamálum þarf einnig að efla íslenskt málumhverfi almennt í samfélaginu.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Miðflokkurinn fagnar því að meirihlutinn hyggist taka stöðu skólamála föstum tökum og leggja áherslu á markvissar aðgerðir til að bæta námsárangur. Jafnframt er ánægjulegt að fyrirhugað sé að móta aðgerðirnar í samráði við kennara og annað starfsfólk skólanna, enda býr það yfir ómetanlegri þekkingu og reynslu. Miðflokkurinn leggur áherslu á að jafnframt verði náms- og starfsumhverfi barna tekið til ítarlegrar skoðunar, meðal annars bekkjarstærðir, vinnufriður, aðbúnaður og öryggi nemenda. Sérstaklega þarf að tryggja að í leikskóla sé lagður traustur grunnur að málþroska og læsi barna. Forgangsraða verður góðri og faglegri mönnun leik- og grunnskóla og skapa börnum öruggt, stöðugt og þroskavænlegt námsumhverfi. Hlutverk leikskólans er fyrst og fremst að sinna menntun, þroska og velferð barna. Mönnun hans má því ekki eingöngu miðast við að tryggja vistun svo foreldrar geti sótt vinnu, heldur verður ávallt að ganga fyrst og fremst út frá þörfum og hagsmunum barnanna.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. september 2026, um samþykkt borgarráðs um framtíð skólamála í Reykjavík. MSS26090053
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fagnað er því að unnið verði með niðurstöður PISA könnunar í samráði við kennara og annað starfsfólk í leik- og grunnskólum. Mikilvægt er að allir fulltrúar skóla- og frístundaráðs ásamt leikskóla- og daggæsluráðs eigi sæti á málstofunni svo hægt sé að vinna áfram með hugmyndir af dugnaði og í samvinnu. Við viljum öll styðja betur við nám barna og það er verk að vinna.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 16. september 2026, ásamt umsögn foreldraráðs Hulduheima:
Lagt er til að fjöldi barna í leikskólanum Hulduheimum verði aukinn úr 77 börnum í 111 börn frá 1. september 2026.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS26080131
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar fagna stækkun Hulduheima sem skapar rými fyrir 34 börn til viðbótar og bætir aðstöðu til leiks og náms. Sérstaklega er ánægjulegt að lesa umsögn foreldraráðs um hvernig tekist hefur að halda uppi góðu og öruggu starfi meðan á framkvæmdum stóð. Stjórnendum og starfsfólki eru færðar þakkir fyrir metnað og fagmennsku við þær aðstæður.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 23. september 2026, um nýja samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs Reykjavíkurborgar. MSS26080081
Frestað.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 10. september 2026, um samþykkt borgarráðs um breytingar á reglum um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar. SFS26060089
Fylgigögn
-
Lagt fram rekstraruppgjör skóla- og frístundasviðs, janúar – júní 2026. SFS26080006
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Niðurstaða rekstraruppgjörs skóla- og frístundasviðs vekur athygli í ljósi þess að rekstur sviðsins hefur verið í góðu jafnvægi frá því ný fjárhagslíkön grunnskóla og leikskóla voru innleidd fyrir nokkrum misserum. Hér vekja athygli sérstakar afskriftir að fjárhæð 300 milljónir króna sem felast í því að afskrifaður er sérstaklega hönnunar- og undirbúningskostnaður vegna fyrirhugaðra framkvæmda yfir langt árabil þar sem forsendur hafa breyst, einkum tengt leikskólauppbyggingu og frístundastarfi. Þessar sérstöku afskriftir eiga sér ekki fordæmi í rekstri sviðsins á liðnum árum og tengjast greinilega þeirri viðleitni meirihlutaflokkanna að draga upp svartari mynd af fjárhag borgarinnar en efni standa til. Það virðist vera gert til að réttlæta harkalegar niðurskurðaraðgerðir með fjöldauppsögnum sem birst hafa á undanförnum mánuðum og ekki sér fyrir endann á.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 17. september 2026, um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, þrjú mál. SFS26060275
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi leikskóla- og daggæslumála. SFS26070078
Fundi slitið kl. 15:07
Sigrún Ásta Einarsdóttir Albert Guðmundsson
Sandra Hlín Guðmundsdóttir Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Silja Sóley Birgisdóttir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 28. september 2026