Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 388

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 23. september, kl. 9:07 var haldinn 388. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Friðjón R. Friðjónsson, og áheyrnarfulltrúarnir Sigrún E. Unnsteinsdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Þorvaldur Daníelsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, Sigurjóna Guðnadóttir og Elísabet Dröfn Erlingsdóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á deiliskipulagi Klettasvæðis lóðanna nr. 1 og 3 við Héðinsgötu og nr. 2, 3 og 5 við Köllunarklettsveg, sem felst í þróun á nýrri blandaðri byggð á iðnaðarsvæði við Sundahöfn.

    -     Kl. 9:13 tekur Margrét Rós Sigurjónsdóttir sæti á fundinum.
    -     Kl. 9:37 tekur Birkir Ingibjartsson sæti á fundinum.

    Valný Aðalsteinsdóttir, Magdalena Hedman, Stefan Johanssson, Jón Viðar Guðjónsson, Jóhann G. Jóhannsson, Grétar Mar Hreggviðsson og Pálmar Harðarson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -     Kl. 9:54 tekur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir sæti á fundinum. USK26090095

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks fagnar þeirri metnaðarfullu framtíðarsýn sem hér er lögð fram fyrir Köllunarklettssvæði. Hér er einstakt tækifæri til að umbreyta iðnaðar- og athafnasvæði í nýja og fjölbreytta byggð þar sem íbúðir, atvinnustarfsemi, þjónusta og samfélagslegir innviðir fara saman. Tillagan gerir ráð fyrir um 600 íbúðum af fjölbreyttum toga, auk hjúkrunarheimilis, leikskóla og fjölbreytts atvinnu- og þjónustuhúsnæðis. Markmiðið er þannig að skapa lifandi byggð þar sem fólk getur búið, starfað og sótt þjónustu. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá áherslu á vönduð almenningsrými, virkar jarðhæðir og góða tengingu við sjóinn. Með samfelldri gönguleið meðfram strandlengjunni og nýjum tengingum við Laugarnes og nærliggjandi hverfi opnast þetta einstaka svæði betur fyrir almenningi. Meirihlutinn leggur áherslu á að áfram verði unnið markvisst og í góðu samstarfi við lóðarhafa að framgangi verkefnisins. Jafnframt þarf að tryggja að uppbyggingin taki mið af nálægð við Sundahöfn og að ný byggð og mikilvæg atvinnu- og hafnarstarfsemi geti þróast vel samhliða.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Tillögur að uppbyggingu á Klettasvæði eru afar spennandi og tekin hafa verið jákvæð skref í þróun verkefnisins. Þær gefa fyrirheit um nýtt hverfi í borginni sem einkennist af lifandi borgarumhverfi, með um 600 íbúðum og fjölbreyttri starfsemi. Áskoranir við uppbyggingu hverfisins eru þó augljósar vegna nálægðar við Sæbraut og hafnarsvæði Sundahafnar. Mikilvægt er að tryggt verði að Klettasvæðið tengist Laugardalnum með góðum og öruggum hætti fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Jafnframt er mikilvægt að horfa til þeirra áhrifa sem Sundabraut getur haft á uppbyggingu hverfisins, sérstaklega ef gangalausnin verður fyrir valinu. Í því tilviki mun vestari gangamunninn opnast á Sæbraut, rétt vestan við gatnamót Sundagarða og Dalbrautar. Við frekari þróun verkefnisins væri einnig spennandi að skoða hlutverk Köllunarklettsvegar og Héðinsgötu og hvort hægt sé að tengja hverfið með betri og virkari hætti vestur yfir að Laugarnestanga.

    Fylgigögn

  2. Fram fer í kynning á auglýsingaherferð hjá Bílastæðasjóði Reykjavíkur vegna bílahúsa.

    -     Kl. 10:13 víkur Guðmundur Benedikt Friðriksson af fundi.
    -     Kl. 10:18 víkja Brynjar Þór Jónasson og Gunnar Hersveinn Sigursteinsson af fundi.

    Matthías Bernhöj Daðason tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26090164

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihlutinn hefur ákveðið að ráðast í markvissar aðgerðir til að auka nýtingu bílahúsa Reykjavíkurborgar og fagnar þeirri auglýsingaherferð og nýju ásýnd sem hér er kynnt. Í bílahúsum borgarinnar eru samtals 1.145 bílastæði, sem eru fleiri stæði en öll P1-stæði á yfirborði í miðborginni. Þar liggja því mikil tækifæri til betri nýtingar þeirra innviða sem þegar eru til staðar. Markmiðið er að gera bílahúsin sýnilegri og auðveldari í notkun, bæta merkingar og upplýsingagjöf og kynna betur kosti þeirra fyrir íbúum og gestum miðborgarinnar. Bílahúsin eru miðsvæðis, stutt er í verslun, þjónustu, menningu og mannlíf og verður lögð áhersla á að kynna m.a. verð, staðsetningu, öryggi og sólarhringsopnun. Betri nýting bílahúsanna getur jafnframt dregið úr þörf fyrir leit að stæðum á götum miðborgarinnar og stuðlað að markvissari nýtingu borgarlands. Bílahúsið er ekki áfangastaðurinn heldur upphafið að heimsókn gesta í miðborgina.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar, dags. 2. júlí 2026, um breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar - Fenjanna vegna lóðarinnar nr. 1 við Grensásveg. Í breytingunni sem lögð er til felst í að heimilt verði að byggja hótel á reit B og D, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta, dags. 24. ágúst 2026.
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26070028

    Fylgigögn

  4. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Sunda vegna lóðarinnar nr. 18 við Dyngjuveg, Leikskólinn Sunnuás. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að rífa niður húsið á lóðinni og byggja nýtt stærra hús á lóð, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta, dags. 8. apríl 2026. Einnig er lagt fram ástands- og kostnaðarmat VSÓ ráðgjafar, dags. í júní 2025, og samgöngumat VSÓ ráðgjafar, dags. í nóvember 2025. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 1. september 2026.
    Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040107

    Fylgigögn

  5. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2026 og 15. september 2026. USK22120094

    Fylgigögn

  6. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa dags. 8. september 2026 og 15. september 2026. USK24070166

    Fylgigögn

  7. Aflétt úr trúnaðarbók, kynning, samantekt að skýrslu ásamt bókanir sem var fært í trúnaðarbók á fundi umhverfis- og skipulagsráðs, 2 liður, dags. 26. ágúst 2026:

    Fram fer í trúnaði kynning á niðurstöðum könnunar vegna samgangna og úrgangsmála, unnin á vegum styrktarverkefnis (Pilot City Project) sem tengist Loftslagsborgarsamningi. Einnig eru lögð fram samantekt að rannsóknarskýrslu. Trúnaður ríkir um samantekt að skýrslu þar til umbrot er fullunnið.

    Johanna Raudsepp, Ásdís Karen Waltersdóttir, Hrönn Hrafnsdóttir og Friðrik Klingbeil Gunnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -     Kl. 9:59 víkur Gunnar Hersveinn Sigursteinsson af fundi USK24080258

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihlutinn þakkar fyrir framlagða samantekt á niðurstöðum Pilot Cites verkefnisins og telur niðurstöðurnar bæði áhugaverðar og gagnlegar. Þær veita mikilvæga innsýn í venjur, viðhorf og upplifun íbúa hvað varðar úrgangsmál og samgöngur og geta nýst við áframhaldandi stefnumótun og forgangsröðun verkefna. Jafnframt sýna niðurstöðurnar að ákveðnar áskoranir eru enn til staðar, meðal annars hvað varðar aðgengi að endurvinnsluúrræðum og innviði sem styðja við aukna flokkun, sem og möguleika fólks til að velja sér fjölbreyttari samgöngumáta. Mikilvægt er að bregðast við þeim áskorunum sem fram koma og huga sérstaklega að því hvernig unnt sé að ná betur til þeirra hópa sem síður flokka úrgang eða nýta endurvinnsluúrræði en aðrir. Meirihlutinn telur mikilvægt að líta til þeirra sjónarmiða og ábendinga sem fram koma í rannsókninni við áframhaldandi þróun þjónustu og innviða borgarinnar.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir þessa vinnu, niðurstöðurnar sýna að íbúar eru almennt reiðubúnir til að flokka meira og velja vistvænni ferðamáta, en að aðgengi, tími, kostnaður, öryggi og samhæfing daglegra ferða ráði úrslitum um hvort slíkar breytingar verði raunhæfar. Brýnt er að borgin haldi áfram að bæta aðgengi að grenndarstöðvum og sérflokkun, tryggi reglubundna tæmingu og skýrar upplýsingar, og forgangsraði öruggum og samfelldum innviðum fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur. Sérstaklega þarf að horfa til þeirra svæða sem íbúar meta sem óaðgengileg eða óörugg, þar á meðal Skeifunnar og Granda. Mikilvægt er að umbreyting í samgöngum sé sanngjörn og taki mið af daglegum veruleika fólks, einkum fjölskyldna með börn og þeirra sem þurfa af heilsu-, fötlunar- eða atvinnuástæðum að hafa aðgang að bíl. Markmiðið á að vera að gera vistvæna kostinn að einfaldasta og besta valkostinum, án þess að draga úr raunverulegu ferðafrelsi íbúa. USK24080258

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að fela umhverfis- og skipulagssviði að koma með tillögur að því hvernig megi útfæra skammtíma sleppistæði í miðborginni í nálægð við veitingastaði og verslanir, til að greiða aðgengi að heimsendingar- og leigubílaþjónustu og styðja við rekstrar möguleika veitingastaða og verslana í miðborginni. Sviðinu er falið að vinna tillögurnar í samvinnu við aðila sem reka sendla- og leigubílaþjónustu til að fá gögn um staði sem mest þörf er á sleppistæðum út frá vinsælum stoppistöðvum.

    Greinargerð fylgir tillögu.
    Samþykkt. MSS26060100

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Heimsendingar á mat og vörum hafa aukist verulega á síðustu árum og eru orðnar fastur hluti af daglegu lífi margra. Þessi þróun kallar á að borgarumhverfið taki mið af breyttum þjónustuháttum. Meirihlutinn telur mikilvægt að skoða möguleika á aðstöðu fyrir skammtímastopp í miðborginni með sérstökum sleppistæðum í nágrenni verslana, veitingastaða og þjónustu. Markmiðið er að gera sendibílstjórum kleift að sækja og afhenda vörur með skjótum og öruggum hætti án þess að leggja ólöglega eða þurfa að greiða fullt bílastæðagjald fyrir örfárra mínútna stopp. Slík stæði geta bætt umferðaröryggi, dregið úr ólöglegum stöðvunum og stutt við rekstrarumhverfi fyrirtækja í miðborginni. Jafnframt nýtast þau fleiri mikilvægum þjónustuaðilum, svo sem leigubílum og velferðarþjónustu sem sinnir meðal annars heimsendingu matar og lyfja og akstursþjónustu.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis og skipulagsráðs, dags. 24. júní 2026 um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík og vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 1. september 2026 um 7. lið tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins sem snýr að endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík um að eiga samtal við hagaðila um ný sleppistæði fyrir sendla og vörudreifingu í miðborginni svo greiða megi fyrir afhendingu vara.
    Samþykkt að vísa tillögunni um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík, vegna sleppistæða inn í vinnu um útfærslu skammtíma sleppistæða í miðborginni í nálægð við veitingastaði og verslanir með vísan til 8. liðs þessarar fundargerðar. MSS26060100

    Lögð fram svohljóðandi bókun Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Borgarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks, fagna því að virkt samráð sé þegar til staðar við hagaðila um vörudreifingu í miðborginni. Mikilvægt er að samtalið leiði til markvissra úrbóta og nýrra sleppistæða þar sem þörf er á, svo greiða megi fyrir öruggri og skilvirkri afhendingu vara.

    Fylgigögn

  10. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um auð og ónotuð húsnæði, sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 1. júlí 2026. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu eignastýringar dags. 2. september 2026. USK26070003

    Fylgigögn

  11. Lögð fram tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um viðmið vegna hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 27. liður, dags. 3. september 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
    Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar inn í vinnu við uppfærslu reglna um fjölda bíla- og hjólastæða. USK26090012

    Fylgigögn

  12. Samþykkt að taka inn með afbrigðum skipan og erindisbréf starfshóps um íbúa- og hagaðilakönnun gjaldskyldu.
    Samþykkt að skipa Friðjón R. Friðjónsson, Eyþór Steinarsson og Birki Ingibjartsson í starfshópinn skv. meðfylgjandi erindisbréfi. USK26090221

    Fylgigögn

  13. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 16. júní 2026 ásamt kæru nr. UUA2606015, dags. 16. júní 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa dagsett 19. maí sl. að synja umsókn kæranda um breytingar á húsi hans að Sóleyjargötu 27. Einnig er lagður fram tölvupóstur frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála dags. 3. september 2026 þar sem tilkynnist að kæran hefur verið afturkölluð. USK26060269

    Fylgigögn

  14. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 9. september 2026 vegna kæru nr. UUA2605013 - Lindargata 12. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 27. apríl 2026 um að fjarlægja skuli viðbyggingu sem reist hafi verið á baklóð íbúða 0101 og 0102 að Lindargötu 12. USK26060131

    Fylgigögn

  15. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 9. september 2026 vegna kæru nr. UUA2607009 - Hlaðbær 17. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 9. júní 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir tveimur færanlegum kennslustofum auk tengibyggingar á lóð nr. 17 við Hlaðbæ. USK26070172

    Fylgigögn

  16. Lagt fram afgreiðslubréf borgarráðs, dags. 3. september 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóð nr. 28-30 við Ármúla. USK25120362

    Fylgigögn

  17. Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar dags. 10. september 2026 vegna samþykktar um breytingar á reglum um hámarksfjölda bílastæða bið nýbyggingar. USK26090012

    Fylgigögn

  18. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins:

    Miklar umferðartafir hafa orðið á Miklubraut undanfarnar vikur vegna yfirstandandi framkvæmda við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar. Óskað er eftir stuttri greinargerð með almennum upplýsingum um framkvæmdirnar, m.a. um áætlaðan kostnað og fyrirhugaðan verktíma. Einnig um skiptingu verksins milli borgarinnar og Vegagerðar ríkisins, varðandi ábyrgð á verkinu, ákvarðanatöku og kostnað. Þá er óskað eftir skýrum svörum um ástæður fyrir því að ráðist var í umræddar framkvæmdir á þessum tímapunkti. Er t.d. um háa slysatíðni að ræða á áðurnefndum gatnamótum? Er glæsilegt mannvirki fyrir gangandi og hjólandi örskammt frá lítið nýtt? Enn fremur, af hverju ákveðið var að hefja verkið á þeim tíma í ágúst þegar árviss umferðaraukning, og um leið auknar umferðartafir, eiga sér stað við upphaf skólastarfs. Ef breytingar á stórum umferðaræðum eru nauðsynlegar, er æskilegt að ráðist sé í slíkar framkvæmdir á þeim tíma sumars þegar umferð í borginni er í lágmarki. Eðlilegra þá að fresta til næsta árs ef það fellur á tíma. USK26090373

Fundi slitið kl. 11:20

Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald

Birkir Ingibjartsson Bjarnveig Birta Bjarnadóttir

Friðjón R. Friðjónsson Margrét Rós Sigurjónsdóttir

Þorvaldur Daníelsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 23. september 2026