Mönnun í leikskólum gengur betur en fyrri ár

Börn að leik í sandkassa.

Betur hefur gengið að manna leikskóla borgarinnar í haust en síðustu tvö ár. Alls eru 67 prósent leikskólanna annaðhvort fullmannaðir eða nálægt því að vera fullmannaðir.

Sem stendur vantar starfsfólk í rúmlega 30 stöðugildi en ef fyrirsjáanlegar starfsmannabreytingar eru teknar með í reikninginn vantar í um 50 stöðugildi. Á sama tíma í fyrra átti eftir að ráða í 74 stöðugildi og um miðjan september 2024 vantaði í 123 stöðugildi. Að jafnaði starfa um 2.300 manns í um 1.800 stöðugildum í leikskólum borgarinnar.

Um 16 leikskólar eru með virkar auglýsingar og almennt berast umsóknir, þótt eitthvað beri á að viss hluti umsækjenda uppfylli ekki hæfniviðmið þeirra starfa sem þarf að manna. Þar nefna stjórnendur meðal annars íslenskukunnáttu, fagmenntun og viðeigandi reynslu sem þætti sem geta haft áhrif á ráðningar.

Aðlögun nýrra barna gengur almennt vel

Aðlögun barna virðist almennt ganga vel. Í flestum leikskólum er hafin aðlögun allra barna sem hafa fengið boð um vistun eða gert ráð fyrir að síðustu börnin geti hafið vistun í september eða byrjun október. Ólíkir þættir geta þó valdið því að aðlögun dragist, svo sem aldur barns, óskir foreldra, uppsagnarfrestur hjá dagforeldri, flutningar eða húsnæðismál.

Svör við spurningum um stöðu mönnunar og aðlögun nýrra barna bárust frá leikskólastjórum í síðustu viku. Framkvæmd könnunarinnar í ár var með örlítið breyttu sniði frá fyrri árum og eru niðurstöðurnar því ekki að fullu samanburðarhæfar. Þær undirstrika þó að staða mönnunar er mun betri en verið hefur undanfarin ár.