PinKids epli í öskjum innkölluð

Pinkid

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Bananar ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað PinKids epli í öskjum vegna varnarefnaleyfa sem mældust við innra eftirlit framleiðanda. 

Ástæða innköllunar
Varan getur innihaldið varnarefni (BiFenthrin).
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
Vörumerki: Pink Lady 
Vöruheiti: PinKids
Strikamerki: 3700476661534
Lotunúmer og best fyrir dagsetning: L261409305/L3505            
Nettómagn: 550 g
Framleiðandi: SARL Mesfruits, Cacaillon, Frakkland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Bananar ehf., Kornagarður 1, 104 Reykjavík.
Dreifing (verslanir)
Verslanir Bónus.
Leiðbeiningar til neytenda
Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga en einnig má skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir gæðastjóri Banana í síma 525 0100 eða í gegnum netfangið thoradogg@bananar.is.