Leikskóla- og daggæsluráð - Fundur nr. 4

Leikskóla- og daggæsluráð

Ár 2026, 14. september, var haldinn 4. fundur leikskóla- og daggæsluráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.31.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Sigrún Ásta Einarsdóttir formaður (D), Albert Guðmundsson (D), Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir (M), Silja Sóley Birgisdóttir (J) og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir (S). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Andrea Sigurjónsdóttir, starfsfólk í leikskólum; Anna Laufey Stefánsdóttir, foreldrar barna í leikskólum og Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir og Ólafur Brynjar Bjarkason.
Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning og umræða um drög að samþykkt fyrir leikskóla- og daggæsluráð Reykjavíkurborgar. MSS26080081

    Helga Björk Laxdal tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Kl. 13.37 taka Björg Magnúsdóttir og Sandra Hlín Guðmundsdóttir sæti á fundinum. 

  2. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 3. september 2026, um eftirlit með daggæslu barna í heimahúsum á árinu 2025, niðurstöður viðhorfskönnunar meðal foreldra barna hjá dagforeldrum í maí 2026 og niðurstöður viðhorfskönnunar meðal dagforeldra í maí 2026. SFS26090023

    Elísabet Helga Pálmadóttir, Elna Ósk Stefánsdóttir, Katrín Sigfríður Jóhannsdóttir og Guðrún Mjöll Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar þakka dagforeldrum fyrir mikilvægt starf í þágu barna og fjölskyldna. Fjölbreytt þjónustuframboð fyrir yngstu börnin, áður en þau hefja leikskólagöngu, er mikilvæg forsenda þess að fjölskyldur geti samræmt fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku. Meirihlutinn leggur áherslu á að efla samstarf við dagforeldra, bæta faglegan stuðning og tryggja að daggæsla verði áfram valkostur fyrir fjölskyldur að loknu fæðingarorlofi. Ánægjulegt er að 88% foreldra sem svöruðu könnuninni séu ánægð með þjónustu dagforeldra, en niðurstöðurnar sýna jafnframt að bæta þarf upplýsingagjöf um ráðgjöf, eftirlit, gjöld og hvert foreldrar geta leitað með ábendingar. Mikilvægt er að halda áfram mælingum á viðhorfum bæði dagforeldra og foreldra og byggja ákvarðanir í málaflokknum á niðurstöðum. Meirihlutinn stefnir að því að semja við félög dagforeldra um aukinn stuðning við dagforeldra og gjaldskrá sem samræmist betur gjaldskrá leikskóla borgarinnar. Markmiðið er að draga úr kostnaðarmun milli úrræða, styrkja rekstrargrundvöll daggæslu og tryggja fjölskyldum fyrirsjáanlegri og sambærilegri kjör óháð því hvort barn er hjá dagforeldri eða á leikskóla þegar fæðingarorlofi foreldra lýkur. Við samningsgerðina verði jafnframt horft til gæða, öryggis, aðbúnaðar, faglegs stuðnings og upplýsingagjafar til foreldra. Með því verði fjölbreytt þjónustuframboð fyrir yngstu börnin styrkt og tryggt að niðurstöður kannana leiði til raunverulegra úrbóta, með öryggi og gæði þjónustunnar að leiðarljósi.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Miðflokksins þakkar góða kynningu á því mikilvæga starfi sem dagforeldrar sinna. Miðflokkurinn hefur talað fyrir því að foreldrum standi til boða heimgreiðslur fyrstu tvö æviár barns. Fyrstu æviárin eru mikilvægur tími í þroska barns og því þarf að skapa foreldrum raunverulegt svigrúm til að velja að annast barn sitt lengur heima. Með heimgreiðslum gætu foreldrar valið að opinbert fjármagn fylgi barninu og nýtist til umönnunar þess á heimilinu. Slíkt fyrirkomulag gæti jafnframt verið hagkvæmt fyrir borgina þar sem heimgreiðslur væru lægri en kostnaður við niðurgreitt dagforeldrapláss eða leikskólapláss. Þannig yrði valfrelsi fjölskyldna aukið, foreldrum gert kleift að vera lengur heima með börnum sínum og fleiri dagforeldra- og leikskólapláss stæðu til boða fyrir þær fjölskyldur sem kjósa að nýta slíka þjónustu.

    Kl. 14.39 tekur Jóhanna H. Marteinsdóttir sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. september 2026, um stöðu ráðninga í borgarreknum leikskólum 9. september 2026. SFS26090009

    Guðrún Mjöll Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar fagna því að nú gangi betur að manna leikskóla borgarinnar og þakkar stjórnendum og starfsfólki fyrir vinnu við ráðningar og móttöku barna í haust. Traust mönnun og góður faglegur stuðningur eru forsenda þess að tryggja börnum góða þjónustu, skapa starfsfólki góðar starfsaðstæður og veita fjölskyldum fyrirsjáanlega þjónustu.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. september 2026, við fyrirspurn leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um stöðu ráðninga í leikskólum, sbr. 5. lið fundargerðar leikskóla- og daggæsluráðs frá 31. ágúst 2026. SFS26090009

    Fylgigögn

  5. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 3. september 2026, við fyrirspurn leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um fjölda foreldra sem hafa sótt um afslátt af leikskólagjöldum, sbr. 10. lið fundargerðar leikskóla- og daggæsluráðs frá 17. ágúst 2026. SFS26080064

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja áherslu á að afslættirnir nýtist þeim fjölskyldum sem helst þurfa á þeim að halda og að upplýsingar um rétt til afsláttar og umsóknarferlið séu skýrar, aðgengilegar og einfaldar. Slíkir afslættir eru mikilvægur stuðningur við tekjulægri fjölskyldur og geta skipt sköpum fyrir heimili sem standa höllum fæti. Mikilvægt er að fylgst sé vel með því hvernig úrræðið nýtist og að fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar um umsóknir, veitta afslætti og afgreiðslutíma. Þannig má tryggja að stuðningurinn nái til þeirra tekjulægri fjölskyldna sem honum er ætlað að styðja og að framkvæmdin sé í samræmi við markmið borgarinnar um jöfn tækifæri barna og fjölskyldna.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram minnisblað um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 3. september 2026, samantekt um ráðningar leikskólastjóra febrúar – ágúst 2026. SFS26060275

    Fylgigögn

  7. Fram fer umræða um fréttir af vettvangi leikskóla- og daggæslumála. SFS26070078 

  8. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Á verkefnalista Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks á vefsíðunni www.verkefnalisti.is kemur fram að búið sé að ljúka við eftirfarandi aðgerð: „Við ætlum að sníða umgjörð um dagheimili, nýtt daggæslustig fyrir 12 til 30 mánaða börn í Reykjavík.“ Þetta mál hefur ekki komið til umræðu í leikskóla- og daggæsluráði. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands spyrja því hver þessi umgjörð er, sem og, hvar og hvenær hún var samþykkt.

    SFS26090109

Fundi slitið kl. 14:54

Sigrún Ásta Einarsdóttir Albert Guðmundsson

Björg Magnúsdóttir Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir

Sandra Hlín Guðmundsdóttir Silja Sóley Birgisdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 14. september 2026