Íþrótta- og útilífsráð
Ár 2026, föstudaginn 11. september var haldinn 33. fundur íþrótta- og útilífsráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:01. Viðstödd voru: Bjarni Guðjónsson formaður, Albert Guðmundsson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Björn Gíslason, Lárus Blöndal Sigurðsson Margrét Rós Sigurjónsdóttir og Stefán Pálsson. Jafnframt Frímann Ari Ferdinandsson varaáheyrnarfulltrúi ÍBR. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Atli Steinn Árnason, Helga Friðriksdóttir, Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á drögum að samþykkt fyrir íþrótta- og útilífsráð – MIR26090010
Helga Björk Laxdal skrifstofustjóri borgarstjórnar tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti undir þessum lið.
-
Lögð fram skýrsla sviðsstjóra MÍR dags. 8. september 2026 um aðstöðumál og fjárframlög til íþróttafélaga sbr. samþykkt íþrótta- og útilífsráðs þar um frá 26. júní 2026. MIR26060021.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja svo svohljóðandi bókun:
Meirihluti Íþrótta- og útilífsráðs þakkar menningar- og íþróttasviði fyrir vel unna vinnu við kortlagningu aðstöðumála og fjárframlaga til íþróttafélaga. Ráðið telur að skýrslan varpi mikilvægu ljósi á umfang stuðnings Reykjavíkurborgar við íþróttastarf og mismunandi umgjörð félaganna. Jafnframt er ljóst að frekari vinnu þarf til að skapa heildstæða og sambærilega yfirsýn yfir stöðu félaganna, aðstöðumun þeirra, iðkendafjölda barna og ungmenna og þær ólíku þarfir sem félögin standa frammi fyrir. Sérstaklega er mikilvægt að þróa samræmda upplýsingagjöf og greiningar sem gera unnt að meta með skýrari hætti hvernig aðstaða og fjárframlög tengjast umfangi starfsemi og þjónustu við börn og ungmenni. Ráðið telur slíka vinnu nauðsynlega til að styðja við upplýsta stefnumótun og sanngjarna ráðstöfun fjármuna til framtíðar.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á Nauthólsvík - MIR26090005
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti íþrótta- og útilífsráðs þakkar fyrir góða og upplýsandi kynningu á starfseminni í Nauthólsvík. Kynningin sýnir vel hversu fjölbreytt og öflugt starf fer fram á svæðinu og mikilvægt hlutverk þess í að efla útivist, hreyfingu, sund- og sjósportsiðkun og aðgengi almennings að náttúru og útivistarmöguleikum í borginni. Meirihlutinn fagnar þeirri uppbyggingu og þróun sem átt hefur sér stað og telur mikilvægt að áfram verði unnið að því að styrkja starfsemina og nýta þau tækifæri sem Nauthólsvík býður upp á fyrir fjölbreyttan hóp borgarbúa.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindisbréf um skipan starfshóps um framtíðaraðstöðu Siglingafélags Reykjavikur – Brokey. MIR26090004
Samþykkt.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja svo svohljóðandi bókun:
Meirihluti íþrótta- og útilífsráðs fagnar því að skipaður hafi verið starfshópur um framtíðaraðstöðu Siglingafélags Reykjavíkur Brokeyjar og telur mikilvægt að unnið verði markvisst að því að tryggja áframhaldandi uppbyggingu og þróun siglingaíþróttarinnar í Reykjavík. Ráðið leggur þó áherslu á að starfshópurinn horfi ekki eingöngu til aðstöðu Brokeyjar heldur taki jafnframt til heildstæðrar skoðunar málefni bláa útivistarsvæðisins í Reykjavík, þar með talið hvernig strandsvæði borgarinnar og aðstaða til sjótengdrar útivistar og íþróttaiðkunar geti sem best þjónað fjölbreyttum hópi borgarbúa til framtíðar. Slík heildarsýn er mikilvæg forsenda fyrir markvissri stefnumótun og uppbyggingu á þessu sviði.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Íþróttabandalags Reykjavíkur dags. 25. ágúst 2026 vegna aukins samstarfs Leiknis og ÍR - MIR26090007
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Miðflokkurinn fagnar hugmyndum um aukið samstarf íþróttafélagana í Breiðholti. Hinsvegar vantar eitt félag í þessar viðræður, sem er Aþena, sem er með starfsemi í Austurbergi. Lagt er til að fulltrúi frá Aþenu sé líka í þessum viðræðum. Eins er gerð athugasemd við aukinn kostnað við þessar viðræður. Það ætti að vera eðlilegt að leysa þetta innan sviðsins, án viðbótarkostnaðar.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra MÍR dags. 8. september 2026 við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingar frá fundi íþrótta- og útilífsráðs 28. ágúst 2026 um starfsfólk í íþróttamannvirkjum MÍR. MIR26080021.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra MÍR dags. 7. september 2026 við fyrirspurn fulltrúa Vinstrisins frá fundi íþrótta- og útilífsráðs frá 28. ágúst 2026 um áhrif á niðurlagningu hverfamiðstöðva – MIR26080016.
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Svar sviðsstjóra við fyrirspurn fulltrúa Vinstrisins um afleiðingar þeirrar ákvörðunar að leggja niður hverfamiðstöðvarnar leiðir í ljós hversu vanhugsuð og lítt undirbúin sú aðgerð var. Hætt er við að mikilvæg verkefni sem miða að því að auka íþróttaþátttöku ungmenna, einkum í viðkvæmum hverfum, lendi í uppnámi og að dýrmæt þekking og reynsla hafi tapast.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar skrifstofustjóra íþróttaborgar dags. 8. september 2026 við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingar frá fundi íþrótta- og útilífsráðs 28. júní 2026 um frístundaakstur - MIR26080020
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Miðflokksins frá fundi íþrótta- og útilífsráðs frá 28. ágúst 2026 varðandi íþróttafélagið Aþenu – MIR26080018.
Jafnframt lagt fram minnisblað sviðsstjóra dags. 9. september 2026 varðandi málefni Aþenu og aðstöðumál í Austurbergi.
Tillögunni er vísað frá.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Í dag er enginn rekstarsamningur í gildi við Aþenu og augljóslega er erfitt að halda úti starfsemi félagsins í þeirri óvissu. Ekki verður séð hversvegna ekki er hægt að ganga frá langtíma samningi við Aþenu, út frá þeirri þjónustu sem félagið nú þegar sinnir í hverfinu. Forsendur ættu að liggja fyrir. Það er því brýnt að ljúka við þjónustu- og rekstarsamningi við félagið. Varðandi aðstöðumál, þá er mikilvægt að leita lausna í samstarfi við Aþenu um viðundandi félagsaðstöðu fyrir núverandi starfsemi, ef ekki er unnt að nýta kjallarann í Austurbergi, eins og hér kemur fram.
Fylgigögn
-
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi tillögu um stefnu og starfsreglur frístundaaksturs: MIR26090012
Lagt er til að menningar- og íþróttasvið móti stefnu og starfsreglur um frístundaakstur í Reykjavík, með það að markmiði að yngstu börnin í öllum hverfum borgarinnar eigi kost á sambærilegri og faglegri frístundaaksturs þjónustu. Í stefnunni verði skilgreint hvað frístundaakstur er, fyrir hvaða aldurshópa hann er ætlaður og hverjir eigi rétt á honum. Sett verði lágmarksviðmið um gæði og öryggi sem gildi í öllum hverfum, meðal annars um fylgd fullorðinna, biðtíma og upplýsingagjöf til foreldra. Þá verði mótuð viðmið um styrkveitingar sem taki mið af fjölda barna, vegalengdum og aðstæðum í hverfi. Sérstaklega verði kannað hvernig auka megi samstarf hagaðila til að lækka kostnað, meðal annars hvort semja megi sameiginlega eða bjóða aksturinn út fyrir hönd félaganna, samnýta ferðir milli hverfa og nýta samninga Strætó. Sérstök áhersla verði einnig lögð á að samtvinna frístundavistun í fyrstu bekkjum grunnskóla við íþrótta- og æskulýðsstarf, í samstarfi við skóla- og frístundasvið, svo tíminn milli klukkan 14:00 og 17:00 nýtist betur til frístundaiðkunar. Samráð verði meðal annars haft við íþróttafélögin, skóla- og frístundasvið, foreldra og foreldrafélög. Stefnan, starfsreglur og kostnaðarmat liggi fyrir tímanlega vegna gerðar fjárhagsáætlunar 2027.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Frestað.
-
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um framboð til heilsueflingar eldri borgarbúa: MIR26090013
Fulltrúi Samfylkingarinnar óskar eftir yfirliti frá menningar- og íþróttasviði yfir það framboð af heilsueflingu og íþróttum sem stendur borgarbúum 65 ára og eldri til boða. Þar er átt við starf á vegum borgarinnar sjálfrar, íþróttafélaga, félögum eldri borgara og annarra. Óskað er eftir sundurliðun eftir hverfum og hver það er sem ábyrgist eða veitir þjónustuna, eftir tegund hreyfingar, eftir fjölda tíma á viku og eftir því hvað þátttakandinn greiðir. Einnig er óskað eftir því hver framlög borgarinnar hafi verið inn í hvert starf? Jafnframt hvort einhverjir samningar séu í gildi, við hverja og hvenær þeir renna út?
-
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Greiða íþróttafélögin í Reykjavík fasteignagjöld og ef svo eru þau endurgreidd að fullu?
• Óskað er eftir sundurliðun á greiðslu á fasteignagjöldum íþróttafélaga í Reykjavík og yfirlit yfir endurgreiðslur.
• Þar sem fasteignagjöld eru rukkuð, er lóðamat samrýmt hjá Reykjavíkurborg, þ.e. eru allar lóðirnar sem íþróttafélögin nota skilgreindar sem lóðir undir íþróttastarfsemi?
• Greiða íþróttafélögin í Reykjavík hita, vatn og rafmagn? Óskað er eftir sundurliðun á notkun allra íþróttafélaga vegna þessarar þessara þátta og hver sé greiðandinn (Reykjavíkurborg, íþróttafélagið eða annar aðili).
• Er endurgreiðsla til íþróttafélaga sem greiða orkunotkun sjálf? Óskað er eftir sundurliðun á endurgreiðslum ef svo er.
• Eru starfsmenn Reykjavíkurborgar í einhverjum af hverfis-íþróttafélögunum í Reykjavík (þ.e. starfsmenn sem eru á launaskrá hjá Reykjavíkurborg)? Ef svo þá er óskað eftir lista yfir stöðugildi og launakostnað.
Fundi slitið kl. 10:32
Bjarni Guðjónsson Björn Gíslason
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Albert Guðmundsson
Stefán Pálsson Lárus Blöndal Sigurðsson
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íþrótta- og útilífsráðs 11.09.26