Menningarráð - Fundur nr. 3

Menningarráð

Ár 2026, föstudaginn 11. september var haldinn 3. fundur menningarráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 11:00. Viðstödd voru:  Rúnar Freyr Gíslason formaður,  Eyþór Máni Steinarsson varamaður fyrir Friðjón R. Friðjónsson, Helga Margrét Marzellíusardóttir, Líf Magneudóttir, Skúli Helgason og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Elín Hrefna Ólafsdóttir,  Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð. 

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á drögum að samþykkt fyrir menningarráð. MIR26090011

    Helga Björk Laxdal skrifstofustjóri borgarstjórnar tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti undir þessum lið.

    - Kl. 11:05 tekur Hlédís Maren Guðmundsdóttir sæti á fundinum.

  2. Fram fara kynningar á Borgarbókasafni, Borgarsögusafni og Listasafni Reykjavíkur. MIR26090002

    Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður Borgarbókasafns Reykjavíkur, Guðbrandur Benediktsson safnsstjóri Borgarsögusafn Reykjavíkur og Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur sitja fundinn undir þessum lið. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar  og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins þakka fyrir vandaðar kynningar á starfi lykilsafna borgarinnar: Listasafns Reykjavíkur, Borgarbókasafns og Borgarsögusafns.  Starfsemi þessara höfuðsafna okkar er afskaplega fjölbreytt og vönduð og þau gegna lykilhlutverki í að halda á lofti sögu og varðveislu menningararfs og hlúa að miðlun samtímalistar í borginni.  Brýnt er að standa dyggan vörð um starfsemi safnanna á því kjörtímabili sem nýhafið er og hafa stjórnendur og starfsfólk með í ráðum varðandi allar helstu ákvarðanir um umgjörð starfseminnar og ráðstöfun fjármuna.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofustjóra menningarborgar dags. 7. september 2026 varðandi skipun faghóps vegna úthlutunar menningarstyrkja úr borgarsjóði 2026.  Trúnaður ríkir um skipun faghópsins þar til eftir styrkjaúthlutun 2026.  MIR26090003.

    Samþykkt.

  4. Lagðar fram reglur menningarráðs Reykjavíkur, til samþykktar, um úthlutun styrkja og gerð samstarfssamninga Reykjavíkurborgar á sviði menningarmála.  Reglurnar voru samþykktar á fundi menningaráðs 28. ágúst 2026 en eru nú lagðar fram að nýju vegna minniháttar orðalagsbreytinga. MIR26060017

    Samþykkt.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram yfirlit skrifstofustjóra menningarborgar dags. 7. september 2026 um dagskrá menningarborgar í september.  MIR26080017.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram minnisblað skrifstofustjóra menningarborgar dags. 7. september 2026 um umsóknir í erlenda sjóði vegna tveggja verkefna; Magnetic North og Language Without Borders. MIR26080011

    Fylgigögn

  7. Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Menningar- og íþróttaráð lagði til á fundi sínum 28. nóvember 2025 að mótaðar yrðu tillögur um aðgerðir til að efla lifandi tónleikahald í borginni.  Skipaður var spretthópur undir forystu stjórnanda Tónlistarborgarinnar sem skilaði tillögum sínum 27. febrúar 2026.  Þar var m.a. lagt til að úrbótasjóður tónleikastaða yrði endurreistur, að tónleikastaðir yrðu viðurkenndir sem menningarlega mikilvægir innviðir og að leyfisveitingakerfi tónleikastaða yrði einfaldað.  Þann 10. apríl 2026 samþykkti menningar og íþróttaráð tillögu um að endurreisa úrbótasjóð með 10 milljóna króna framlagi og var öðrum tillögum spretthópsins vísað til meðferðar sviðsstjóra og borgarráðs.  Óskað er eftir upplýsingum um stöðu málsins og hvernig miði vinnu við innleiðingu þeirra tillagna sem spretthópurinn lagði fram. 

Fundi slitið kl. 12:45

Rúnar Freyr Gíslason Helga Margrét Marzellíusardóttir

Þorvaldur Davíð Kristjánsson Eyþór Máni Steinarsson

Líf Magneudóttir Hlédís Maren Guðmundsdóttir

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningarráðs 11.09.2026 - Prentvæn útgáfa