Skráning hefst fyrir skráningardaga haustannar í leikskóla
Skráning í leikskóla fer nú fram tvisvar á ári fyrir skráningardaga í leikskóla. Skráningarfrestur er 10.–20. september fyrir haustönn og 10.–20. janúar fyrir vorönn.
Haustfrí og jólafrí
Á haustönn er um að ræða þá daga sem grunnskólarnir eru í haustfríi, 22., 23. og 26. október næstkomandi og dagana milli jóla og nýárs 28.-30. desember. Þau sem ætla að nýta sér þjónustu leikskóla borgarinnar á þessum dögum þurfa að skrá börn sín sérstaklega. Skráning fer fram á Vala leikskóli - Umsóknarvefur og verður opið fyrir skráningu 10.–20. september.
Gott að hafa í huga:
- Á skráningardögum er vistun valkvæð.
- Ef óskað er eftir vistun fyrir barn á þessum dögum þarf að skrá það sérstaklega hér og þá eru greiddar 5.000 kr. fyrir hvern dag.
- Veittur er 50% afsláttur fyrir yngra systkini og 100% afsláttur fyrir þriðja barn af gjaldi vegna skráningardaga.
- Ef barn er ekki skráð í vistun er reiknað með að það verði í fríi.
- Hægt er að skrá barn í vistun staka daga eða alla dagana á haustönninni.
- Greitt er fyrir þá daga sem barnið er skráð, sama hvort barnið mætir eða ekki.
- Skráning er bindandi og gildir einungis fyrir þá daga sem barnið er skráð.
- Ekki er unnt að skrá barn eftir að skráningarfresti lýkur þann 20. september.