Borgarspítalareitur í skipulagsgátt
Kynningarfundur fyrir íbúa var haldinn í Víkinni í Fossvogi þriðjudaginn 1. september. Þar voru áherslur Reykjavíkurborgar og áformuð aðalskipulagsbreyting kynnt, drög að deiliskipulagsbreytingu og áherslur geðráðs.
Íbúafundur
Nýr Landspítali ohf. hélt opinn fund fyrir íbúa og aðra hagsmunaaðila um deiliskipulagsbreytingu Borgarspítala þriðjudaginn 1. september í Víkinni, Fossvogi. Breytingin felur í sér að reitur, sunnan og austan núverandi Borgarspítala/Landspítala í Fossvogi verði deiliskipulagður fyrir nýtt geðsvið LSH. Skipulagslýsingin er í skipulagsgátt og geta íbúar og aðrir sent inn athugasemdir til 22. september. Þau sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.
Dagskrá fundarins
- Áherslur og markmið Reykjavíkurborgar og áformuð aðalskipulagsbreyting: Sigríður Maack, verkefnisstjóri og Haraldur Sigurðsson deildarstjóri aðalskipulags, Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar
- Drög að deiliskipulagsbreytingu: Halldóra Bragadóttir, Kanon arkitektar
- Áherslur Geðráðs: Páll Matthíasson, formaður Geðráðs
- Umræður
- Fundarstjóri var Helgi Davíð Ingason, sviðsstjóri hönnunarsviðs NLSH
Tilgangur fundarins var að kynna áform um uppbyggingu á nýju geðþjónustuhúsi Landspítala og nýtt deiliskipulag og vekja athygli á skipulagslýsingunni í skipulagsgátt.
Fallega hönnuð, lágreist hús með greiðu aðgengi að grænum svæðum
Fram kom hjá Páli Matthíassyni formanni Geðrás að brýn þörf væri á nýju geðhúsi á Íslandi. Eldri byggingar hentuðu ekki nútíma vísindum og meðferð á þessu sviði. Nútímabygging er hluti af meðferðinni og batamiðuð hönnun tæki mið af náttúru, birtu, virkni, næði og tengslum. Staðsetningin í Fossvogi sameinarð bæði nálægð við náttúru og heilbrigðisþjónustu.
Hvernig Geðhús vill Geðráð sjá? Páll nefndi í svari sínu; einbýli, garða, góða birtu, aðgengi, mannúð og virðingu eða með öðrum orðum umhverfi sem styður sjálfstæði og bata. Hvernig við búum að okkar samborgurum þegar þeim líður illa, segir mikið um það hvers konar samfélag við viljum vera. Fallega hönnuð, lágreist hús með greiðu aðgengi að grænum svæðum geta orðið nærsamfélaginu til hagsbóta og prýði, að mati Páls.
Tenglar:
- Kynningar á fundinum 1. september
- Skipulagsgátt
- Netfang hjá skipulaginu: skipulag@reykjavik.is
- Fyrri frétt um fundinn