Nýr endurreikningur sérstaks húsnæðisstuðnings gefinn út

Lokauppgjör sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir árið 2025 er nú lokið. Mynd/Arctic Images - Ragnar Th.
Loftmynd af gróðri og húsum í miðborg Reykjavíkur.

Lokauppgjör sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir árið 2025 er nú lokið. Við uppgjörið eru greiðslur stuðningsins endurreiknaðar út frá staðfestum tekjuupplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Niðurstaða uppgjörsins getur haft áhrif á rétt fólks til sérstaks húsnæðisstuðnings frá 1. september 2026.

Réttur til sérstaks húsnæðisstuðnings fer meðal annars eftir tekjum, eignum, heimilisaðstæðum og húsnæðiskostnaði. Við lokauppgjörið er farið yfir hvort þessar upplýsingar fyrir árið 2025 hafi verið í samræmi við þær upplýsingar sem húsnæðisstuðningurinn var reiknaður út frá.

Í sumum tilvikum gæti komið í ljós að einstaklingur hafi fengið hærri greiðslur en hann átti rétt á. Þá þarf að endurgreiða það sem var ofgreitt samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning.

Ef viðkomandi fær áfram sérstakan húsnæðisstuðning er hægt að draga endurgreiðsluna frá mánaðarlegum greiðslum. Frádrátturinn getur þó að hámarki verið 25% af mánaðarlegri greiðslu. Sem dæmi myndi einstaklingur sem fær 50.000 krónur í sérstakan húsnæðisstuðning á mánuði að hámarki greiða 12.500 krónur á mánuði upp í ofgreiðslu.

Í einhverjum tilvikum getur komið í ljós við endurreikning að umsækjandi hafi átt rétt á hærri sérstökum húsnæðisstuðningi en hann fékk greiddan. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar mun þá greiða viðkomandi þá fjárhæð sem upp á vantar.

Lokauppgjörið fer fram samkvæmt 9. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning. Reglur um endurgreiðslu ofgreidds stuðnings er að finna í 11. og 12. gr. reglnanna.