Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, föstudaginn 21. ágúst var haldinn 195. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði og í Varmadal, Borgartúni 14 og hófst kl. 11:30.
Friðjón R. Friðjónsson og Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir sátu fundinn í fundarsal. Sigrún Ásta Einarsdóttir, Regína Ásvaldsdóttir og Bjarni Guðjónsson sátu fundinn með fjarfundarbúnaði. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Theodór Kjartansson starfsmaður borgarlögmanns og Ólafur Steingrímsson sem jafnframt ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26080083 dags. 20. ágúst 2026 varðandi útboð nr. 16317 – Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Reykjavík 2026-2027, þar sem lagt er til að innkaupa- og framkvæmdaráð afturkalli ákvörðun sína sem tekin var á fundi ráðsins 13. ágúst 2026 er varðar hluta 3 í ofangreindu útboði og í stað hennar verði gengið að lægsta gilda tilboði frá Garðlist ehf. um tvö tæki að upphæð 9.200.000 kr. stk. enda uppfyllir tilboðið og bjóðandi bæði tæknilegar og fjárhagslegar kröfur útboðsgagnanna.
Hafnað.Margrét Lilja Gunnarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Regína Ásvaldsdóttir víkur af fundi kl.12:06.
Innkaupa- og framkvæmdaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Fyrir innkaupa- og framkvæmdaráði liggur tillaga umhverfis- og skipulagssviðs um að afturkalla ákvörðun ráðsins frá 13. ágúst 2026 vegna útboðshluta 3 í útboði nr. 16317 og ganga þess í stað til samninga við næstlægstbjóðanda. Í 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er gert ráð fyrir að kaupandi geti óskað eftir að bjóðandi leiðrétti, bæti við, skýri eða fullgeri upplýsingar og gögn sem eru ófullkomin, innihalda villur eða vantar. Slíkar skýringar, lagfæringar eða viðbótarupplýsingar mega ekki hvorki fela í sér breytingu á grundvallarþáttum tilboðs né vera líklegar til að raska samkeppni eða ýta undir mismunun. Af ákvæðinu leiðir að skera verður úr um hvort síðari framlagning gagna feli í sér efnislega breytingu á tilboði eða eingöngu leiðréttingu á formlegum annmarka og staðfestingu á aðstæðum sem þegar voru fyrir hendi við lok tilboðsfrests. Í lögskýringargögnum kemur fram að kaupanda sé heimilt að gefa bjóðanda kost á að bæta úr gögnum sem innihalda smávægilegar villur, jafnvel þótt annmarkinn gæti ella leitt til þess að tilboðið kæmi ekki til greina, enda leiði leiðréttingin ekki til mismununar milli bjóðenda. Slíkt mat skal jafnframt fara fram með hliðsjón af meginreglum 15. gr. laganna um jafnræði, meðalhóf og gagnsæi. Fyrir liggur að Garðaþjónusta Sigurjóns lagði fram sama tækjalista vegna útboðshluta 1 og útboðshluta 3. Skjalið var merkt útboðshluta 1 og tækin á listanum gátu augljóslega ekki uppfyllt kröfur útboðshluta 3. Samspil þessara atriða styður eindregið að rangt viðhengi hafi verið lagt fram vegna augljósrar fljótfærnisvillu. Garðaþjónusta Sigurjóns sendi umbeðinn lista samdægurs eftir að borgin óskaði skýringa. Ráðið leggur til grundvallar að síðari gögn hafi eingöngu staðfest aðstæður sem voru fyrir hendi við lok tilboðsfrests en ekki falið í sér nýtt val, skipti á tækjum eða breytingu á tæknilegri lausn. Gögn málsins sýna að Garðaþjónusta Sigurjóns hafði fyrir lok tilboðsfrests í eigu eða bindandi umráðum þær vélar sem síðar voru tilgreindar. Þá laut útboðið að kaupum á þjónustu en ekki leigu tiltekinna véla. Auðkenni vélanna hafði ekki áhrif á stigagjöf eða röðun tilboða, enda uppfylltu vélarnar tæknilegar lágmarkskröfur útboðsgagna. Hvorki verð, fjöldi tækja né aðrir fjárhagslegir þættir tilboðsins breyttust við leiðréttinguna. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að Garðaþjónusta Sigurjóns hafi með leiðréttingunni breytt stöðu sinni, aflað nýrra tækja eftir lok tilboðsfrests eða öðlast samkeppnisforskot gagnvart öðrum bjóðendum. Ráðið telur því að skilyrði 5. mgr. 66. gr. hafi verið uppfyllt og að ekki séu forsendur til að afturkalla fyrri ákvörðun ráðsins.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:30
Friðjón R. Friðjónsson Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Bjarni Guðjónsson Sigrún Ásta Einarsdóttir