Bolholt 7-9 - Valhallarreitur - Yfirborðsfrágangur
Hvað verður gert?
Í verkinu felst að rífa upp og fjarlægja núverandi miðeyju og hluta gangstéttar í Skipholti
á milli Bolholt og Háaleitisbrautar. Gerð verður ný stærri umferðareyja með upphækkaðri
gönguleið, gangstéttum breytt norðan megin götunnar og nýjum niðurföllum og
ljósastaurum bætt við. Í Bolholti verður gerð ný gangstétt eftir byggingarframkvæmdir
við Bolholt 7-9 og settir upp ljósastaurar. Einnig skal endurgera gangstétt á horni
Skipholts og Bolholts og gerð niðurtekt fyrir gangandi í núverandi gangstétt við Bolholt 6.
Meðfram Bolholti 7-9 verður gert gróðurbeð.
Hvernig gengur?
September 2026
Áætlað er að hefja framkvæmdir mánudaginn 28. september.
Ágúst 2026
Startfundur hefur farið fram og áætlað er að hefja vinnu um leið og afnotaleyfi fæst.
Í fyrsta áfanga verður gerð stærri eyja með upphækkaðri gönguleið í Skipholti