Leikskóla- og daggæsluráð
Ár 2026, 17. ágúst, var haldinn 2. fundur leikskóla- og daggæsluráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.34.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Sigrún Ásta Einarsdóttir formaður (D), Albert Guðmundsson (D), Björg Magnúsdóttir (C), Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir (M), Margrét Rós Sigurjónsdóttir (C), Silja Sóley Birgisdóttir (J) og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir (S). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Andrea Sigurjónsdóttir, starfsfólk í leikskólum; Anna Laufey Stefánsdóttir, foreldrar barna í leikskólum og Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson, Ólafur Brynjar Bjarkason og Ragnheiður E. Stefánsdóttir.
Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning og umræða um forsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar 2027-2031 og úthlutun fjárheimilda 2027. SFS26080046
Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 litast mjög af bágri stöðu fjármála Reykjavíkurborgar en meirihlutinn hefur lofað því að fara vel með almannafé og tryggja að fjármunir borgarbúa nýtist sem best. Liður í því að gera fjármál borgarinnar sjálfbær og draga úr skuldum og lántöku er að ná tökum á fjármálum og mæta viðvarandi hallarekstri. Leiðarljós meirihlutans við fjárhagsáætlun er að setja í forgang verkefni sem skipta borgarbúa mestu máli, þar á meðal fjölgun dagvistunarplássa, bætt þjónusta við börn og fjölskyldur og betri meðferð og viðhald skólabygginga. Við viljum einfalda kerfin og leggjum mikla áherslu á að borgarbúar finni fyrir bættri þjónustu úti í hverfunum.
-
Fram fer kynning og umræða um leikskólaleiðina í Reykjavík. MSS25050076
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir kynninguna. Markmið Leikskólaleiðarinnar um bætt starfsumhverfi, minni fáliðun og aukinn stöðugleika fyrir börn og fjölskyldur eru mikilvæg. Kynningin sýnir að breytingarnar hafa leitt til verulegrar styttingar vistunartíma og að nú er rúmlega helmingur barna með 38 stunda vistun eða skemmri. Enn er þó of snemmt að meta hvort breytingarnar hafi skilað þeim árangri sem lagt var upp með, enda liggja enn ekki fyrir gögn um áhrif þeirra á mönnun, veikindi, líðan starfsfólks og upplifun barna og foreldra. Jafnréttismat sem unnið var vegna þessara aðgerða bendir til kynjamunar á ábyrgð foreldra síðdegis. Samkvæmt gögnum sem safnað var í 20 leikskólum í eina viku koma mæður og feður með börn í leikskóla í svipuðum mæli, en mæður sækja þau í um helmingi tilvika og feður í rúmlega þriðjungi tilvika. Styttri vistunartími kallar einkum á breytt skipulag síðdegis, þegar ábyrgðinni virðist þegar ójafnt skipt. Breytingarnar kunna því að hafa ólík áhrif á stöðu mæðra og feðra á vinnumarkaði. Nauðsynlegt er því að tryggja að vel verði staðið að mati á áhrifum breytinganna á jafnrétti kynjanna og möguleika foreldra til að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands þakkar fyrir góða kynningu á Leikskólaleiðinni. Hún verður vonandi fyrsta skref af mörgum í átt að bættum náms- og starfsaðstæðum. Breytt gjaldskrá skapar hvata fyrir foreldra að sækja börn sín fyrr úr skólum en fylgjast þarf grannt með mögulegum neikvæðum áhrifum. Skilvirkara skráningarfyrirkomulag skapar fyrirsjáanleika fyrir stjórnendur en nauðsynlegt verður að endurskoða reiknireglur fyrir mönnum þar sem ítrekað hefur verið bent á að með þeim er erfitt að bregðast við forföllum. Ekki er búið að skapa skýrt verklag í kringum tillögur sem snúa að starfsþróun og öðrum þáttum daglegs starfs. Mikilvægt er að þeim tillögum sé fylgt eftir og farsæl innleiðing sé tryggð með skýrum árangursmælingum og nægilegri fjármögnun. Þetta á við um tillögur sem snúa að blíðri byrjun, íslenskukennslu starfsfólks og umsjónarmanna húsnæðis, en síðari tvær voru ekki fjármagnaðar. Til að bæta raunverulega náms- og starfsaðstæður í leikskólum mun þurfa að fylgja leikskólaleiðinni eftir með fleiri tillögum sem snúa að bættum starfskjörum starfsmanna, auknum stuðningi við þau börn sem þurfa, nægum undirbúningstíma, símenntun alls starfsfólks ásamt stórátaki í viðhaldi húsnæðis. Að vinna að bættri heilsu og líðan starfsfólks og barna er undirstaða góðrar menntunar og er verkefni sem þarf að vera í stöðugri þróun.
-
Lagt fram rekstraruppgjör skóla- og frístundasviðs, janúar – mars 2026. SFS26080006
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 6. ágúst 2026 ásamt umsögn foreldraráðs Hagaborgar, dags. 10. ágúst 2026:
Lagt er til að skóla- og frístundaráð samþykki að loka leikskólanum Hagaborg tímabundið frá 1. september 2026 til 1. september 2028 eða eftir því sem framkvæmdum miðar og að húsnæði leikskólans við Fornhaga 8 er fullklárað. Í dag er leikskólinn staðsettur í húsnæði Grandaborgar og dvelja 80 börn í Hagaborg. Lagt er til að þau börn sem enn verða með vistun þann 1. september flytji yfir í Grandaborg frá þeim tíma. Starfsfólk Hagaborgar verður þá samhliða þessum breytingum að starfsfólki Grandaborgar.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS26080009
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn fagnar því að starfsfólk og nemendur Hagaborgar séu komin í nýuppgert húsnæði Grandaborgar. Besta mögulega niðurstaða þegar kemur að því að leysa húsnæðisvandamál leikskóla er að hægt sé að halda áfram starfsemi innan hverfis og í þessu tilfelli hefur það tekist.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga um skipan í valnefnd hvatningarverðlauna leikskóla- og daggæsluráðs:
Lagt er til að Sigrún Ásta Einarsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir verði skipaðar í valnefnd hvatningarverðlauna leikskóla- og daggæsluráðs.
Samþykkt. SFS26080038
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um samstarfssamning við Móðurmál, samtök um tvítyngi, um afnot af húsnæði. SFS23090177
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um samstarfssamning við Móðurmál, samtök um tvítyngi, vegna kennslu barna í móðurmáli þeirra. SFS23090177
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar meirihlutans leggja áherslu á mikilvægi þess að gerður verði nýr samningur við Móðurmál - samtök um tvítyngi fyrir skólaárið 2026-2027. Gjaldfrjáls móðurmálskennsla tryggir börnum jafnt aðgengi að kennslunni óháð efnahag fjölskyldna og styður við rétt þeirra til að viðhalda og efla eigið tungumál. Góð þekking á eigin móðurmáli er mikilvægur grunnur að virku tvítyngi, auknu læsi og farsælu námi í íslensku. Samningurinn gerir börnum jafnframt kleift að nýta frístundakortið til þátttöku í öðrum íþróttum og frístundum, sem er mikilvægur þáttur í félagslegri þátttöku þeirra og tengslum við samfélagið.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fagnað er áframhaldandi samstarfi við Móðurmál. Mikil þörf er á aukinni móðurmálskennslu en góður grunnur í móðurmáli getur haft veruleg áhrif á máltöku annars máls og hefur jafnframt ríkt fjölmenningargildi. Í samtölum við fólk með erlendan bakgrunn er komið á framfæri að foreldrar eiga erfitt með að finna móðurmálskennslu eða finna upplýsingar um hana. Í pallborðsumræðum á vegum W.O.M.E.N kom skýrt fram að aðgengi að móðurmálskennslu er takmarkað og að þjónustan nær ekki til allra sem þurfa á henni að halda. Reykjavíkurborg þarf að styðja enn frekar við þá mikilvægu þjónustu sem móðurmálskennsla er ásamt því að finna leiðir til að upplýsa foreldra um þjónustu sem stendur til boða.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 12. ágúst 2026, um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, tvö mál. SFS26060275
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi leikskóla- og daggæslumála. SFS26070078
-
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Hversu margir foreldrar hafa sótt um afslátt af leikskólagjöldum eftir að leikskólaleiðin tók gildi? Óskað er eftir sundurliðun niður á tekjuviðmið og sambúðarstöðu foreldra. Þá er óskað eftir upplýsingum um hver vistunartími barna er hjá foreldrum sem sækja um afslátt.
SFS26080064
Fundi slitið kl. 14:56
Sigrún Ásta Einarsdóttir Albert Guðmundsson
Björg Magnúsdóttir Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Silja Sóley Birgisdóttir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 17. ágúst 2026