Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa
Ár 2026, þriðjudaginn 11. ágúst kl. 09:10, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 1074. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12-14, 3. hæð, Gjáin. Fundinn sátu: Brynjar Þór Jónasson og Hjördís Sóley Sigurðardóttir. Eftirtaldir starfsmenn kynntu mál á fundinum: Helga Rún Guðmundsdóttir, Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir, Jarþrúður Iða Másdóttir, Birgitta Rut Skúlad. Hjörvar, Hrafnhildur Sverrisdóttir og Íris Reynisdóttir. Fundarritari var Margrét Þorvaldsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Bergstaðastræti 4 - USK25080048
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. nóvember 2025 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2025 þar sem sótt er um heimild til að breyta notkun íbúða 0201,202, 0301 og 0302 í hótelíbúðir á 2. og 3. hæð í verslunar og íbúðarhúsi, mhl.01, á lóð nr. 4 við Bergstaðastræti. Einnig var lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. nóvember 2025. Erindi er nú lagt fram að nýju ásamt leiðréttri umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Fylgigögn
-
Framkvæmdaleyfi - 01.366.601 / Engjateigur - USK26080012
Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 4. ágúst 2026, um framkvæmdaleyfi fyrir borun fjögurra nýrra vinnsluhola á lóð Veitna nr.2 við Engjateig, en reiturinn afmarkast af Kringlumýrarbraut til vesturs, Suðurlands-braut til suðurs og Engjateigi til norðausturs. Við útfærslu borteiga er gert ráð fyrir að hluti borhola verði staðsettur nokkra metra til vesturs utan núverandi lóðamarka til að lágmarka rask á trjágróðri sem þegar til staðar á reitnum. Gert er ráð fyrir að borholurnar verði boraðar hver á eftir annarri. Samkvæmt núverandi áætlun hefjast boranir á fyrstu holunni haustið 2026 og halda áfram yfir veturinn 2026–2027. Ef gera þarf hlé á borframkvæmdum verður gengið snyrtilega frá athafnasvæðinu á meðan, þ.e. vinnubúnaður fjarlægður og yfirborð athafnasvæðisins frágengið þannig að rask verði lítið áberandi. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025.
Fylgigögn
-
Grafarholt austur - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Marteinslaug 7 - USK26070127
Lögð fram fyrirspurn Veitna ohf., dags. 7. júlí 2026, um breytingu á deiliskipulagi Grafarholts austurs vegna lóðarinnar nr. 7 við Marteinslaug, sem felst í að afmarka nýja lóð undir smádreifistöð, samkvæmt skissu á yfirlitsmynd. Einnig er lögð fram skýringarmynd sem sýnir Emn smádreifistöð. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Vatnagarðar - Breyting á deiliskipulagi - USK26080101
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða. Lóð Veitna fyrir nýja dreifistöð er færð nokkra metra til austurs samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 5. ágúst 2026.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
-
Reykjavíkurflugvöllur - breyting á deiliskipulagi - Skilgreining nýrra lóða - USK25090065
Að lokinni auglýsingu er lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna skilgreiningu nýrra lóða við Nauthólsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreind er ný lóð, Nauthólsvegur 64-66, þar sem flugstjórnarmiðstöðin og spennistöð standa í dag. Auk þess er skilgreind lóð á reit Nauthólsvegar 56-60, Nauthólsvegur 58E. Áður skilgreindir byggingarreitir innan nýrrar lóðar 64-66 haldast óbreyttir og helst heildarbyggingarmagn á reitnum/nýrri lóð óbreytt, bæði ofan- og neðanjarðar. Reitarafmörkun fyrir Nauthólsveg 54 minnkar til samræmis og breytast nýtingarhlutföll vegna breyttra lóða/reitastærða. Á nýrri lóð að Nauthólsvegi nr. 58E verður heimilt að setja upp flugvallarbúnað þ.m.t. mastur allt að 30m hátt, skv. uppdr. T.ark arkitekta, dags. 13. ágúst 2025. Tillagan var í auglýsingu frá 2. október 2025 til og með 13. nóvember 2025. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands, dags. 21. nóvember 2025. Einnig barst ábending frá Veitum, dags. október 2025. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. nóvember 2025 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
-
Hólmsheiðarvegur 133 - (fsp) Nýtt deiliskipulag - USK26010074
Lögð fram fyrirspurn Karls Bernburg, dags. 6. janúar 2026, ásamt greinargerð, dags. 6. janúar 2026, um nýtt deiliskipulag vegna lóðar nr. 133 við Hólmsheiðarveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. dags. 11. ágúst 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Reynisvatn - Kayak aðstaða - Ósk um lóð - USK25110359
Lögð fram drög að minnisblaðið Menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkur, Útilífsborgarinnar, dags. 8. október 2025, þar sem óskað er eftir ca. 500 m2 lóð og allt að 100 m2 byggingareit við norðurenda Reynisvatns fyrir Kayak aðstöðu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Fylgigögn
-
Drekavogur 13 - (fsp) Fjölgun íbúða - USK26070097
Lögð fram fyrirspurn Hrefnu Ástmarsdóttur, dags. 6. júlí 2026, ásamt bréfi, ódags., um að fjölga íbúðum í húsinu á lóð nr. 13 við Drekavog. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Dugguvogur 19 (fsp) Breyting á notkun rýmis merkt 01 0114 - USK26050271
Lögð fram fyrirspurn Inga Gunnars Jóhannssonar, dags. 18. maí 2026, um breytingu á notkun rýmis merkt 01 0114, fasteignanúmer 251-2090, í hússins á lóð nr. 19 við Dugguvog úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Bauganes 40 - USK26060384
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. júlí 2026 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskýli og geymslu, mhl.02, við einbýlishús á lóð nr. 40 við Bauganes. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Fylgigögn
-
Brávallagata 8 - USK26060087
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. júní 2026 þar sem sótt er um leyfi til að setja svalir á austurhlið 1.-3. hæðar á fjölbýlishúsi á lóð nr. 8 við Brávallagötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 10:44
Brynjar Þór Jónasson Hjördís Sóley Sigurðardóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026