Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 13. ágúst var haldinn 194. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00.
Friðjón R. Friðjónsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Stefán Pálsson, Regína Ásvaldsdóttir og Safa Jemai sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Jón Páll Hilmarsson starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26070401 dags. 31. júlí 2026 varðandi útboð 16328 Vogabyggð 1. Strandstígur – Gatna og stígagerð, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda PK verk ehf.
Samþykkt.Guðni Guðmundsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs merkt FAS26050025 dags. 10. ágúst 2026 varðandi útboð 16317 – Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Reykjavík 2026 -2027, þar sem lagt er til Innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Garðaþjónustu Sigurjóns ehf. í útboðshluta 1 og 3, að öllum tilboðum verði hafnað í útboðshluta 2 og að samið verði við alla bjóðendur í útboðshluta 4.
Samþykkt.Karl Eðvaldsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:39
Friðjón R. Friðjónsson Regína Ásvaldsdóttir
Stefán Pálsson Sigrún Ásta Einarsdóttir
Safa Jemai
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 13. ágúst 2026