Innkaupa- og framkvæmdaráð - og framkvæmdaráð þriðjudaginn 28. júlí 2026 nr. 193

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, þriðjudaginn 28. júlí var haldinn 193. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:04. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Friðjón R. Friðjónsson, Björn Gíslason, Steinunn Guðjónsdóttir og Safa Jemai. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Theodór Kjartansson starfsmaður borgarlögmanns. Hallgrímur Tómasson starfsmaður skrifstofu fjármálaþjónustu og ráðgjafar sat einnig fundinn. Fundarritari var Helena Rós Sigmarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs merkt FAS26040015 dags. 27. júlí 2026 varðandi EES útboð 16297 Þjónusta við hitakerfi í götum og gangstéttum Reykjavíkurborgar þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Rafvirki og Pípari ehf.

    Samþykkt.

    Kristján Hallvarðsson og Auðunn Ólafsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:15

Friðjón R. Friðjónsson Björn Gíslason

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Safa Jemai

PDF útgáfa fundargerðar
Innkaupa- og framkvæmdaráð 28.07.2026 - prentvæn útgáfa