Vegglist lífgar upp á uppbyggingarsvæðið á Ártúnshöfða

Sumarlegt vegglistaverk við Breiðhöfða
Sumarlegt vegglistaverk á Breiðhöfða

Vegfarendur um Ártúnshöfða hafa margir hverjir tekið eftir nýjum og litskrúðugum myndum sem prýða húsalengju við Breiðhöfða. Listamaðurinn Narfi Þorsteinsson vinnur þessa dagana að umfangsmikilli vegglist á svæðinu.

 

Narfi er þekktur fyrir myndlist og vegglistaverk og meðal verka sem hann hefur unnið er hús Myndlistarskólans í Reykjavík á horni Rauðarárstígs og Laugavegar. Í verkum sínum vinnur hann gjarnan með mynstur, form og endurtekningar og hefur haldið fjölda sýninga hérlendis og erlendis. Vegglistaverkið við Breiðhöfða er samstarfsverkefni Narfa og Stefáns Óla Baldurssonar, vegglistamanns, og bætist þetta verk við fjölmörg verk þeirra félaga í borgarrýminu og setur sterkan og litríkan svip á svæðið á meðan uppbygging nýs hverfis stendur yfir.

Félagarnir Narfi og Stefán Óli við vinnu sína.
Félagarnir Narfi og Stefán Óli við vinnu sína.

Verk sem glæðir svæðið lífi

Verkið er unnið að frumkvæði Klasa og er hugmyndin að lífga upp á svæðið á meðan uppbygging nýs hverfis stendur yfir. Á Ártúnshöfða eru miklar breytingar fram undan með uppbyggingu íbúða, atvinnuhúsnæðis og þjónustu, og listaverkið er liður í því að skapa aðlaðandi og lifandi umhverfi á framkvæmdatímanum fyrir íbúa, starfsfólk fyrirtækja á svæðinu og aðra vegfarendur sem eiga leið um Breiðhöfða.

Fuglar, fíflar og sumar á veggjalistinni á Breiðhöfða
Fuglar, fíflar og sumar á veggjalistinni á Breiðhöfða