Borgarráð - Borgarráð fimmtudaginn 16. júlí 2026 nr. 5830

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 16. júlí, var haldinn 5830. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:03. Viðstödd voru, auk Þorsteins Gunnarssonar staðgengils borgarstjóra, Björg Magnúsdóttir, Albert Guðmundsson, Ari Edwald, Guðný María Jóhannsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Stein Olav Romslo. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Stefán Pálsson og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram og Hulda Hólmkelsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 2. júlí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 1. júlí 2026 á aðgerðaáætlun gegn hávaða, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK24090025

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að huga vel að hljóðvist í borgarlandinu og grípa til aðgerða til að draga úr hljóðmengun. Hér er um að ræða ófjármagnaða aðgerðaáætlun og því mikilvægt að taka til skoðunar við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna kortlagningu hljóðvistar, enda eru hljóðvist og loftgæði meðal stærstu lýðheilsumála í nútímalegri mannlífsborg. Kortlagningin sýnir að einkabíllinn, hraði og nagladekk ásamt Reykjavíkurflugvelli eru fílarnir í herberginu; um 22.600 íbúar búa við óviðunandi hávaða og rúmlega 2.500 við beint heilsubrestsástand yfir 65 dB. Stöðugur hávaði og svifryksmengun ræna fólk lífsgæðum og valda ótímabærum dauðsföllum á hverju ári. Við áttum okkur á að þetta er arfleifð fortíðar, en við þurfum að sýna þor og breyta forgangsröðuninni. Það er óásættanlegt að hunsa ákall íbúa og vísa á lausnir eftir áratug. Skýrsla borgarinnar staðfestir að hraðalækkun um 10-20 km/klst., fækkun nagladekkja og hljóðveggir skila tafarlausum árangri og því á að grípa til þeirra strax. Setja verður heilsu og öryggi borgarbúa í fyrsta sæti og ekki síst á lóðum leik- og grunnskóla. Það er okkar hlutverk.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands þakkar fyrir upplýsandi kynningu um hljóðvist í borgarlandinu. Kortlagningin var framkvæmd árið 2022 en síðan þá hefur umferðarþungi aukist. Við gerð fjárhagsáætlunar er hvatt til þess að gera ráð fyrir mótvægisaðgerðum gegn hávaða sérstaklega í þeim sex skólum sem verða fyrir óviðunandi hávaða (yfir 55 dB) auk úthlutun styrkja til þeirra íbúa sem búa við hljóðstig yfir 65 dB við húsvegg líkt og veitt var milli 1997-2023. Nauðsynlegt er að ráðast tafarlaust í aðgerðir til að draga úr myndun hávaða eins og kostur er. Þetta er einkum mikilvægt í ljósi þeirra umfangsmiklu samgönguframkvæmda sem munu eiga sér stað í Reykjavík á komandi árum. Hljóðvist er lýðheilsumál og velferð fólks verður ávallt að vera í forgangi.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 2. júlí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 1. júlí 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Norðurstígsreits vegna lóðarinnar 7 við Ægisgötu, ásamt fylgiskjölum.
    Frestað.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir og Hjördís Sóley Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK24090343

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. júlí 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við nýjan sparkvöll á Landakotstúni, ásamt fylgiskjölum.
    Kostnaðaráætlun er 70 m.kr.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK24020085

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Landakotsskóli hefur um árabil leitað leiða til þess að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar í nágrenni skólans og meirihlutinn vill mæta þeim óskum. Á sama tíma þarf að huga að ásýnd og útfærslu á þessum fallega og sögulega reit á Landakotstúni. Meirihlutinn vísar því fram kominni tillögu frá umhverfis- og skipulagssviði um sparkvöll til baka og biður um að farið verði í hóflegri útfærslu, bætt verði í gróður til mildandi áhrifa, skoðað verði að lækka girðingar og hafa völlinn í sömu stærð og hefðbundnir vellir í borginni. Með því verði áhyggjum íbúa í grendinni mætt, sem einnig nýta Landakotstún. Þegar sú útfærsla er tilbúin verður málið unnið hratt og örugglega.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar styðja nemendur og starfsfólk Landakotsskóla í að bæta aðstöðu skólans fyrir íþróttaiðkun. Nauðsynlegt er að völlurinn verði upphitaður þannig að hann verði aðgengilegur allan ársins hring. Það er löngu tímabært að þessi völlur komi til framkvæmda eftir hátt í áratug í vinnslu. Á fyrri stigum hefur einnig verið rætt um endurnýjun leiksvæðisins á Landakotstúni og telur Samfylkingin það vera góða nýtingu á tíma og fjármunum að gera það á sama tíma og sparkvöllurinn verður settur upp. Mikilvægt er einnig að taka tillit til sjónarmiða nágranna um bestu útfærslu sparkvallarins og leiksvæðisins svo að Landakotstún verði áfram griðastaður fyrir fjölbreytta afþreyingu í gamla Vesturbæ.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, sbr. samþykkt borgarráðs sama dag að vísa til síðari umræðu drögum að breyttum samþykktum fyrir heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. HER26010001

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn fagnar því að lögð sé fram endurskoðuð samþykkt fyrir heilbrigðisnefnd Reykjavíkur sem skýrir hlutverk, ábyrgð og verkaskiptingu nefndarinnar og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í samræmi við gildandi lög og stjórnskipulag borgarinnar. Mikilvægt er að stjórnsýsla borgarinnar sé skýr, skilvirk og gagnsæ og að ábyrgð og heimildir séu afmarkaðar með ótvíræðum hætti. Um næstu áramót eru fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þar sem stefnt er að því að heilbrigðisnefndir verði lagðar niður og verkefni þeirra að hluta til færð til Umhverfis- og orkustofnunar. Reykjavíkurborg mun fylgjast náið með framgangi málsins á þinginu og bregðast við eftir atvikum með skilvirkni og góða þjónustu í fyrirrúmi.

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um málefni kaffistofu Samhjálpar.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26070212

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að Reykjavík sé borg fyrir alla. Mikilvægt er að félagasamtök á borð við Samhjálp geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu við að styðja fólk sem stendur höllum fæti og veita nauðsynlega þjónustu af virðingu og mannúð. Þjónusta Samhjálpar er ætluð þeim sem eru í neyð og hafa ekki tök á því að sjá sér fyrir mat sjálfir og þannig gríðarlega samfélagslega mikilvæg. Borginni ber að tryggja að slík uppbygging sé í samræmi við lög, skipulagsreglur og með virku og jákvæðu samtali við nærumhverfið. Meirihlutinn leggur áherslu á að finna kaffistofu Samhjálpar nýjan stað í borginni í sátt og samstarfi við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila þannig að þjónustan sé aðgengileg þeim sem hana sækja. Miklu máli skiptir að starfsemi Kaffistofu Samhjálpar sé öflug í borginni og fái varanlega aðstöðu til framtíðar um leið og tekið er fullt tillit til skipulagslegra sjónarmiða, lögbundinnar málsmeðferðar og sjónarmiða íbúa. Traust, vandaður undirbúningur og gagnkvæmt samtal eru lykillinn að lausn fyrir þá sem þurfa á þjónustunni að halda og borgarbúum öllum. Að því mun meirihlutinn vinna.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samfylkingin hvetur til þess að fundin verði farsæl framtíðarlausn fyrir kaffistofu Samhjálpar en jafnframt að starfsemi hennar verði tryggð strax í ágúst þegar leigusamningur við Fíladelfíu rennur út. Það yrði alvarlegt ef þjónustan myndi falla niður því þjónusta Samhjálpar sinnir algjörum grunnþörfum í lífi fólks í mjög viðkvæmri stöðu og má undir engum kringumstæðum vera skert til skemmri eða lengri tíma. Leita verður allra leiða til að tryggja að svo verði ekki.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Vinstrisins lýsir þungum áhyggjum yfir þeirri stöðu sem upp er komin varðandi Kaffistofu Samhjálpar. Afar brýnt er að ekki verði þjónusturof varðandi þessa mikilvægu starfsemi sem kaffistofan sinnir. Úrskurður kærunefndar sem sett hefur málið í uppnám virðist byggður á hæpnum forsendum og getur haft slæmt fordæmisgildi fyrir skipulagsheimildir sveitarfélaga.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir að beiðni minnihlutans um að fá uppfærslu á stöðu kaffistofu Samhjálpar var tekin fyrir á þessum fundi. Ánægjulegt er að sjá að það sé verið að vinna hörðum höndum að því að finna lausn í þessu flókna máli en leitt er að ekki hafi fundist haldbær lausn á þessum tímapunkti og engar neyðarráðstafanir fyrir starfsemina til að tryggja að ekki verði þjónusturof. Mikil vonbrigði er að ekki sé verið að athuga lausnir sem snúa að Grensásvegi 46. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands ítrekar að tryggja þarf ríkt samráð og upplýsingagjöf til Samhjálpar sem er nú í miklu óvissuástandi um hvað verður um Kaffistofuna núna í ágúst og nauðsynlegt er að tryggja að ekki verði rof á þjónustunni sem hún veitir.

  6. Lagt fram trúnaðarmerkt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar-maí 2026, dags. í dag.

    Halldóra Káradóttir, Jónas Skúlason, Erik Tryggvi Striz Bjarnason og Hörður Hilmarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26050026

  7. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. í dag, varðandi forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og fimm ára áætlunar 2027-2031.

    Halldóra Káradóttir, Jónas Skúlason, Erik Tryggvi Striz Bjarnason og Hörður Hilmarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26010019

    Fylgigögn

  8. Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. í dag, að fjárhagsrömmum fyrir árið 2027. Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Halldóra Káradóttir, Jónas Skúlason, Erik Tryggvi Striz Bjarnason og Hörður Hilmarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26010019

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn tók við afar slæmri fjárhagsstöðu og hefur þegar byrjað á brýnum aðgerðum og hagræðingum til þess að mæta milljarða hallarekstri hjá Reykjavíkurborg. Ljóst er að mikið verk er framundan við að ná markmiðum um sjálfbær fjármál borgarinnar og góða þjónustu við borgarbúa. Úthlutun ramma til sviðanna fyrir næsta starfsár litast bæði af bágri stöðu fjármála borgarinnar og ástandi á markaði og í heiminum, átökum og krefjandi vaxtaumhverfi. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur mikla áherslu á að Reykjavíkurborg fari vel með almannafé og tryggi að fjármunir borgarbúa nýtist sem best til að standa undir öflugri þjónustu og sjálfbærum rekstri.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lýsa yfir áhyggjum af því að rammaúthlutun muni fela í sér niðurskurð á þjónustu við borgarbúa en ítrekað kemur fram að skoða þurfi breytingar á mönnun og þjónustustigi m.a. í skólum, leikskólum og velferðarþjónustu. Jafnframt er mikilvægt er að tryggja aðkomu fagráða að forgangsröðun sviða en tímaramminn sem er gefinn tekur ekki tillit til fundadagatala þeirra. Þá er erfitt að sjá hvernig 4% hækkun á almennum gjaldskrám samræmist því að borgin geri sitt til að halda verðbólgu niðri.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Meirihlutinn ítrekar að staðinn verður vörður um grunnþjónustu við borgarbúa. Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á að fjármunum verði beint að þeim verkefnum sem skipta borgarbúa mestu máli, þar á meðal fjölgun dagvistunarplássa, öflugri þjónustu fyrir eldri borgara, bættri þjónustu við börn og fjölskyldur, aukinni skilvirkni í skipulags- og byggingarmálum og markvissri uppbyggingu og viðhaldi innviða. Jafnframt verður unnið að einfaldara og skilvirkara stjórnkerfi þar sem árangur, ábyrgð og kostnaðareftirlit eru höfð að leiðarljósi. Fagráð munu taka þátt í fjárhagsáætlun sinna sviða og verða boðaðir aukafundir eftir því sem við á.

    Fylgigögn

  9. Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. í dag, að viðaukum við fjárhagsáætlun 2026. Greinargerðir fylgja tillögunum.
    Samþykkt.

    Málið er fullnaðarafgreitt á vettvangi með borgarráðs með vísan til 4. mgr. 46. gr. sbr. 4. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir, Jónas Skúlason, Erik Tryggvi Striz Bjarnason og Hörður Hilmarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26010020

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 9. júlí 2026, þar sem óskað er eftir að sviðsstjóra verði heimilað að gera samning við Móðurmál – samtök um tvítyngi um afnot af húsnæði, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS23090177

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar meirihlutans leggja áherslu á mikilvægi þess að gerður verði nýr samningur við Móðurmál - samtök um tvítyngi fyrir skólaárið 2026-2027. Gjaldfrjáls móðurmálskennsla tryggir börnum jafnt aðgengi að kennslunni óháð efnahag fjölskyldna og styður við rétt þeirra til að viðhalda og efla eigið tungumál. Góð þekking á eigin móðurmáli er mikilvægur grunnur að virku tvítyngi, auknu læsi og farsælu námi í íslensku. Samningurinn gerir börnum jafnframt kleift að nýta frístundakortið til þátttöku í öðrum íþróttum og frístundum, sem er mikilvægur þáttur í félagslegri þátttöku þeirra og tengslum við samfélagið.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 9. júlí 2026, þar sem óskað er eftir að sviðsstjóra verði heimilað að gera samning við Móðurmál – samtök um tvítyngi vegna kennslu barna í móðurmáli þeirra, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS23090177

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar meirihlutans leggja áherslu á mikilvægi þess að gerður verði nýr samningur við Móðurmál – samtök um tvítyngi, fyrir skólaárið 2026-2027. Gjaldfrjáls móðurmálskennsla tryggir börnum jafnt aðgengi að kennslunni óháð efnahag fjölskyldna og styður við rétt þeirra til að viðhalda og efla eigið tungumál. Góð þekking á eigin móðurmáli er mikilvægur grunnur að virku tvítyngi, auknu læsi og farsælu námi í íslensku. Samningurinn gerir börnum jafnframt kleift að nýta frístundakortið til þátttöku í öðrum íþróttum og frístundum, sem er mikilvægur þáttur í félagslegri þátttöku þeirra og tengslum við samfélagið.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fagnað er að halda áfram samstarfi við Móðurmál. Mikil þörf er á aukinni móðurmálskennslu en góður grunnur í móðurmáli getur haft veruleg áhrif á máltöku annars máls og hefur jafnframt ríkt fjölmenningargildi. Í samtölum við fólk með erlendan bakgrunn er því komið á framfæri að foreldrar eiga erfitt með að finna móðurmálskennslu eða finna upplýsingar um hana. Í pallborðsumræðum á vegum W.O.M.E.N kom skýrt fram að aðgengi að móðurmálskennslu er takmarkað og að þjónustan nær ekki til allra sem þurfa á henni að halda. Reykjavíkurborg þarf að styðja enn frekar við þá mikilvægu þjónustu sem móðurmálskennsla er ásamt því að finna leiðir til að upplýsa foreldra um þjónustu sem stendur til boða.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. júlí 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki þrjár tillögur KPMG til úrbóta til að styrkja stöðu persónuverndar hjá Reykjavíkurborg, í fyrsta lagi að efla hlutverk og ábyrgð, í öðru lagi að efla samræmingu og eflingu gæðamála og í þriðja lagi að stuðla að vitundarvakningu um persónuvernd í allri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Enginn kostnaður felst í tillögunum. Persónuverndarfulltrúa Reykjavíkurborgar verði falin innleiðing tillagnanna.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26050007

    Fylgigögn

  13. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. júlí 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að ráðast í kortlagningu og rýni á eignasafni Reykjavíkurborgar, með það fyrir augum að meta hvaða eignir mætti selja og hvaða eignir mætti hagnýta betur. Umhverfis- og skipulagssviði verði falið að framkvæma úttektina.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26070026

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Einn liður í meirihlutasáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar er að taka utan um eignasafn borgarinnar með markvissari hætti en kortlagning og rýni á eignasafninu er liður í því. Tilgangurinn er annars vegar sá að meta hvaða húsnæði mætti selja en hins vegar sá að meta hvort nýta megi eignir borgarinnar betur í þágu lögbundinnar þjónustu, starfsemi með börnum og ungmennum í viðkvæmri stöðu eða skapandi greina.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja að ráðist verði í heildstæða kortlagningu á eignasafni Reykjavíkurborgar, enda er vönduð yfirsýn grunnur að ábyrgri fjármálastjórn. Það er sömuleiðis fagnaðarefni að rýnt verði sérstaklega hvernig hagnýta megi eignir borgarinnar enn betur í þágu skapandi greina og starfsemi með börnum og ungmennum.Samfylkingin leggur hins vegar ríka áherslu á að þessi úttekt verði ekki nýtt sem undirbúningur undir fljótfærar eða hugmyndafræðilegar eignasölur. Reynsla annarra sveitarfélaga sýnir að það að selja samfélagslega innviði til þess eins að leigja þá aftur af einkaaðilum reynist oft dýr og skammsýn hagstjórn þegar uppi er staðið.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fagnað er að farið verði í kortlagningu á eignasafni Reykjavíkurborgar. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands bendir á fyrirspurn fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 1. júlí þar sem beðið er um upplýsingar um auð og ónotuð húsnæði borgarinnar og á það sérstaklega vel við samhliða kortlagningu á eignasafni borgarinnar. Til að kortlagningin gefi upplýsandi gögn er nauðsynlegt að athuga samhliða hvaða starfsemi á sér stað í hverri eign. Mikil vöntun er á íbúðarhúsnæði fyrir Félagsbústaði, aðstöðu fyrir listamenn, þriðju rými fyrir almenning og lengi mætti telja. Besta hagræðingin er ekki ávallt sala eigna heldur skilvirk notkun og stuðningur við starf sem hefur samfélagslegt gildi.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað borgarlögmanns, dags. 13. júlí 2026, um málaferli sem Reykjavíkurborg á aðild að. MSS26010143

  15. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 13. júlí 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki skipan 25 hverfiskjörstjórna, ásamt fylgiskjölum. Auk þess er óskað eftir að borgarráð samþykki að fela borgarstjóra að skipa í hverfiskjörstjórnir í stað þeirra sem kunna að forfallast.
    Samþykkt. MSS26030033

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 13. júlí 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþyki tillögu um skipan fulltrúa í undirkjörstjórnir, ásamt fylgiskjölum. Auk þess er óskað eftir að borgarráð samþykki að fela borgarstjóra að skipa í undirkjörstjórnir í stað þeirra sem kunna að forfallast.
    Samþykkt. MSS26030033

    Fylgigögn

  17. Lagt fram þriggja mánaða uppgjöf þjónustu og nýsköpunarsviðs fyrir janúar-mars 2026, dags. 10. júlí 2026. ÞON26070006

    Fylgigögn

  18. Lagt fram svar borgarstjóra, dags. 13. júlí 2026, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um hagræðingar- og breytingatillögur á stjórnskipulagi skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, sbr. 44. lið fundargerðar borgarráðs frá 2. júlí 2026. MSS26070006

    Fylgigögn

  19. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um framtíðarskipulag heilbrigðiseftirlits á höfuðborgarsvæðinu:

    Fulltrúi Vinstrisins leggur til að borgarstjóra verði falið að hefja viðræður við nágrannasveitarfélögin um stofnun sameiginlegrar skrifstofu eða embættis fyrir allt höfuðborgarsvæðið sem gæti tekið að sér að halda utan um og sinna þeim málaflokkum gamla heilbrigðiseftirlitsins sem ekki munu færast undir Umhverfis- og orkustofnun.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsviðs. MSS26070035

    Fylgigögn

  20. Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 1. júlí 2026. MSS26010012

     

    Fylgigögn

  21. Lögð fram fundargerð öldungaráðs frá 1. júlí 2026. MSS26070008

    Fylgigögn

  22. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 2. og 9. júlí 2026. MSS26010008

    Fylgigögn

  23. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls sex mál (MSS26010013, MSS26050072, MSS26010006, MSS26070020, MSS26070010, MSS26070009, MSS26070005, MSS26070027). MSS26060178

    Fylgigögn

  24. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26060129

    Fylgigögn

  25. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í nýsamþykktri aðgerðaáætlun Reykjavíkurbogar gegn hávaða kemur fram að hluti leik- og grunnskóla verða fyrir hávaða yfir 55dB. Óskað er upplýsinga um það hvaða skólar þetta eru og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar. MSS26070048

  26. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er upplýsinga um fjölda gististaða innan við 500 m radíus frá Ægisgötu 7 og hver var herbergjanýting þeirra árið 2025. MSS26070049

  27. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hversu mörg börn sækja í þjónustuna sem Móðurmál býður upp á, skipt eftir aldri, tungumáli og skóla? Eru börn af erlendum uppruna að sækja þjónustuna jafnt milli skóla miðað við hlutfall barna af erlendum uppruna í hverjum skóla? Hvaða skólar eru búnir að fá kynningu frá skóla- og frístundasviði um starfsemi Móðurmáls, hvernig fer sú kynning fram og með hve miklu millibili? Er hægt að fá aðgengi að greinargerðinni sem samtökin skiluðu á síðasta ári til skóla- og frístundasviðs? MSS26070050

  28. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
    Hvers vegna var rekstarsamningur við íþróttafélagið Aþenu ekki endurnýjaður og hvers vegna hefur ekki verið gefið út leyfi til að gera aðstöðu fyrir fundar- og kennslurými? MSS26070051

  29. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í tengslum við nýafstaðnar skipulagsbreytingar og hópuppsagnir á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, þar sem tilkynnt var að spara ætti 280 til 320 milljónir króna árlega, er óskað eftir svörum við eftirfarandi spurningum til að varpa ljósi á raunveruleg fjárhagsleg og fagleg áhrif aðgerðanna: 1. Hvað er fækkað um mörg stöðugildi? Greint hefur verið frá því að 18 starfsmönnum hafi verið sagt upp, en að fyrirhugað sé að ráða í 6 til 7 ný störf á skrifstofunni. Er það rétt að nettófækkun starfsmanna sé einungis 11 til 12 manns þegar upp er staðið, og ef svo er, hvernig gengur það reikningsdæmi upp við boðaðan 280 til 320 milljóna króna árlegan sparnað? 2. Hver er áætlaður kostnaður við útvistun? Meirihlutinn hefur boðað að tilteknum verkefnum skrifstofunnar verði útvistað til einkaaðila. Hvaða verkefni eru þetta, hvaða fjárhæðir er áætlað að greiða í verktakakostnað vegna þeirra á ári og hefur sá kostnaður verið dreginn frá yfirlýstum sparnaði? 3. Hver er raunkostnaður vegna uppsagnarfrests? Hver er áætlaður heildarkostnaður Reykjavíkurborgar vegna launa á uppsagnarfresti þeirra starfsmanna sem sagt var upp, og hvenær munu yfirlýstir sparnaðarliðir raunverulega byrja að koma fram í bókhaldinu?  MSS26070006

Fundi slitið kl. 11:00

Björg Magnúsdóttir Albert Guðmundsson

Ari Edwald Guðný María Jóhannsdóttir

Magnea Gná Jóhannsdóttir Stein Olav Romslo

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 16.07.2026 - prentvæn útgáfa