Viltu taka þátt í dagskrá Menningarnætur 2026
Menningarnótt er þátttökuhátíð og þau sem vilja vera með viðburð og taka þannig þátt í hátíðinni er velkomið skrá sig til leiks. Frestur til að skrá viðburði er til og með 10. ágúst næstkomandi.
Menningarnótt, stærsta afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur, verður haldin laugardaginn 22. ágúst 2026. Segja má að hátíðin sé hápunktur sumarsins og skemmtilegir viðburðir lita mannlífið í miðborginni frá morgni til kvölds. Hátíðin er fyrir alla borgarbúa og gesti sem vilja taka þátt og skemmta sér.
Viltu taka þátt í Menningarnótt?
Menningarnótt er þátttökuhátíð og þau sem vilja vera með viðburð og taka þannig þátt í hátíðinni er velkomið skrá sig til leiks. Hátíðarsvæðið nær yfir miðborgina, að Lönguhlíð í Austurbænum, að Hagatorgi í Vesturbænum og teygir sig út á Granda.