Innkaupa- og framkvæmdaráð - og framkvæmdaráð fimmtudaginn 09. júlí 2026 nr. 192

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 9. júlí var haldinn 192. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:03. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:  Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. 

Friðjón R. Friðjónsson, Björn Gíslason, Regína Ásvaldsdóttir og Safa Jemai sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Dagmar Arnardóttir starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Helena Rós Sigmarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram erindi Skóla- og frístundasviðs merkt FAS25090025 dags. 2. júlí 2026 varðandi EES útboð 16209 Ræsting fyrir grunnskola Reykjavíkurborgar þar sem lagt er til að tilboði lægstbjóðanda í hverjum hluta, þ.e við: Daga hf. í hluta 1, 2 og 3 og Sólar ehf. í hluta 4.

    Samþykkt.

    Haukur Þór Haraldsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingar og Vinstrisins:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins í innkauparáði samþykkja fyrirliggjandi tilboð í ræstingu á skólahúsnæði borgarinnar enda fjallað um ábyrgð seljenda á að framfylgja gildandi kjarasamningum gagnvart starfsfólki og skyldu seljenda til að vinna að því að á samningstíma sé starfandi trúnaðarmaður starfsfólks í ræstingu, sbr. liði nr. 1.11 og 1.11.1 í útboðsskilmálum. Óskað er eftir því að lögð verði fram áætlun í innkauparáði innan eins árs frá gildistöku samningsins um hvernig eftirliti með framfylgd þessara liða í útboðslýsingunni verði háttað. Þá leggja fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins áherslu á að þeim starfsmönnum sem óska eftir, verði boðin störf hjá nýjum rekstraraðila. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:39

Friðjón R. Friðjónsson Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Björn Gíslason Regína Ásvaldsdóttir

Safa Jemai

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 9. júlí 2026 - Prentvæn útgáfa