Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 2. júlí var haldinn 191. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:06. Friðjón R. Friðjónsson, Björn Gíslason, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Regína Ástvaldsdóttir og Safa Jemai sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Björn Atli Davíðsson starfsmaður borgarlögmanns. Helena Rós Sigmarsdóttir starfsmaður skrifstofu fjármálaþjónustu og ráðgjafar var einnig viðstödd fundinn. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26020362 dags. 19. júní 2026 varðandi útboð 16279 Hlemmur norður og borgarlína um Hlemm, gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur, þar sem lagt er til að hafnað verði öllum tilboðum.
Samþykkt.Margrét Lilja Gunnarsdóttir og Rúnar Gísli Valdimarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26020362 dags. 29. júní 2026 varðandi útboð 16279 Hlemmur norður og borgarlína um Hlemm, gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur, þar sem óskað er eftir heimild til að ganga til samninga á grundvelli samningskaupa skv. a. lið 39. gr. laga um opinber innkaup.
Samþykkt.Margrét Lilja Gunnarsdóttir og Rúnar Gísli Valdimarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssvið merkt USK26040379 dags. 26. júní 2026 varðandi EES útboð 16258 Borgarlýsing – Stýrikerfi – Skápastýringar, þar sem lagt er til að gengið verði að lægsta gilda tilboði, frá Rafal ehf.
Samþykkt.Rúnar Gísli Valdimarsson og Ársæll Jóhannsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:39
Friðjón R. Friðjónsson Björn Gíslason
Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir Regína Ásvaldsdóttir
Safa Jemai
PDF útgáfa fundargerðar
Innkaupa- og framkvæmdaráð 2.7.26 - prentvæn útgáfa