Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 2. júlí, var haldinn 5829. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:03. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Björg Magnúsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram og Hulda Hólmkelsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. júní 2026, varðandi kynningu á aðalskipulagi Reykjavíkur varðandi þróun hringrásargarðs á Álfsnesi, þróunaráætlun og sviðsmyndir um þróun landnotkunar, ásamt fylgiskjölum.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir kynningu á stöðu þróunar hringrásargarðs á Álfsnesi, þróunaráætlun svæðisins og þeim sviðsmyndum um framtíðarlandnotkun sem kynntar voru á fundinum. Ljóst er að um er að ræða eitt mikilvægasta þróunarsvæði Reykjavíkur til framtíðar þegar kemur að atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun. Veruleg tækifæri felast í að efla nýsköpun, auðlindanýtingu og fjölbreytta atvinnustarfsemi á svæðinu til hagsbóta fyrir Reykjavík og höfuðborgarsvæðið allt. Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á að framtíðarþróun Álfsness og annarrar atvinnustarfsemi í austurhluta borgarinnar er nátengd uppbyggingu öflugra samgönguinnviða. Sundabraut er lykilforsenda áframhaldandi atvinnuuppbyggingar í Reykjavík og mun gjörbreyta aðgengi að svæðinu, styrkja tengingar við hafnar- og atvinnusvæði borgarinnar, bæta flutningsleiðir um höfuðborgarsvæðið og opna möguleika á skipulagningu íbúabyggðar á svæðinu. Í ljósi þess er fullt tilefni til að hvetja ríkisvaldið til að halda áfram af fullum þunga við undirbúning og framkvæmd Sundabrautar með hagsmuni Reykvíkinga í huga enda er verkefnið ekki aðeins mikilvægt samgöngumál heldur einnig eitt mikilvægasta atvinnu og þróunarmál Reykjavíkur til framtíðar.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Haraldi Sigurðssyni sem tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. USK24060310
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. júní 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 24. júní 2026 á kynningu á lýsingu á aðalskipulagi í samræmi við 1.-2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Haraldi Sigurðssyni sem tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. USK26060293
Borgarráð ásamt áheyrnarfulltrúum leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarráð styður að áfram verði unnið að skipulagsgerð og aðalskipulagsbreytingu fyrir nýtt geðsvið Landspítala og telur mikilvægt að geðþjónusta Landspítala fái nútímalega aðstöðu í grænu og batamiðuðu umhverfi, í samræmi við markmið lýsingarinnar. Mikilvægt er að mörkuð verði heildræn sýn um framtíðaruppbyggingu lóðarinnar í heild og að gætt verði að áhrifum á nærliggjandi byggð og ásýnd Borgarspítalans. Brýnt er að deiliskipulagsferlið taki mið af gögnum, tryggi hljóðvist og samráð við íbúa hverfisins. Borgarráð áréttar að með fyrirhugaðri breytingu er horfið frá fyrri áformum um íbúðauppbyggingu á hluta Borgarspítalareitsins sem byggðu á fyrri samningum og viljayfirlýsingum milli ríkisins og Reykjavíkurborgar. Mikilvægt er því að áður en endanleg tillaga að aðalskipulagsbreytingu verður lögð fram liggi fyrir samningur milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um afnot og úthlutun landsins til Landspítala, auk skýrrar niðurstöðu um hvernig brugðist verði við þeirri húsnæðisuppbyggingu sem fellur niður vegna breytingarinnar.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. júní 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 24. júní 2026 á auglýsingu á tillögu um breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar-Ármúla vegna lóðar nr. 18 við Suðurlandsbraut, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25080113
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. júní 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 24. júní 2026 á auglýsingu á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Sætún II á Kjalarnesi, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26060025
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. júní 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 24. júní 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Fossvogsbletts 2 og 2A, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26050052
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Í áraraðir hefur verið mikil vöntun á leikskólaplássum víða um borg og þétting byggðar í Fossvogi síðustu ár hefur aukið enn frekar þörfina fyrir nýjan leikskóla. Þessi staðsetning er einstök enda gróðursæl og vel tengd útivistarsvæðum sem skapa börnum fjölbreytt og heilnæmt umhverfi til leiks og náms. Meirihlutinn fagnar því að unnið sé að uppbyggingu leikskóla á svæðinu og að með breytingunni verði hægt að fjölga leikskólaplássum úr 150 í allt að 200. Um leið er mikilvægt að tryggja að framkvæmdin taki fullt mið af umferðaröryggi og aðkomu að svæðinu. Samgöngumat bendir á ýmis atriði sem rétt er að fylgja eftir, meðal annars varðandi hraðastjórnun, sýnileika við inn- og útkeyrslur og öruggar göngu- og hjólaleiðir. Með því má tryggja að leikskólinn verði ekki aðeins mikilvæg viðbót við þjónustu borgarinnar heldur einnig öruggur og vandaður staður fyrir börn, foreldra og starfsfólk.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja uppbyggingu leikskóla á Fossvogsbletti 2-2A en lýsa þungum áhyggjum af því að tillagan gerir ráð fyrir 200 börnum án þess að umferðarskipulag mæti þeim raunveruleika. Við teljum áhyggjur nágranna eiga rétt á sér. Skýr krafa er gerð um að áætlanir um framfylgd tilmæla öryggisrýni liggi fyrir áður en deiliskipulagið verður staðfest. Tryggja þarf fjölgun hraðahindrana, einstefnu um stúta bílastæða og algjört bann við bifreiðastöðum í götukanti meðfram lóðinni og við gatnamót til að vernda sjónlínur og öryggi gangandi barna.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. júní 2026, sbr. synjun umhverfis- og skipulagsráðs frá 24. júní 2026 á nýju deiliskipulagi fyrir göturými Suðurlandsbrautar frá gatnamótum við Skeiðarvog og til vesturs að gatnamótum við Lágmúla, ásamt fylgiskjölum.
Synjun umhverfis- og skipulagsráðs er staðfest.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24090201
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar harma að tillaga að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar hafi verið felld. Með því er bráðnauðsynlegum samgöngubótum stefnt í uppnám og innleiðing Borgarlínu tafin verulega með því að setja hönnunarferlið á Suðurlandsbraut aftur á byrjunarreit. Eðlilegri farvegur hefði verið að taka þær athugasemdir sem fram komu í auglýsingu deiliskipulagsins til skoðunar og aðlaga tillöguna útfrá þeim sjónarmiðum sem þar komu fram án þess að stefna markmiðum verkefnisins í tvísýnu. Úr því sem komið er leggja fulltrúar Samfylkingarinnar áherslu á að nýta tímann vel. Mikilvægt er að hlusta á raddir hagaðila við Suðurlandsbraut og íbúa í nágrenninu og finna útfærslur sem koma sem best til móts við ólík sjónarmið, en tryggja á sama tíma að heildarsýn og framgangur Borgarlínu haldist í takt við fyrri áform. Til að mæta áhyggjum rekstraraðila og ná fram meiri sátt um breytingu Suðurlandsbrautar og þær framkvæmdir sem henni fylgja leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að samhliða nýju deiliskipulagi verði lögð fram skýr og áfangaskipt framkvæmdaáætlun. Eins verði skoðað að skilgreina nánar áfangaskiptingu um umbreytingu göturýmisins sunnan götunnar þannig að tryggt verði að göngu- og hjólastígar og aukinn gróður og umhverfisgæði verði þar enn tryggð í skipulagi götunnar þó þau geti mögulega byggst upp í seinni áföngum framkvæmdarinnar.
Borgarráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúi Miðflokksins telur að með hliðsjón af synjun á deiliskipulagi Suðurlandsbautar og boðaðri endurskoðun á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og fyrirkomulagi Borgarlínu sé ljóst, að fresta verði framkvæmd þeirra verkefna sem sú endurskoðun mun hafa áhrif á og geta ekki haldið óbreytt áfram að svo stöddu. Liggja þarf ljóst fyrir sem allra fyrst í hverju slík endurskoðun muni felast og hvaða áhrif hún hafi á ýmsar aðrar framkvæmdir í borginni og þróun borgarskipulagsins. Borgarráðsfulltrúi Miðflokksins telur að endurskoða þurfi áform um borgarlínuverkefnið í heild sinni þar sem verkefnið sé óhagkvæmt og muni hafa gífurlegan kostnað og skattahækkanir í för með sér fyrir reykvíkinga og aðra. Hægt væri að efla núverandi strætisvagnakerfi á skömmum tíma með skilvirkum aðgerðum. Nefna má lagningu forgangsakreina, forgang strætisvagna á umferðarljósum, notendavænna greiðslukerfi, umbætur á leiðakerfi og endurnýjun og endurbætur á vögnum, biðstöðvum og skiptistöðvum. Mikilvægt er að endurskoðun samgöngusáttmálans leiði ekki til þess að ýmsum hagkvæmum vegaframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu verði slegið á frest. Í því sambandi má nefna gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Brýnt er að ráðast í snjallvæðingu umferðarljósa í borginni, sem myndi auka umferðaröryggi og bæta umferðarflæði. Einnig þarf að kortleggja ýmis tækifæri sem eru til að greiða fyrir umferð í borginni með smærri framkvæmdum.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Ljóst er að þetta getur haft neikvæð áhrif á tímalínur og að þessi synjun tefur framgang samgönguúrbóta á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgigögn
-
Lagt fram að nýju bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. maí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Borgarholts II, Engjahverfis C, vegna nýrrar lóðar við Starengi, ásamt fylgiskjölum, sbr. 1. lið fundargerðar borgarráðs frá 21. maí 2026.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25040233
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrirliggjandi tillaga er hluti af þéttingaráformum fyrri meirihluta í Grafarvogi. Íbúar í Grafarvogi hafa ítrekað lýst yfir skýrri andstöðu við áform um þéttingu innan hverfisins og eru margir orðnir brenndir af vinnubrögðum tveggja síðustu meirihluta. Íbúar Grafarvogs hafa jafnframt ítrekað lýst áhyggjum af því að leiðir inn og út úr hverfinu séu sprungnar og á meðan ekki hefur verið fundin lausn á því máli er tómt mál að tala um að fjölga íbúum í hverfinu. Mikilvægt er að virða vilja nærumhverfisins og horfa fremur til uppbyggingar á nýjum svæðum þar sem hægt er að byggja upp húsnæði með betri heildarsýn, sterkari innviðum og minni neikvæðum áhrifum á gróin hverfi. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar hét því að falla frá fyrirhugaðri þéttingu í Grafarvogi og skoða ný tækifæri í samráði við íbúa á fyrstu 100 dögum nýs kjörtímabils. Því er frekari afgreiðslu borgarráðs á tillögunni hafnað og henni vísað aftur í umhverfis- og skipulagsráð.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Mikil þörf er á húsnæði á viðráðanlegu verði. Hluti af þróun húsnæðisuppbyggingar í Grafarvogi eru reitir þar sem fyrirhugað er að byggja upp óhagnaðardrifið húsnæði í samstarfi við óhagnaðardrifin uppbyggingarfélög og tryggja þannig fjölbreyttum tekjuhópum og tekjulágum þak yfir höfuðið og aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði.
Fylgigögn
-
Lagt fram að nýju bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. maí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis, áfanga 1-6, vegna nýrra lóða við Hverafold, ásamt fylgiskjölum, sbr. 2. lið fundargerðar borgarráðs frá 21. maí 2026.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25040243
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrirliggjandi tillaga er hluti af þéttingaráformum fyrri meirihluta í Grafarvogi. Íbúar í Grafarvogi hafa ítrekað lýst yfir skýrri andstöðu við áform um þéttingu innan hverfisins og eru margir orðnir brenndir af vinnubrögðum tveggja síðustu meirihluta. Íbúar Grafarvogs hafa jafnframt ítrekað lýst áhyggjum af því að leiðir inn og út úr hverfinu séu sprungnar og á meðan ekki hefur verið fundin lausn á því máli er tómt mál að tala um að fjölga íbúum í hverfinu. Mikilvægt er að virða vilja nærumhverfisins og horfa fremur til uppbyggingar á nýjum svæðum þar sem hægt er að byggja upp húsnæði með betri heildarsýn, sterkari innviðum og minni neikvæðum áhrifum á gróin hverfi. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar hét því að falla frá fyrirhugaðri þéttingu í Grafarvogi og skoða ný tækifæri í samráði við íbúa á fyrstu 100 dögum nýs kjörtímabils. Því er frekari afgreiðslu borgarráðs á tillögunni hafnað og henni vísað aftur í umhverfis- og skipulagsráð.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Mikil þörf er á húsnæði á viðráðanlegu verði. Hluti af þróun húsnæðisuppbyggingar í Grafarvogi eru reitir þar sem fyrirhugað er að byggja upp óhagnaðardrifið húsnæði í samstarfi við óhagnaðardrifin uppbyggingarfélög og tryggja þannig fjölbreyttum tekjuhópum og tekjulágum þak yfir höfuðið og aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki frest á flutningum B.M. Vallár ehf. af lóðum við Bíldshöfða 7 og Breiðhöfða 3, til loka árs 2032 og að skrifstofu eignastýringar á umhverfis- og skipulagssviði verði falið að klára viðauka við samkomulag, dags. 28. mars 2022, milli Reykjavíkurborgar og B.M. Vallár ehf., vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar og þróunar á Bíldshöfða 7 og Breiðhöfða 3 á Ártúnshöfða í Reykjavík, þar sem breytingar eru gerðar á samkomulaginu þessu til samræmis, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26060421
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki samkomulag um aðilaskipti vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni Járnháls 4, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22050087
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. júní 2026, sbr. vísun heilbrigðisnefndar frá 25. júní 2026 á drögum að breyttum samþykktum fyrir heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt að vísa samþykktinni til síðari umræðu.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. HER26010001
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stöðu brunavarna á Gufunesvegi 40.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Ragnheiði Sigvaldadóttur tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur ríka áherslu á að öryggi fólks verði ávallt haft að leiðarljósi við ákvarðanir um húsnæði í eigu Reykjavíkurborgar. Niðurstöður úttektar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sýna að brunavörnum í umræddum húsum er verulega áfátt og að eigandi húsanna, Reykjavíkurborg, þarf að bregðast við með úrbótum innan tilskilins frests. Þótt húsnæðið hafi um árabil gegnt mikilvægu hlutverki fyrir skapandi greinar og frumkvöðla er ljóst að ekki verður horft fram hjá þeirri ábyrgð sem hvílir á borginni gagnvart leigjendum og öðrum sem dvelja í húsunum. Mikilvægt er að ígrunda næstu skref vandlega.
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 26. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja vinnu við að birta innsendar umsóknir sem íbúar hafa sent í gegnum Mínar síður Reykjavíkur inni á Ísland.is, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Jörgen Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Ólafur Sólimann Helgason og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON25050003
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 26. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja vinnu við að útfæra birtingu stafræns pósthólfs í uppflettigátt þjónustuvers, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Jörgen Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Ólafur Sólimann Helgason og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON24040004
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 29. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að halda áfram þróun á Laufeyju, umsóknarvef fyrir aðgang, búnað og hugbúnaðarleyfi, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Jörgen Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Ólafur Sólimann Helgason og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON24080011
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 29. júní 2026, varðandi fundargerðir verkefnaráðs frá 15. janúar-4. júní 2026 ásamt samantekt fundanna, ásamt fylgiskjölum.
Óskar Jörgen Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Ólafur Sólimann Helgason og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON20060042
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. júní 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að endurskoða gildandi reglur um ráðningar hjá Reykjavíkurborg sem eru í gildi til 31. desember 2026. Starfandi starfshópi um ráðningarýni verði falið að meta hvernig til hafi tekist við framfylgd ráðningareglna, skerpa á framkvæmdinni og leggja til úrbætur. Starfshópnum verði jafnframt falið að gera tillögu um hvort framlengja eigi uppfærðar reglur út kjörtímabilið eða hvort leggja eigi til ótímabundið verklag við ráðningar.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Halldóra Káradóttir og Lóa Birna Birgisdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26060185
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur áherslu á að Reykjavíkurborg fari vel með almannafé og að rekstur borgarinnar sé sjálfbær til lengri tíma. Til þess þarf skýrt verklag, góða yfirsýn og markvissa eftirfylgni með ráðningum án þess að það komi niður á lögbundinni grunnþjónustu við íbúa. Þær reglur sem nú eru til endurskoðunar hafa það að markmiði að auka yfirsýn yfir ný- og endurráðningar, draga úr óþarfa ráðningum þar sem það er mögulegt og tryggja að ákvarðanir séu teknar á samræmdum og faglegum grunni. Jafnframt er skýrt kveðið á um að reglurnar eigi ekki að skapa hik við ráðningar í leikskólum, skólum, frístundastarfi eða velferðarþjónustu þar sem mönnun byggir á skilgreindri þjónustuþörf. Meirihlutinn fagnar því að farið verði yfir reynsluna af framkvæmd reglnanna og metið hvernig megi skerpa á þeim enn frekar. Mikilvægt er að tryggja að reglurnar nái markmiðum sínum, stuðli að ábyrgri fjármálastjórn og komi jafnframt í veg fyrir að verkefnum sé útvistað í þeim tilgangi að komast hjá þeim. Endurskoðunin er liður í því að efla traust á stjórnsýslu borgarinnar, styrkja fjármálastjórn og tryggja að fjármunir borgarbúa nýtist sem best til að standa undir öflugri og sjálfbærri þjónustu.
Fylgigögn
-
Lagt fram trúnaðarmerkt mánaðarlegt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar-apríl 2026, dags. 2. júlí 2026.
Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir og Jónas Skúlason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26050026
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra áamt fylgiskjölum dags. 29. júní 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að afturkalla samþykkt sína á breytingum á reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva sem samþykktar voru í skóla- og frístundaráði þann 23. mars 2026, í borgarráði þann 16. apríl 2026 og fullnaðarafgreitt á fundi borgarstjórnar þann 21. apríl 2026. Með breytingunni sem átti að taka gildi þann 22. ágúst 2026 átti opnunartími frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva að styttast um 30 mínútur en með afturköllun ákvörðunarinnar verður opnunartíminn óbreyttur.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25020020
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Nýr meirihluti hét því að tryggja óskertan opnunartíma frístundaheimila til kl. 17 innan fyrstu 100 daga kjörtímabilsins og með þessari ákvörðun er það kosningaloforð efnt. Þetta er liður í skýrri stefnu meirihlutans um að setja fjölskyldulífið í forgang og vinda markvisst ofan af þeim fjölmörgu skerðingum á grunnþjónustu við barnafjölskyldur sem urðu undir stjórn fyrri meirihluta. Með þessari breytingu er stigið enn eitt mikilvægt skref í að efla þjónustu við fjölskyldur og endurbyggja það traust sem hefur beðið hnekki á undanförnum árum. Fyrir fjölmargar fjölskyldur skiptir það miklu máli að geta samræmt atvinnu- og fjölskyldulíf án þess að skerðingar á þjónustu borgarinnar standi í vegi. Markmið nýs meirihluta er skýrt: Reykjavík á að vera fjölskylduvæn borg þar sem þjónustan tekur mið af raunverulegum þörfum íbúanna og styður við fjölskyldur á öllum stigum lífsins.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða tillögu á breytingum á reglum Reykjavíkurborgar um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva. Breytingar taka gildi við samþykkt borgarráðs.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25020020
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Nýr meirihluti hét því að tryggja óskertan opnunartíma frístundaheimila til kl. 17 innan fyrstu 100 daga kjörtímabilsins og með þessari ákvörðun er það kosningaloforð efnt. Þetta er liður í skýrri stefnu meirihlutans um að setja fjölskyldulífið í forgang og vinda markvisst ofan af þeim fjölmörgu skerðingum á grunnþjónustu við barnafjölskyldur sem urðu undir stjórn fyrri meirihluta. Með þessari breytingu er stigið enn eitt mikilvægt skref í að efla þjónustu við fjölskyldur og endurbyggja það traust sem hefur beðið hnekki á undanförnum árum. Fyrir fjölmargar fjölskyldur skiptir það miklu máli að geta samræmt atvinnu- og fjölskyldulíf án þess að skerðingar á þjónustu borgarinnar standi í vegi. Markmið nýs meirihluta er skýrt: Reykjavík á að vera fjölskylduvæn borg þar sem þjónustan tekur mið af raunverulegum þörfum íbúanna og styður við fjölskyldur á öllum stigum lífsins.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 29. júní 2026, um breytingu á gjaldskrá frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva.
Samþykkt.Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25020020
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 22. júní 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs sama dag um að leggja matsferil Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu fyrir alla árganga í borgarreknum grunnskólum einu sinni á ári, ásamt fylgiskjölum.
Lögð fram svohljóðandi viðaukatillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Lagt er til að samráð verði haft við KFR og FSR, Kennarafélag Reykjavíkur og skólastjórnendafélag Reykjavíkur, um útfærslu tillögurnar og hvernig unnið verði með niðurstöðurnar sem og birtingu þeirra.
Samþykkt.
Upphafleg tillaga er samþykkt svo breytt.Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26060088
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur ríka áherslu á að styrkja grunnskólana með markvissum aðgerðum sem bæta námsárangur og efla faglegt starf. Í samstarfsyfirlýsingu meirihlutans var heitið að innleiða samræmt námsmat í öllum árgöngum grunnskólans og hefja samtal við ríkið um samræmt lokamat á fyrsta ári kjörtímabilsins. Með þessari tillögu er það loforð efnt og jafnframt hefur borgarstjóri þegar hafið samtal við mennta- og barnamálaráðuneytið um næstu skref. Með árlegri fyrirlögn matsferils Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu í öllum borgarreknum grunnskólum og markvissri úrvinnslu niðurstaðna skapast öflugur grunnur til að greina námsframvindu snemma og veita nemendum viðeigandi stuðning. Markmiðið er ekki að raða skólum heldur að styðja kennara, skólastjórnendur og nemendur með traustum gögnum sem stuðla að betri námsárangri og auknu jafnræði. Sérstaklega er ánægjulegt að sett séu skýr og mælanleg markmið um að fleiri nemendur nái væntri framvindu milli ára og að markvisst verði dregið úr þeim hópi sem stendur undir hæfniviðmiðum í lesfimi, lesskilningi og stærðfræði. Þannig verður hægt að fylgjast með árangri, beina stuðningi þangað sem þörfin er mest og byggja upp skólakerfi Reykjavíkurborgar sem verður í fremstu röð.
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokksins fagnar því að matsferill verði lagður fyrir alla árganga sem samræmt mat. Aftur á móti er lýst yfir áhyggjum ef birta á niðurstöðurnar opinberlega eins og kemur fram í verkefnalista meirihlutans. Niðurstöður úr samræmdum prófum sem slíkum endurspegla ekki aðeins námshæfni og gæði náms heldur skýra félags- og efnahagslegir þættir alltaf hluta niðurstaðna. Með öðrum orðum geta skólar verið að vinna eins faglega og þeim er unnt þrátt fyrir áskoranir meðal nemenda. Bregðast þarf við niðurstöðunum en ekki er gagnlegt að birta þær opinberlega þar sem það mun aðeins ala á ótta, fordómum og tortryggni í garð tiltekinna skóla eða hverfa og dýpka þannig gjá milli íbúa borgarinnar. Slíkt er síst af öllu eitthvað sem ný borgarstjórn ætti að stuðla að á okkar tímum þegar vaxandi sundrung og skautun í samfélaginu ógnar öryggi og velferð okkar allra. Tryggja þarf faglega úrvinnslu á gögnunum, með skýrum verkferlum um hvernig nýta eigi niðurstöðurnar til umbóta í kennslu og efla stuðning við nemendur þar sem þarf. Treysta þarf kennurum til að nýta niðurstöðurnar í skólastarfi og kennslu ásamt auknum stuðningi og samstarfi frá skóla- og frístundasviði.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 22. júní 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs sama dag á breytingum á reglum um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Haukur Þór Haraldsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS22060110
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur ríka áherslu á að öll börn í Reykjavík hafi raunverulegt aðgengi að öflugu tónlistarnámi, bæði innan skólastarfs og utan þess. Tónlistarnám er mikilvægur þáttur í þroska barna, eflir sköpunargáfu, sjálfstraust og félagsfærni og er órjúfanlegur hluti af öflugu mennta- og menningarsamfélagi. Með framlengingu núgildandi samninga um eitt ár skapast nauðsynlegt svigrúm til að ráðast í heildstæða endurskoðun á fyrirkomulaginu. Markmiðið er að byggja upp samningsumhverfi sem þjónar betur bæði grunnskólunum, tónlistarskólunum og ekki síst börnunum sjálfum. Við viljum tryggja að fjármunir nýtist sem best, samstarf verði skilvirkara og að þjónustan taki mið af þörfum barna og fjölskyldna um alla borg. Endurskoðunin verður því ekki einungis tæknileg yfirferð á samningum heldur tækifæri til að móta skýra framtíðarsýn um tónlistarnám í Reykjavík. Meirihlutinn mun vinna þetta verkefni í góðu samráði við tónlistarskóla, skólasamfélagið og aðra hagaðila með það að markmiði að styrkja tónlistarmennt, auka aðgengi og skapa jafnræði þannig að sem flest börn fái tækifæri til að njóta tónlistarnáms óháð búsetu eða aðstæðum.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 23. júní 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 22. júní 2026, á endurnýjun og framlengingu samninga við tónlistarskóla í Reykjavík vegna neðri stiga tónlistarnáms og endurnýjun samninga vegna efri stiga tónlistarnáms, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Haukur Þór Haraldsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS2205007
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 22. júní 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs sama dag á flutning á þátttökubekk úr Árbæjarskóla í Víkurskóla, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Haukur Þór Haraldsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26020026
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 22. júní 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs sama dag á endurnýjun samnings við Myndlistaskólann í Reykjavík, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Haukur Þór Haraldsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25030161
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands lýsir yfir áhyggjum af þeirri ákvörðun að hækka ekki fjárframlög til Myndlistarskólans í Reykjavík. Árið 2018 var samið um að veita skólanum 22 milljónir í styrk fyrir frístundanámskeið barna og unglinga en sá styrkur hefur staðið í stað síðustu átta ár. Ef styrkurinn hefði fylgt verðlagsþróun væri hann rúmlega 33,5 milljónir í dag. Því er í raun um niðurskurð að ræða sem bætist við þann niðurskurð sem Myndlistarskólinn í Reykjavík varð fyrir árið 2025 þegar ákveðið var fyrirvaralaust að framlengja ekki samninginn um leik- og grunnskólasamstarf. Það samstarf hafði verið farsælt og blómlegt. Þar sköpuðust tækifæri fyrir kennara til starfsþróunar og opnaði börnum dyr að listsköpun. Fulltrúi Sósíalistaflokksins skorar því á meirihlutann að tryggja aukna fjárveitingu til skólans í næstu fjárhagsáætlun, bæði til frístundanámskeiða og til að endurvekja samstarfið við leik- og grunnskóla. Listir og menning spila lykilhlutverk í velferð barna og við verðum að tryggja aðgengi að fjölbreyttu frístundastarfi þar sem öll börn njóta sín, ekki síst þau sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 26. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðsstjóra sviðsins að færa móttökudeild, sem áður kallaðist stoðdeild Birtu, undir Breiðagerðisskóla, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Haukur Þór Haraldsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26050077
Fylgigögn
-
Lögð fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, ódags., vegna málefna barna með fjölþættan vanda. Einnig lagt fram minnisblað velferðarsviðs, dags. 2. júlí 2026, vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir.
Rannveig Einarsdóttir, Arnar Þór Sævarsson, Helga María Pálsdóttir, Saga Guðmundsdóttir og Þyrí Steingrímsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Jóni Birni Hákonarsyni sem tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. MSS25060101 VEL26060143
Borgarráð og áheyrnarfulltrúar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráð lýsir yfir afar þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda en málaflokkurinn hefur verið undirfjármagnaður árum saman. Með nýrri reglugerð hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á þeim hópi sem falla skal undir samkomulagið. Það leiðir til þess að ábyrgð og kostnaður sem á grundvelli samkomulagsins átti að færast til ríkisins, situr eftir hjá sveitarfélögunum. Málið varðar afar viðkvæman hóp barna og fjölskyldna og snýr að réttindum barna sem eru í brýnni þörf fyrir þjónustu, réttaröryggi og jafnræði til þjónustunnar. Þegar skilgreiningar eru þrengdar með reglugerð með þeim hætti að börn í sambærilegri stöðu njóta mismunandi aðgangs að þjónustu eftir því hvort þau falla innan eða utan skilgreiningar, skapast hætta á að farið verði á svig við jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að kostnaður vegna stuðnings til þessara barna sé greiddur af ríkinu í samræmi við samkomulagið. Fjárhagsleg áhrif reglugerðarbreytingarinnar á Reykjavíkurborg nema rúmum milljarði króna. Án leiðréttingar er hætta á að kerfið grafi undan bæði faglegum markmiðum barnaverndar og fjárhagslegri stöðu sveitarfélaga – með beinum áhrifum á þjónustu við viðkvæmustu börn samfélagsins. Breytingin er óásættanleg, án fullnægjandi faglegra raka og felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taka þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 25. júní 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 24. júní á þjónustusamningi við Ás styrktarfélag, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Rannveig Einarsdóttir, Katrín Harpa Ásgeirsdóttir og Halla Hallgrímsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL26060071
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar því að náðst hafi samningar um mikilvæga þjónustu við fatlað fólk við Ás styrktarfélag vegna búsetuþjónustu, reksturs Lyngáss og vinnu og virkni. Ás hefur áratuga sögu um þjónustu við fatlað fólk og mikil reynsla og þekking liggur innan starfseminnar. Þó er ljóst að um miklar fjárhæðir er að ræða, eða 6,8 milljarða á því þriggja ára tímabili sem samningurinn gildir. Því er mikilvægt að velferðarsvið fylgi eftir þeirri vönduðu kröfulýsingu sem liggur fyrir og kynni eftirfylgni með samningnum fyrir velferðarráði með reglubundnum hætti.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að tilnefna Helgu Björk Laxdal sem fulltrúa og Halldóru Káradóttur sem varafulltrúa Reykjavíkurborgar í fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands. Á síðasta ári voru samþykktar nýjar samþykktir fyrir EBÍ og eiga nú öll aðildarsveitarfélög EBÍ að kjósa í fulltrúaráð félagsins að loknum sveitarstjórnarkosningum. Nýtt fulltrúaráð, skv. nýjum samþykktum EB, tekur við á aðalfundi þess haustið 2027.
Samþykkt. MSS26050080
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. júní 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki breytingar á gjaldskrá afnotaleyfa vegna viðburða í borgarlandi þar sem breytingar verða gerðar á umfangsflokki 1a, veruleg aðstöðusköpun og umfangsflokki 2,– meiriháttar aðstöðusköpun, á þann hátt að heimilt verði að veita allt að 50% afslátt af afnotaleyfi þegar um er að ræða viðburði sem haldnir eru af óhagnaðardrifnum félögum, svo sem íþróttafélögum, og opnir eru öllum almenningi. Jafnframt verði umfangsflokkur 5, litlir viðburðir eða minniháttar viðhald, gjaldfrjáls en þar undir falla litlir viðburðir sem hafa óveruleg áhrif á borgarlandið. Breytingin er gerð til þess að koma til móts við viðburðahaldara í borginni og rúmast innan fjárheimilda umhverfis- og skipulagssviðs sem jafnframt er falið að uppfæra reglurnar.
Samþykkt. MSS26060103
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar efnir hér eitt af skýrum loforðum sínum á 100 daga verkefnalista nýs meirihluta með því að lækka gjöld vegna afnota af borgarlandi fyrir viðburðahald. Með breytingunni verður heimilt að veita allt að 50% afslátt af afnotaleyfisgjöldum fyrir opna viðburði á vegum óhagnaðardrifinna félaga og jafnframt verða gjöld felld niður fyrir smærri viðburði sem hafa óveruleg áhrif á borgarlandið. Þessi breyting er mikilvægt skref í að efla menningar- og samfélagslíf í Reykjavík. Öflugt viðburðalíf verður til þegar frumkvæði einstaklinga, félagasamtaka, íþróttafélaga og menningarstofnana fær að njóta sín án óþarfra fjárhagslegra eða stjórnsýslulegra hindrana. Með lægri gjöldum lækkar þröskuldurinn fyrir fjölbreytta viðburði og aðgengi að borgarlandinu verður auðveldara fyrir þá sem skapa líf og fjör í borginni. Reykjavík á að vera borg þar sem torg, garðar og önnur almenningsrými eru vettvangur menningar, íþrótta og samfélagslegra samverustunda. Með þessari breytingu er verið að styðja við öflugt borgarlíf, fjölga tækifærum fyrir íbúa til að njóta menningar og viðburða og skapa hagstæðari skilyrði fyrir þá sem standa að slíkri starfsemi. Þetta er hluti af þeirri stefnu nýs meirihluta að einfalda regluverk, draga úr óþarfa gjaldtöku og gera Reykjavík að enn betri borg til að búa í, starfa í og njóta.
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands styður tillöguna og fagnar afslætti af afnotagjaldi fyrir opna viðburði á vegum óhagnaðardrifinna félaga. Í tillögunni eru íþróttafélögin tekin sérstaklega fram sem dæmi um óhagnaðardrifin félög en bent er á að sú skilgreining á einnig við um fjölmörg menningarfélög. Afslátturinn ásamt rýmkun á skilgreiningu á litlum viðburðum með minniháttar viðhald mun án efa efla íþrótta- og menningarlíf í borginni almenningi til heilla.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. júní 2026, um breytingu á heiti öldungaráðs í öldunga- og notendaráð fatlaðs fólks í Reykjavík, sbr. 3. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. júní 2026, þar sem óskað er eftir að forsætisnefnd verði falið að vinna samþykkt fyrir ráðið, sem lögð verði fram til afgreiðslu á fyrsta fundi borgarstjórnar í september.
Samþykkt. MSS26060012Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á tillögu meirihluta borgarráðs um stofnun nýs ráðs, öldunga og notendaráðs fatlaðs fólks í stað mannréttindaráðs sem fór með þau verkefni sem nýju ráði er ætlað að sinna. Kostnaður við nýtt ráð er nákvæmlega sá sami og kostnaður var við mannréttindaráð, sem sinnti auk verkefna á sviði öldrunar- og fötlunarmála, málefnum fólks af erlendum uppruna, jafnréttismálum og ofbeldisvörnum. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar telja að allur þessi leiðangur með tilheyrandi upphrópunum og niðurlagningu mannréttindaráðs og -skrifstofu hafi einungis verið til þess fallinn að slá ryki í augu borgarbúa og láta líta út fyrir að verið væri að hagræða.
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka á dagskrá svohljóðandi tillögu borgarstjóra:
Aðalfundur Þróunarfélags Grundartanga ehf. verður haldinn 3. júlí nk. Lagt er til að borgarráð samþykki að skipa Brynjar Níelsson borgarfulltrúa sem aðalmann í stjórn Þróunarfélags Grundartanga ehf. ásamt því að skipa Regínu Ásvaldsdóttur sem varamann í stjórn til eins árs. Eigandastefna Reykjavíkurborgar gildir ekki um Þróunarfélag Grundartanga ehf. þar sem félagið uppfyllir ekki skilyrði 2. gr. eigendastefnunnar um bókfært virði eignarhlutar.
Samþykkt.
-
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 25. júní 2026. MSS26010007
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 25. júní 2026 MSS26010008
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð íþrótta- og útilífsráðs frá 26. júní 2026. MSS26060177
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 22. júní 2026. MSS26060133
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð menningarráðs frá 26. júní 2026. MSS26060176
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 22. júní 2026. MSS26010014
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 1. júlí 2026.
8. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls níu mál (MSS26010013, MSS26060134, MSS26060135, MSS23020031, MSS26060124, SFS26060296, MSS26060172, MSS26040046). MSS26060178
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26060129
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð veiti jákvæða umsögn um tímabundið áfengisleyfi með vísan til 2. mgr. 17. gr. l. nr. 85/2007, til kl. 03:30 til American Bar aðfaranótt þriðjudagsins 7. júlí nk. Jákvæð umsögn borgarráðs er háð því að aðrar lögbundnar umsagnir séu einnig jákvæðar.
Samþykkt. MSS26060113Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita jákvæða umsögn um tímabundið áfengisleyfi með vísan til 2. mgr. 17. gr. l. nr. 85/2007, til kl. 02:30 til English Pub aðfaranótt mánudagsins 6. júlí nk. Jákvæð umsögn borgarráðs er háð því að aðrar lögbundnar umsagnir séu einnig jákvæðar.
Samþykkt. MSS26060179Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar:
Borgarráð samþykkti á síðasta fundi að segja upp upplýsingafulltrúum og dreifa ábyrgð mannréttindaskrifstofu yfir á önnur svið Reykjavíkurborgar. Ljóst er að í þessum hópi voru upplýsingafulltrúar frá umhverfis- og skipulagssviði, velferðarsviði og skóla- og frístundasviði. Enn fremur var viðburðateymi frá skrifstofu borgarstjóra og borgarritara fært yfir á menningar- og íþróttasvið. 1. Hvaða þjónustu mun velferðarsvið fá, frá miðlægu teymi, þegar upplýsingafulltrúa velferðarsviðs sem starfaði á skrifstofu borgarstjóra hefur verið sagt upp? 2. Hvernig hafa upplýsingamál verið leyst, á skrifstofu borgarstjóra, frá því að upplýsingafulltrúum var sagt upp störfum? 3. Hafa einhverjir upplýsingafulltrúar verið ráðnir aftur og hvað réði því? Hver voru fagleg sjónarmið og ferillinn við mat á því hvaða upplýsingafulltrúa ætti að ráða aftur? 4. Er þegar búið að útvista einhverjum verkefnum á skrifstofu borgarstjóra? Er búið að semja við einhverja tiltekna stofu? Ef já, hvaða stofu og hver er kostnaðurinn? Ef ekki, verður farið í útboð? 5. Hefur nýr meirihluti þegar keypt þjónustu ráðgjafa- eða samskiptastofu frá því að nýr meirihlutinn tók við? MSS26070006
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Miðflokksins:
Lagt er til að tveimur beygjuakreinum (hægribeygju-framhjáhlaupum) verði komið fyrir að nýju við gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls í því skyni að greiða fyrir umferð á umræddum gatnamótum og í nágrenni þeirra. Ráðist verði í framkvæmdirnar nú í sumar og þeim lokið fyrir komandi vetur. MSS26070009
Greinargerð fylgir tillögunni.
Frestað.Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Lagt er til að borgarráð samþykki að auglýsa stofnun öldunga- og notendaráðs fatlaðs fólks í Reykjavík í samráðsgátt borgarinnar þannig að kalla megi fram sjónarmið sem er mikilvægt að hafa í huga þegar samþykkt fyrir ráðið er unnin. Sérstaklega verði óskað eftir umsögnum frá baráttusamtökum líkt og ÖBÍ réttindasamtökunum, Landssamtökunum Þroskahjálp, Geðhjálp og NPA miðstöðinni. Lagt er til að nægur tími verði gefinn til að veita umsögn og að tímaramminn taki mið af sumarleyfum sem standa gjarnan yfir í júlí. Umsagnirnar verði síðan lagðar fyrir forsætisnefnd. MSS26070005
Frestað.
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Óskað er eftir kostnaðaráhrifum þessara breytinga þegar þær liggja fyrir. Um er að ræða kostnaðaráhrif vegna lækkunar gjalda vegna viðburðahalds í borgarlandi. MSS26070006
Fundi slitið kl. 12:20
Einar Þorsteinsson Ari Edwald
Bjarni Guðjónsson Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
Björg Magnúsdóttir Pétur Hafliði Marteinsson
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 2.7.2026 - prentvæn útgáfa