Menningarráð - Fundur nr. 1

Menningarráð

Ár 2026, föstudaginn 26. júní var haldinn 1. fundur menningarráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru:  Rúnar Freyr Gíslason formaður, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Bjarni Guðjónsson varamaður fyrir Helgu Margréti Marzellíusardóttur, Friðjón R. Friðjónsson, Líf Magneudóttir, Hlédís Maren Guðmundsdóttir og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir varamaður fyrir Skúla Helgason.  Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð. 

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 4. júní 2026 um samþykkt borgarstjórnar um stofnun menningarráðs. MSS26060011.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 4. júní 2026 um kosningu sjö fulltrúa í menningarráð ásamt formannskjöri.

    Jafnframt lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 4. júní 2026 um að Arnar Ingi Ingason taki sæti varafulltrúa í menningarráði í stað Heiðu Bjargar Hilmisdóttur.  MSS26060011.

    Fylgigögn

  3. Fram fer kosning varaformanns í menningarráð.  

    Samþykkt að Þorvaldur Davíð Kristjánsson verði varaformaður menningarráðs.  MIR26060018.

    Samþykkt með 5 atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Miðflokksins.  Fulltrúar Vinstrisins og Samfylkingar sátu hjá.  

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 19. júní 2026 varðandi tímasetningar á reglulegum fundum borgarstjórnar, borgarráðs og fagráða.  MSS26060066.

  5. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í menningaráði leggja fram svohljóðandi tillögu um endurskoðun á reglum um styrkveitingar og samstarfssamninga á sviði menningarmála:

    Lagt er til að skipaður verði stýrihópur sem hafi það hlutverk að endurskoða fyrirkomulag menningartengdra styrkja með það að leiðarljósi að tryggja markvissari menningartengda styrki og auka eftirfylgni með þeim verkefnum sem hljóta styrki.

    Samþykkt með 6 atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Vinstrisins og Miðflokksins.  Fulltrúi Samfylkingar situr hjá.  MIR26060017

    Fylgigögn

  6. Lagt fram erindisbréf sviðsstjóra dags. 24. júní 2026 um stýrihóp um endurskoðun á reglum um styrkveitingar og samstarfssamninga á sviði menningarmála.  MIR26060017.

    Samþykkt með 6 atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Vinstrisins og Miðflokksins.  Fulltrúi Samfylkingar situr hjá. 

    Fylgigögn

  7. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í menningaráði leggja fram svohljóðandi tillögu um Viðey sem öflugt menningar- og útivistarsvæði. 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar í menningarráði leggja til að fela sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs að kortleggja möguleika tengda því að nýta Viðey í auknu mæli og þá með áherslu á að eyjan verði nýtt sem öflugt menningar- og útivistarsvæði. Óskað eftir því að sviðsstjóri vinni að umræddri kortlagningu í samvinnu við starfsmenn menningar- og íþróttasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs. Þá verði upplýsinga safnað saman eða eftir atvikum aflað frá öðrum stofnunum/aðilum sem búa yfir nauðsynlegum upplýsingum varðandi Viðey t.d. frá Minjavernd, Náttúruverndarstofnun. Sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs verði falið að leggja fram skýrslu með helstu niðurstöðum eigi síðar en 30. september nk.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26060020

    Samþykkt með 4 atkvæðum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar.  Fulltrúar Vinstrisins, Miðflokksins og Samfylkingar sitja hjá. 

    Fylgigögn

  8. Lögð fram starfsáætlun sviðsins og fundardagatal til áramóta. MIR26060018

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:38.

Rúnar Freyr Gíslason Þorvaldur Davíð Kristjánsson

Hlédís Maren Guðmundsdóttir Bjarni Guðjónsson

Líf Magneudóttir Bjarnveig Birta Bjarnadóttir

Friðjón R. Friðjónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Menningarráð 26.6.26