Íþrótta- og útilífsráð
Ár 2026, föstudaginn 26. júní var haldinn 30. fundur íþrótta- og útilífsráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:03. Viðstödd voru: Bjarni Guðjónsson formaður, Björn Gíslason, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Albert Guðmundsson, Stefán Pálsson, Lárus Blöndal Sigurðsson og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Elín Hrefna Ólafsdóttir, Atli Steinn Árnason, Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 4. júní 2026 þar sem fram kemur að á fundi borgarstjórnar 2. júní 2026 hafi verið samþykkt tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um breytingar á heiti og verkefnum menningar- og íþróttaráðs. Ráðið heitir nú íþrótta- og útilífsráð. MSS26060010.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 4. júní 2026 um kosningu sjö fulltrúa í íþrótta- og útilífsráð ásamt formannskjöri. MSS26060010.
Fylgigögn
-
Fram fer kosning varaformanns í íþrótta- og útilífsráð.
Samþykkt að Margrét Rós Sigurjónsdóttir verði varaformaður íþrótta- og útilífsráðs. MIR26060019
Samþykkt. Fulltrúar Vinstrisins, Miðflokksins og Samfylkingar sátu hjá.
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 19. júní 2026 varðandi tímasetningar á reglulegum fundum borgarstjórnar, borgarráðs og fagráða. MSS26060066.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi tillögu um lengri opnunartíma sundlauga:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja til að opnunartími sundlauga verði lengdur til kl. 22 allar helgar frá 1. september nk.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26060022
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi tillögu um kortlagningu aðstöðumála og fjárframlaga til íþróttafélaga:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í íþrótta- og útilífsráði leggja til að fela sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs að kortleggja aðstöðumál og fjárframlög til íþróttafélaga. Er óskað eftir því að sviðsstjóri vinni að umræddri kortlagningu í samvinnu við starfsmenn menningar- og íþróttasviðs, Íþróttabandalags Reykjavíkur, eignasjóðs Reykjavíkurborgar og aðra þá aðila sem búa yfir nauðsynlegum upplýsingum varðandi aðstöðumál og fjárframlög til íþróttafélaga sem starfa innan Reykjavíkurborgar. Sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs verði falið að leggja fram skýrslu með helstu niðurstöðum eigi síðar en 25. ágúst nk.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26060021
Samþykkt með 6 atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Miðflokksins og Samfylkingar. Fulltrúi Vinstrisins situr hjá.
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Vinstrisins í íþrótta- og útivistarráði bendir á að mikil vinna hafi farið fram á fyrra kjörtímabili við endurskoðun á forgangsröðun uppbyggingar íþróttamannvirkja í Reykjavík. Skynsamlegra hefði verið að ljúka einfaldlega vinnu þess starfshóps með nýjum kjörnum fulltrúum í stað þess að fara beina leið á byrjunarreit með því að fela sviðsstjóra að ráðast í kortlagningu verkefnisins frá grunni.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindisbréf sviðsstjóra dags. 23. júní 2026 um starfshóp um innleiðingu frístundakorts með tekjutengingu fyrir 67 ára og eldri. MIR26060016.
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Vinstrisins í Íþrótta- og útivistarráði telur hugmyndir meirihlutaflokkanna um að koma á frístundastyrk fyrir efnaminni eldri borgara allrar athygli verðar. Kostnaður við hvers kyns námskeið, tómstundir og líkamsrækt getur verið ýmsu eldra fólki þungur í skauti. Gagnrýnivert er þó að tímarammi verkefnisins er með öllu óraunhæfur, tæpir tveir mánuðir yfir hásumarið, hvað þá ef standa á við fyrirheit um að afla víðtækrar ráðgjafar innan og utan borgarkerfisins. Sá grunur vaknar að hér ráði verkefnalisti meirihlutans með 100 daga viðmiðunarmarkmiðum frekar för en raunsæi og góð vinnubrögð.
Fylgigögn
-
Fram fara umræður um stærri verkefni sem eru í gangi á sviðinu. MIR2660019.
-
Lögð fram starfsáætlun sviðsins og fundardagatal til áramóta. MIR260600197.
Fylgigögn
Fundi slitið kl.10:25.
Bjarni Guðjónsson Björn Gíslason
Lárus Blöndal Sigurðsson Margrét Rós Sigurjónsdóttir
Stefán Pálsson Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Íþrótta- og útilífsráð 26.6.26 - prentvæn útgáfa