Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 270

Endurskoðunarnefnd

Ár 2023 mánudaginn 27. mars var haldinn 270. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík og hófst kl. 13:02. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S Hálfdánarson og Sigrún Guðmundsdóttir. Sunna Jóhannsdóttir tók sæti á fundinum með fjarbúnaði með vísan til heimilda í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild.

Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram trúnaðarmerkt drög að ársreikningi 2022 ásamt drögum að  endurskoðunarskýrslu fyrir Faxaflóahafnir sf. og drögum að umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar félagsins dags. í dag. IER22110076

    Gunnar Tryggvason, Ragnheiður Ragnarsdóttir og Jón Garðar Jörundsson hjá Faxaflóa-höfnum taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Theodóri Sigurbergssyni hjá Grant Thornton endurskoðun.

    Frestað.

     

  2. Lögð fram ódags. trúnaðarmerkt drög að útboðslýsingu fyrir útboð ytri endurskoðunarþjónustu fyrir Reykjavíkurborg og tilgreind B hluta félög. IER22110079

    Frestað.
     

Fundi slitið kl. 15:32

Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson

Sigrún Guðmundsdóttir