Úthlutað úr Menningarnæturpotti Landsbankans
Mörg bíða með eftirvæntingu eftir Menningarnótt en hátíðin verður haldin þann 22. ágúst í Reykjavík. 31 verkefni hafa fengið úhlutað úr Menningarnæturpotti Landsbankans.
Í ár fá 31 spennandi verkefni styrk úr Menningarnæturpotti Landsbankans. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra á Menningarnótt.
Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar valdi styrkþegana en alls bárust 63 umsóknir. Samtals eru veittir styrkir fyrir fimm milljónir króna.
Verkefnin eru mjög fjölbreytt og má nefna ýmiss konar tónlist og töfrabrögð, dans, K-pop dans, endurnýtingu, ljóðakollektív og nýsirkussýningu með tveimur trúðum. Gestir menningarnætur geta jafnframt spreytt sig í keppni í bekkpressu undir berum himni.
Sannarlega fjölbreytt dagskrá á Menningarnótt í ár og um að gera að fara að hlakka til!
Sjáumst á Menningarnótt 22. ágúst!