Reykjavíkurborg leggur til úrbætur eftir úttekt á skipulagsferli Álfabakka 2A
Innri endurskoðun og ráðgjöf telur að annmarkar hafi verið á stjórnsýslu- og leyfisferlum í tengslum við uppbyggingu við Álfabakka 2a og leggur til 12 úrbótatillögur sem borgarráð samþykkti í dag að vísa til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs. Ennfremur samþykkti borgarráð tillögur um að fara í formlegar viðræður til að bæta nærumhverfi á uppbyggingarsvæðinu, að meta áhrif uppbyggingar á umferð, og að taka heildstætt utan um skipulagsmál í Suður- og Norður Mjódd og á svæði Íþróttafélags Reykjavíkur.
Borgarstjórn fól Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) að gera úttekt á skipulagsferli við Álfabakka 2a á fundi sínum 7. janúar 2025. Úttektin var kynnt á fundi borgarráðs í morgun.
Veikleikar í stjórnsýslu en málsmeðferð samkvæmt gildandi lögum
Meginniðurstaða úttektarinnar er að stjórnsýslulegir annmarkar í skipulags- og leyfisferli Álfabakka 2a hafi komið fram á fleiri en einu stigi málsins yfir langt tímabil. Einkum hafi verið um að ræða veikleika í skýrleika og gæðum skipulagsskilmála og skipulagsgagna, rekjanleika ákvarðanatöku og samræmingu og fagmennsku í framkvæmd skipulags-, mats- og leyfisferla.
Yfirferð á regluumhverfi og framkvæmd þess bendir til að málsmeðferð hafi almennt byggst á gildandi lögum og reglum.
Unnið að úrbótum á stjórnsýslu og hugað að nærumhverfi
Borgarráð samþykkti að vísa 12 úrbótatillögum IER sem miða að því að styrkja skipulags-, leyfis- og stjórnsýsluferli Reykjavíkurborgar til meðferðar hjá umhverfis- og skipulagssviði. Þá hefur skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verið falið eftirfylgni með tillögunum.
Borgarráð samþykkti einnig að hefja formlegar viðræður við eigendur og leigutaka Álfabakka 2a um mótvægisaðgerðir sem geta dregið úr áhrifum ásyndar hússins.
Umhverfis- og skipulagssviði hefur verið falið að setja af stað umferðartalningar við Álfabakka og æfingasvæði Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR) svo hægt sé að meta áhrif á uppbyggingar og breytingar umferðarfyrirkomulags síðustu ára á nærumhverfið.
Ennfremur samþykkti borgarráð að fela umhverfis- og skipulagssviði að vinna að frekari deiliskipulagsvinnu í Norður- og Suður-Mjódd, þar með talið svæði ÍR. Haft verði náið samráð við hagaðila á svæðinu.
Löngu tímabært að taka á þessu erfiða máli
„Það er auðvitað löngu tímabært að bregðast við þessu erfiða máli en tillögunum er ætlað að tryggja að mistök sem þessi endurtaki sig ekki. Samhliða úrbótatillögum innri endurskoðunar fylgjum við málinu eftir með tillögum sem snúa að því að hefja samtal við húseigendur um bætta ásýnd byggingarinnar, meta áhrif umferðar um svæðið og hugsa skipulag Mjóddarinnar í heild til framtíðar. Mjóddin er auðvitað þungamiðja verslunar og þjónustu fyrir Breiðholtið, þar er jafnframt kröftugt íþróttastarf og mikilvægt að framtíð svæðisins sé hugsuð heildstætt með þarfir íbúa að leiðarljósi”, segir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri.