Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 18. júní, var haldinn 5827. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:02. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Björg Magnúsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason og Stein Olav Romslo. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson, Theodór Kjartansson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Ívar Vincent Smárason.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. júní 2026, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 16. júní 2026 á tillögu um að fella niður reglulega fundi borgarstjórnar í júlí og ágúst nk. og að borgarráð fari með heimildir borgarstjórnar á þeim tíma. MSS26060082
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. júní 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki afnotasamning vegna hluta lóðar að Skúlagötu 11, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26050328
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Mikilvægt er að tryggja góða upplýsingagjöf til íbúa varðandi þær framkvæmdir sem framundan eru og að öllu raski og ónæði gagnvart íbúum verði haldið í algjöru lágmarki.
Fylgigögn
-
Lagt fram mánaðarlegt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar-mars 2026, dags. í dag, ásamt fylgiskjölum.
Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir og Jónas Skúlason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26050026
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Í rekstraruppgjöri Reykjavíkurborgar fyrstu þrjá mánuði ársins 2026 er ljóst að meirihlutinn tekur við afar slæmri fjárhagsstöðu. Rekstrarniðurstaðan reyndist neikvæð sem nemur 4,6 milljörðum króna fyrstu þrjá mánuði ársins og var 1,6 milljörðum króna lakari en áætlað var. Brýnt verður að ráðast í aðgerðir og hagræðingar til þess að mæta þessum hallarekstri.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, um kosningu fulltrúa í almannavarnarnefnd til fjögurra ára og tveggja til vara á fundi borgarstjórnar þann 2. júní sl. Einar Þorsteinsson var kjörinn aðalfulltrúi. Björg Magnúsdóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir voru kjörnar varafulltrúar.
Borgarstjóri Hildur Björnsdóttir er sjálfkjörin í nefndina. MSS26060018Fylgigögn
-
Lagt er til að Hildur Björnsdóttir taki sæti í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og að Einar Þorsteinsson taki sæti sem varafulltrúi.
Samþykkt. MSS26060104 -
Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 11. júní 2026 og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að segja upp afnotasamningi um borgarland í Gufunesi við Samtök hjólabúa í samræmi við 3. gr. samningsins þar sem heimilt er að segja honum upp af hálfu beggja aðila með þriggja mánaða skriflegum fyrirvara.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Einnig var lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. júní 2026.
Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar.
Málið fór til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:
Það er grundvallarskylda Reykjavíkurborgar að tryggja að fólk búi við öruggar, lögmætar og mannsæmandi aðstæður. Borgin getur ekki horft fram hjá því að núverandi laga- og regluumhverfi gerir ekki ráð fyrir varanlegri búsetu í hjólhýsum. Fyrir liggur mat starfshóps borgarinnar um málefni hjólabúa þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að varanleg búseta í hjólhýsum sé að verulegu leyti ósamrýmanleg gildandi lögum, meðal annars með hliðsjón af skipulags-, mannvirkja- og lögheimilislöggjöf. Þá gera reglur um tjald- og hjólhýsastæði ráð fyrir tímabundinni dvöl ferðamanna en ekki langtímabúsetu. Jafnframt liggur fyrir að ekki hafa verið gefin út afnotaleyfi vegna hjólhýsa á svæðinu og að verulegur kostnaður og óvissa fylgir því að reyna að útbúa svæðið með þeim innviðum sem nauðsynlegir væru. Þá hafa komið upp eldsvoðar á sambærilegum svæðum og sérfræðingar bent á sérstaka áhættu tengda eldvörnum og öryggi. Meirihlutinn telur að borgin eigi ekki að festa í sessi búsetuform sem hvorki nýtur skýrrar lagaheimildar né tryggir íbúum það öryggi og þá þjónustu sem fólk á rétt á að búa við. Þess í stað þarf að vinna með viðkomandi einstaklingum að lausnum sem samræmast lögum og tryggja örugga búsetu og viðeigandi stuðning eftir þörfum hvers og eins.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, ásamt áheyrnarfulltrúum Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands, lögðu fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:
Miður er að sjá að nýr hægrimeirihluti segi upp afnotasamningi sem er nýgerður við hjólabúa með engin áform um annað fyrirkomulag. Þann 16. apríl sl. var samþykktur afnotasamningur þannig að þau sem búa í hjólhýsum og húsbílum geti haft öruggt og viðunandi rými til afnota. Hjólabúar hafa lengi verið við Sævarhöfða á svæði sem hentar ekki og því var ánægjulegt að viðeigandi staðsetning hafi verið fundin fyrir hópinn sem hafði búið við mikla óvissu. Í samningi um afnotasamning er skýrt kveðið á um að hið leigða svæði skuli eingöngu nýtt til óhagnaðardrifinna afnota og að hjólabúar greiði fyrir afnot af svæðinu. Hópur fólks kýs að búa með þessum hætti og er það hlutverk yfirvalda að mæta því. Því er miður að hægriflokkarnir slíti samningi skömmu eftir að hann var gerður. MSS26030016
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 11. júní 2026 og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum:
Boðað hefur verið til aðalfundar í Faxaflóahöfnum sf. í samræmi við gr. 4.1 í sameignarfélagssamningi félagsins föstudaginn 12. júní 2026 kl. 13:30 að Tryggvagötu 17, Reykjavík. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Dagskrá aðalfundar Faxaflóahafna sf. þann 12. júní 2026 er eftirfarandi: 1. Stjórn félagsins skal skýra frá hag þess og rekstri á liðnu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skal lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðanda félagsins til samþykktar í samræmi við 6. gr. 3. Hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu. Hafnarstjórn leggur til að á árinu 2026 verði úttekt vegna afkomu rekstrarársins 2026 til eigenda að fjárhæð 1.639 millj.kr. Tillöguna er að finna á bls. 3 í meðfylgjandi ársreikningi félagsins. 4. Tillaga stjórnar um stefnumörkun og framtíðarsýn sbr. gr. 5.5 og skýrsla um framkvæmd stefnunnar og árangur af innleiðingu hennar. Ný stefna Faxaflóahafna sf. fyrir árin 2024-2030 var lögð fram á aðalfundi 2025. 5. Tillaga stjórnar um stefnu um fjármagnsskipan, sbr. gr. 5.5. og skýrsla um framkvæmd stefnunnar og árangur af innleiðingu hennar. Ekki er lögð fram tillaga af hálfu stjórnar þar sem þrjú síðustu ár hefur afgreiðslu á fyrirliggjandi tillögu verið frestað. 6. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu sbr. gr. 5.5. og skýrsla um framkvæmd hennar og árangur af innleiðingu hennar. Tillaga er um óbreytta starfskjarastefnu frá fyrra ári. 7. Ákvörðun skal tekin um þóknun til stjórnarmanna og nefndarmanna hafi undirnefndir stjórnar verið skipaðar, fyrir störf þeirra á komandi starfsári. Tillaga er um að stjórnarlaun samsvari flokki 2 í launakerfi fastra nefnda hjá Reykjavíkurborg, líkt og gilt hefur undanfarin ár. 8. Lýst kjöri stjórnar, sbr. grein 5.1. 9. Kosning löggilts endurskoðanda fyrir félagið í samræmi við 7. gr. Lagt er til að Grant Thornton endurskoðun ehf. fari með endurskoðun reikninga félagsins. 10. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. Lagt er til að tillögur 1, 2, 3, 4, 6, 7 og 9 verði samþykktar en tillögu 5 frestað og hún tekin til umfjöllunar í sameiginlegum hópi eigenda um fjármagnsskipan Faxaflóahafna. Gert verði ráð fyrir sérstökum eigendafundi að aflokinni þeirri umfjöllun. Varðandi tillögu 8 um kjör fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Faxaflóahafna sf. að þá leggur tilnefninganefnd borgarráðs leggur til að stjórnarkjöri verði frestað til framhaldsaðalfundar sem verður boðað til eigi síðar 15. sept. nk. sbr. útskrift fundargerðar dags. 6. mars 2026. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Faxaflóahafna sem haldinn verður 12. júní 2026 MSS26060033
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 11. júní 2026 og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum:
Boðað hefur verið til aðalfundar Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. föstudaginn 12. júní 2026 að Sævarhöfða 6-10 í samræmi við 10. til 14. gr. samþykkta félagsins. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Eftirfarandi dagskrá liggur fyrir aðalfundi Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf.: 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. 2. Ársreikningur og skýrsla endurskoðanda. 3. Tillaga stjórnar um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu og greiðslu arðs. Stjórn leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa fyrir árið 2025. 4. Tillaga stjórnar um stefnu og framtíðarsýn og helstu mælikvarða. Stjórn leggur fram nýja stefnu, framtíðarsýn og helstu mælikvarða félagsins. Framtíðarsýnin er að Malbikunarstöðin Höfði hf. verði leiðandi afl í sjálfbærri og vandaðri framleiðslu og útlagningu á malbiki á Íslandi. Sett eru fram mælikvarðar um gæði og afköst, fjárhag, umhverfi og öryggi, viðskiptavini og starfsfólk, meðal annars markaður um að auka útlagningu í 60.000 tonn og framleiðslu í 80.000 tonn á ári árið 2030. 5. Tillaga stjórnar um fjárhags- og starfsáætlun. Stjórn leggur fram fjárhags- og starfsáætlun fyrir komandi rekstrarár. Áætlaðar tekjur eru 2.000 millj.kr., áætlaður rekstrarkostnaður 1.800 millj.kr. og áætlað EBITDA 200 millj.kr. Áherslur starfsársins eru hámæli í gæðum, eflt innra gæðaeftirlit, öryggi starfsmanna og minnkað kolefnisspor. 6. Tillaga stjórnar um stefnu um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu. Stjórn leggur fram stefnu um fjármagnsskipan og arðgreiðslur. Eiginfjárhlutfall skal að jafnaði ekki fara undir 70% (er nú 78,4%) og hlutfall skulda á móti EBITDA ekki fara yfir 3,0x. Arðgreiðslur skulu að jafnaði nema 5–25% af hagnaði liðins árs, að teknu tilliti til fjárhagslegrar stöðu og áætlana félagsins. 7. Tillaga stjórnar um fjárfestingaráætlun. Stjórn leggur fram fjárfestingaráætlun fyrir komandi rekstrarár sem miðar að aukinni afkastagetu, betri umhverfisárangri og öflugum innviðum. Áhersla er m.a. á endurnýjun lykiltækja, aukna sjálfvirkni, hreinorkubifreiðar og sjálfbæra orkulausn Borgarráð fyrir verksmiðju. Fjárfestingar verða fjármagnaðar með blöndu af eigin fé og lánsfjármögnun. 8. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu. Stjórn leggur fram starfskjarastefnu sem miðar að sanngjörnum, gagnsæjum og samkeppnishæfum kjörum, jafnræði í launum og stöðugleika starfsmannahóps. Laun framkvæmdastjóra ákvarðast af stjórn og eru endurskoðuð reglulega. 9. Aðrar stefnur sem stjórn skal bera undir hluthafafund skv. 3. mgr. 17. gr. 10. Kosning endurskoðunarfélags. Lagt er til að Grant Thornton endurskoðun ehf. fari með endurskoðun reikninga félagsins, í samræmi við samning sem undirritaður var í maí 2023. 11. Tillögur stjórnar um skipan undirnefndar skv. 20. gr., ef við á. 12. Tillaga stjórnar um greiðslu þóknunar til undirnefndar, ef við á. 13. Kosið í stjórn félagsins, ef við á skv. ákvæði 2. mgr. 14. gr. 14. Tillaga stjórnar um greiðslu þóknunar til stjórnar. Stjórn leggur til að stjórnarlaun samsvari flokki II í launakerfi fastra nefnda hjá Reykjavíkurborg og að formaður fái tvöföld stjórnarlaun. Greiðslur miðast við 10 stjórnarfundi á ári. 15. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. Lagt er til við borgarráð að tillögur 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 10 og 14 verði samþykktar. Varðandi tillögu nr. 13 leggur tilnefninganefnd borgarráðs til að stjórnarkjöri verði frestað til framhaldsaðalfundar sem boðað verður til eigi síðar en 15. september nk., sbr. útskrift fundargerðar dags. 5. mars 2026. Lagt er til við borgarráð að tillagan verði samþykkt. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Malbikunarstöðvarinnar Höfða sem haldinn verður 12. júní 2026. MSS26050049
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13. maí 2026. MSS26010019
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls sex mál (MSS26010011, MSS26060090, MSS26050067, MSS25050113, MSS26060106, MSS26060020). MSS26050088
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26060068
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á hættulegri búsetu í íbúðarhúsnæði.
Birgir Finnsson og Aldís Rún Lárusdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26010015
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins þakkar Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins fyrir vandaða kynningu og mikilvæga vinnu við að kortleggja og bregðast við hættulegri búsetu í íbúðarhúsnæði. Kynningin varpar skýru ljósi á vaxandi áskoranir sem tengjast óleyfisbreytingum, herbergjaleigu og búsetu í rýmum sem uppfylla ekki kröfur um öryggi og heilnæmi. Meirihlutinn leggur áherslu á að öryggi íbúa verði ávallt haft að leiðarljósi. Óviðunandi er að fólk búi við aðstæður þar sem flóttaleiðir eru ófullnægjandi, brunavörnum ábótavant eða húsnæði ekki ætlað til íveru. Jafnframt er mikilvægt að stjórnvöld vinni saman að því að tryggja að viðkvæmir hópar lendi ekki í slíkri stöðu vegna skorts á viðeigandi húsnæðisúrræðum. Meirihlutinn styður áframhaldandi samstarf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, byggingarfulltrúa, Heilbrigðiseftirlits og félagsþjónustu um markvissa eftirfylgni og úrbætur til að tryggja öruggt og lögmætt húsnæði fyrir alla íbúa.
-
Fram fer kynning á nýrri þjóðarhöll.
Ómar Einarsson, Steinþór Einarsson, Ólöf Örvarsdóttir og Eva Bergþóra Guðbergsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Borgarfulltrúarnir Albert Guðmundsson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Bjarni Fritzson, Björn Gíslason, Guðný María Jóhannsdóttir, Lárus Blöndal Sigurðsson, Líf Magneudóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Róbert Ragnarsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Sigrún E Unnsteinsdóttir, Stefán Pálsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MIR24100002
-
Lagt fram bréf endurskoðunarnefndar, dags. 22. maí 2026, varðandi stjórnsýsluúttekt Innri endurskoðunar og ráðgjafar á skipulagsferli við Álfabakka 2A í Suður-Mjódd, ásamt fylgiskjölum. Einnig lagt fram minnisblað Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 12. júní 2026.
Ingunn Ólafsdóttir, Arnheiður Elísa Ingjaldsdóttir og Pétur Ingi Haraldsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Borgarfulltrúarnir Albert Guðmundsson, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Bjarni Fritzson, Guðný María Jóhannsdóttir, Lárus Blöndal Sigurðsson, Líf Magneudóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Róbert Ragnarsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Sigrún E Unnsteinsdóttir, Stefán Pálsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. IER26040007
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins þakkar innri endurskoðun Reykjavíkurborgar ítarlega og vandaða úttektarvinnu vegna skipulagsferils Álfabakka 2A. Ljóst er af niðurstöðunni að mistök áttu sér stað á mörgum stigum málsins. Mikilvægt er að koma í veg fyrir að mistök af þessum toga endurtaki sig og leggur meirihlutinn því til að allar tólf úrbótatillögur innri endurskoðunar komist til framkvæmda án tafar.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 15. júní 2026, varðandi 12 úrbótatillögur Innri endurskoðunar og ráðgjafar vegna Álfabakka 2A, ásamt fylgiskjölum. MSS26060116
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 16. júní 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fela umhverfis- og skipulagssviði og menningar- og íþróttasviði að fara í formlegar viðræður við eigendur og leigjendur atvinnuhúsnæðisins Álfabakka 2 um mótvægisaðgerðir sem geta dregið úr áhrifum ásýndar byggingarinnar á næsta umhverfi. Haft verði samráð við Búseta húsnæðissamvinnufélag og aðra hagaðila þar sem við á.
Greinargerð fylgir tillögunni. MSS26060096
Samþykkt.Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 16. júní 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fela umhverfis- og skipulagssviði að vinna að frekari deiliskipulagsvinnu í Norður- og Suður-Mjódd, þar með talið svæði Íþróttafélagsins ÍR, enda er brýn þörf fyrir að haldið verði heildstætt utan um skipulagsmál á svæðinu. Haft verði náið samráð við hagaðila á svæðinu. Þá verði umferðarflæði á svæðinu skoðað sérstaklega.
Greinargerð fylgir tillögunni. MSS26060097
Samþykkt.Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 16. júní 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fela umhverfis- og skipulagssviði að setja af stað umferðartalningar við Álfabakka og æfingasvæði ÍR svo hægt sé að meta áhrif á uppbyggingar og breytingar umferðarfyrirkomulags síðustu ára á nærumhverfið.
Samþykkt. MSS26060111
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 18. júní 2026, varðandi erindisbréf um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum: Greinargerð fylgir tillögunni. MSS26060049
Frestað. -
Kosningu í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins er frestað. MSS26050087
-
Kosningu í stefnuráð byggðasamlaganna er frestað. MSS26050087
Fundi slitið kl. 12:18
Einar Þorsteinsson Ari Edwald
Björg Magnúsdóttir Pétur Hafliði Marteinsson
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Rúnar Freyr Gíslason
Stein Olav Romslo
PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 18.6.26 - prentvæn útgáfa