Kynningarfundur vegna útboðs á vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða
Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í útboð á vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða fyrir veturinn 2026-2027. Áhugasöm eru hvött til að mæta á kynningarfund á Fiskislóð 37c þann 25. júní næstkomandi klukkan 10.
Verkið felst í hálkueyðingu og snjóhreinsun göngu- og hjólaleiða í Reykjavík. Útboðið býður upp á að fyrirtæki og einyrkjar með vinnuvélar sem henta í vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða geti tekið þátt í útboðinu.
Að þessu sinni er um eitt útboð að ræða þar sem nokkrir útboðshlutar eru í boði þar sem minni aðilar og einyrkjar sem hafa tæki til umráða geta tekið þátt í. Útboðið er á útboðsvefnum og er númer 16317.