Svona mun Þjóðarhöllin líta út

Þjóðarhöllin í Laugardal
Þjóðarhöllin í Laugardal

Nú er komin mynd á nýja og glæsilega Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki sem mætir kröfum nútímans með fyrirmyndaraðstöðu fyrir landslið, íþróttafélög og almenning til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru. 

Þjóðarhöll ehf., fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar, hefur valið tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. að hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal.

Auglýst var eftir teymum til að taka að sér verkefnið árið 2024. Með teymum var leitast við að semja við hóp aðila til að annast framkvæmdina frá upphafi til enda, allt frá hönnun að fullkláruðu mannvirki. Í forvalinu voru þrjú teymi valin til þátttöku í samkeppnisútboði. Tvö endanleg tilboð bárust í samkeppnisútboðinu, annars vegar frá teymi Ístaks hf. og hins vegar frá teymi Íslenskra aðalverktaka hf. 

Mennta- og barnamálaráðuneytið fer með málið fyrir hönd ríkisins með aðkomu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir annaðist útboðsferlið. 

Þjóðarhöllin sem mun rísa í Laugardalnum

Í mati á tilboðum tók þrettán manna matsnefnd afstöðu til 32 ítarlegra matsliða á grundvelli krafna ríkis og borgar til mannvirkisins. Horft var til þess að tryggja framúrskarandi gæði í hönnun, byggingu og rekstri Þjóðarhallar með áherslu á notagildi, útlit, frágang, aðgengi, sjálfbærni og hagkvæmni. Í lokavalinu stóð teymi Íslenskra aðalverktaka hf. ásamt ASK arkitektum, COWI, LPO arkitektum, Ísloft, EOH og Landhönnun uppi sem sigurvegari. 

Þjóðarhöllin innandyra

Tilboðið er að fjárhæð 16,8 milljarða króna, með virðisaukaskatti. Tækifæri til hagræðingar eru til staðar samhliða samningagerð og fullnaðarhönnun án þess að breyta kröfum um gæði og notagildi. 

Ný Þjóðarhöll mun umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum, stórbæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni og aðra íþróttaiðkendur auk þess að vera fjölnota hús fyrir þjóðina alla. 

Hún mun rísa í hjarta Laugardals, sunnan Laugardalshallar, með góðri tengingu við borgarlínu, göngu- og hjólaleiðir og fyrirliggjandi mannvirki: Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöll. Notendur verða íþróttafélög, landsliðshópar sérsambanda fyrir æfingar og keppni, skólar í nágrenninu, háskólar fyrir íþróttakennslu og ýmsir viðburðahaldarar. 

Þjóðarhöll - aðalsalur

Höllin verður aðgengileg öllum, vettvangur lýðheilsuverkefna og samkomustaður íþróttafólks og almennings með tilheyrandi veitingarekstri sem tengist safnsvæði áhorfenda.

Nánari upplýsingar um mannvirkið er að finna á vef Þjóðarhallar ehf. 

Samkvæmt reglum opinberra innkaupa stendur nú yfir lögbundinn biðtími þar sem tilboðsgjöfum gefst kostur á að kynna sér niðurstöðuna og eftir atvikum gera athugasemdir eða bera ákvörðunina undir kærunefnd útboðsmála áður en heimilt er að ganga frá samningi. Að samningsgerð lokinni hefst undirbúningur framkvæmda. 

Myndir/myndband Þjóðarhöll ehf.