Fossvogur - endurgerð stíga
Verkið felst í endurgerð á malbikuðum stígum í Fossvogi auk þess sem öll lýsing verður endurnýjuð.
júlí 2026 - september 2026
Hvað verður gert?
Verkið felst í endurgerð á malbikuðum stígum í Fossvogi. Með verkinu verður öll lýsing einnig endurnýjuð. Áætlaður verktími er sex vikur.
Helstu magntölur:
- Malbikaður göngustígur: 1.380 m2
- Upprif á malbiki: 1.100 m2
- Jarðvegsskipti: 650 m³
- Niðurtekt ljósastólpa: 17 stk.
- Uppsetning ljósastólpa: 17 stk
-
Þökulögn: 1.150 m²
Markmiðið er að bæta aðgengi og upplifun á útivistarsvæðinu í Fossvogi. Afvötnun á stígunum verður bætt til að koma í veg fyrir klakamyndun sem getur skapað hættu.
Hvernig gengur?
Júlí 2026
Áætlað er að hefja framkvæmdir aðra vikuna í júlí.
Júní 2026
Framkvæmdin er í útboði
Hver koma að verkinu?
Last updated 08.07.2026