Risaeðlubein afþökkuð

Teiknuð mynd af beinagrind risaeðlunnar.

Borgarráð hefur samþykkt tillögu starfshóps um að afþakka gjöf frá samtökunum Leap Lab, sem buðust til að gefa Reykjavíkurborg hluta af beinagrind risaeðlu sem fundust í Wyoming ríki í Bandaríkjunum. Starfshópurinn var skipaður árið 2023 til að meta kostnað og forsendur fyrir móttöku gjafarinnar.

Gjöfin fólst í 36 risaeðlubeinum og beinaleifum, þar af 17 beinum sem gætu orðið hluti af samsettri þrívíddarprentaðri beinagrind. Skilyrði gjafarinnar var að gripirnir yrðu hafðir til sýnis í Reykjavík með það að markmiði að efla vísindalæsi.

Í niðurstöðum starfshópsins kemur fram að þótt fræðslugildi sýningar af þessu tagi gæti verið umtalsvert myndi móttaka gjafarinnar kalla á umfangsmikla og vandaða sýningu með gagnvirkri miðlun, sérhæfðu sýningarhúsnæði og áframhaldandi rekstri. Slíku verkefni fylgdi verulegur kostnaður og þar að auki væri óvissuþættirnir fjölmargir, til dæmis tengdir sýningunni, framsetningu, húsnæði og rekstri.

Starfshópurinn bendir jafnframt á að risaeðlur tengist hvorki náttúrusögu Íslands né starfsemi Reykjavíkurborgar með beinum hætti. Sýningarhald af þessum toga fellur því ekki að hefðbundnu hlutverki borgarinnar. Þá hafi forsendur málsins einnig breyst þar sem Leap Lab hyggst gefa Perlunni sambærilega gjöf sem felur í sér risaeðlubein og þrívíddarlíkan.

Með hliðsjón af þessum atriðum lagði starfshópurinn til að gjöfin yrði afþökkuð og hefur borgarráð nú samþykkt þá niðurstöðu.


Eldri frétt um málið

Tillaga starfshóps