Vel heppnaður loppumarkaður og reiðtúrar á Tjörn

Barn teymt á hestbaki við tjörnina.

Loppumarkaður á vegum foreldra og kennara við leikskólann Tjörn fór fram seinnipart á þriðjudag í einstaklega góðu veðri. Fyrr um daginn var ekki síður fjör því þá fengu börnin tækifæri til að fara á hestbak þegar Krakkahestar mættu á svæðið. Börn og kennarar úr Öldukoti, hinni starfsstöð leikskólans, komu og tóku þátt í dagskránni.

Börnin tóku virkan þátt í viðskiptunum

Loppumarkaðurinn heppnaðist afar vel og vakti mikla ánægju meðal gesta og ekki síður hjá börnunum sem tóku virkan þátt í viðskiptunum. Markaðurinn hafði verið vel kynntur á samfélagsmiðlum og á ýmsum stöðum í hverfinu, eins og Kjötborg, Sundlaug Vesturbæjar og Pétursbúð. Viðburðurinn sýndi vel þann sterka samfélagsanda sem ríkir umhverfis leikskólann Tjörn og mikilvægi samvinnu foreldra, barna og starfsfólks.

Loppumarkaður á lóð leikskólans Tjarnar.

Prúttuðu og skiptu á varningi

Stemningin á markaðnum var lifandi og lærdómsrík. Börnin fengu tækifæri til að prófa sig áfram með raunveruleg viðskipti; þau versluðu með peninga, prúttuðu og skiptu á varningi. Þessi þátttaka þótti bæði skemmtileg og fróðleg, enda fengu börnin innsýn í grunnatriði fjármála og samskipta í gegnum leik og reynslu.

Foreldrafélag Tjarnar hefur þegar lýst yfir áhuga á að halda annan loppumarkað á næstunni, annaðhvort í sumar eða í tengslum við næsta starfsdag leikskólans. Árangur gærdagsins bendir til þess að slíkir viðburðir eigi eftir að festa sig í sessi sem fastur liður í starfi félagsins.

Loppumarkaður á lóð leikskólans Tjarnar.