Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, miðvikudaginn 13. maí var haldinn 187. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:02. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Sara Björg Sigurðardóttir og Árelía Eydís Guðmundsdóttir. Andrea Jóhanna Helgadóttir og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Theodór Kjartansson starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26050133 dags. 11. maí 2026 varðandi EES útboð Rammasamningur um dúkalögn, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði allra hæfa bjóðenda sem voru Garðar dúkari ehf.,Ólafur Jónsson ehf., Jökull Þorleifsson ehf. og SG Dúkari ehf.
Samþykkt.Margrét Lilja Gunnarsdóttir, Gréta Þórsdóttir Björnsson og Ingi Rafn Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK2605131 dags. 8. maí 2026 varðandi EES útboð 16271 Rammasamningur um múrverk, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði allra hæfa bjóðenda sem voru Ísbyggingar ehf., Ari Oddsson ehf., Flísa- og múrkompaníið og Múr og málningarþjónustan ehf.
Samþykkt.
Margrét Lilja Gunnarsdóttir, Gréta Þórsdóttir Björnsson og Ingi Rafn Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK25120161 dags. 8. maí 2026 varðandi EES Útboð 16261 Rammasamningur um sérfræðiþjónustu umhverfis- og skipulagssviðs, þar sem lagt er til að samið verði við alla hæfa bjóðendur, alls 115 fyrirtæki.
Samþykkt.
Margrét Lilja Gunnarsdóttir, Gréta Þórsdóttir Björnsson og Ingi Rafn Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi skóla- og frísstundasviðs merkt SFS25090025 dags. 11. maí vegna útboðs 16209 ræsting fyrir grunnskóla í Reykjavík þar sem lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda í hverjum hluta, þ.e. Daga hf. hluta 1, Daga hf. í hluta 2, Daga hf. í hluta 3 og Sólar ehf. í hluta 4.
Frestað.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:39
Andrea Helgadóttir Sara Björg Sigurðardóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráð 13.05.2026 - Prentvæn útgáfa