Borgarráð - Fundur nr. 5825

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 21. maí, var haldinn 5825. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru Alexandra Briem, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir, Kjartan Magnússon, Líf Magneudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir sem tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. maí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Borgarholts II, Engjahverfis C, vegna nýrrar lóðar við Starengi, ásamt fylgiskjölum.
    Frestað.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25040233

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. maí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis, áfanga 1-6, vegna nýrra lóða við Hverafold, ásamt fylgiskjölum.

    -     Kl. 9:10 taka borgarstjóri og Dóra Björt Guðjónsdóttir sæti á fundinum.
    -    Kl. 9:11 tekur Ebba Schram sæti á fundinum.

    Frestað.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25040243

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. maí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 2 vegna lóðanna nr. 8 við Kleppsmýrarveg og nr. 2 við Bátavog, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020405

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. maí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026 á auglýsingu á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina að Ægisíðu 104, Leikskólinn Ægisborg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040352

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að leggja drög að endurbótum og stækkun leikskólans Ægisborgar í Vesturbænum, þar með talið í stýrihópnum Brúum bilið og spretthóp um leikskólauppbyggingu sl. sumar. Hér er lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu um að reist verði nýtt leikskólahúsnæði á tveimur hæðum ásamt kjallara sem mun rúma allt að 160 börn í átta deildum leikskóla í stað fjögurra deilda leikskóla fyrir 75 börn. Áfram er gert ráð fyrir stórri leikskólalóð og að eldri húsin víki fyrir nýju húsnæði sem uppfyllir nútímakröfur.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 18. maí 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki breytingu á deiliskipulagi á reit 1.240.2, Bankareit, vegna lóðarinnar að Laugavegi 120, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. apríl 2026, á samt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25100343

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. maí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026 á auglýsingu á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóð nr. 3 við Langavatnsvegi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25080143

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. maí 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026 á tillögu að úthlutun styrkja úr Húsverndarsjóði árið 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum. Trúnaði verður aflétt við úthlutun styrkjanna.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26010220

    Fylgigögn

  8. Lagt fram trúnaðarmerkt bréf borgarstjóra, dags. 18. maí 2026, varðandi framlagningu umsagna vegna úrbótatillagna Innri endurskoðunar og ráðgjafar vegna úttektar á samningaviðræðum Reykjavíkurborgar við rekstraraðila og lóðarhafa bensínstöðvalóða í Reykjavík, ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
    Bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók.

    Ingunn Ólafsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Stefanía Scheving Thorsteinsson og Theódór Kjartansson taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Glóey Helgudóttur Finnsdóttur, Halldóru Káradóttur, Jóhönnu Kristrúnu Birgisdóttur og Oddrúnu Helgu Oddsdóttur sem taka sæti á fundinum með rafrænum hætti. MSS25100071

  9. Fram fer umræða um úttekt Innri endurskoðunar og ráðgjafar á Álfabakka 2a Suður-Mjódd.

    Ingunn Ólafsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Helga Björk Laxdal víkur af fundinum undir þessum lið og Heimir Snær Guðmundsson tekur við fundarritun. IER25010004

  10. Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 18. maí 2026, um viðauka við fjárhagsáætlun 2026. Greinargerðir fylgja tillögunum.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010020

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er um að ræða mikilvægar tillögur um stækkun Klettaskóla, frítt í strætó fyrir ungmenni og bætta aðstöðu íþróttafélaganna Ármanns og Fjölnis sem hér með eru fjármagnaðar svo viðkomandi úrbótamál komist til framkvæmda sem fyrst. Mikilvægt er að staðfesta þessar tillögur í borgarstjórn

    Fylgigögn

  11. Bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 18. maí 2026, þar sem óskað er eftir að sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs verði heimilað að breyta rekstrarleyfi LFA ehf. -með þeim hætti að LFA ehf. verði heimilt að reka leikskóla í Korpukoti við Fossaleyni 12, fyrir allt að 120 börn, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25050007

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 18. maí 2026, þar sem óskað er eftir að sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs verði heimilað að gera  viðauka við núgildandi þjónustusamning LFA ehf. sem kveði á um að heimilt verði að greiða framlag til LFA ehf. vegna leikskólans Korpukots vegna 120 barna með lögheimili í Reykjavík á aldrinum 12 mánaða til sex ára í stað 100 barna, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25050007

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 18. maí 2026, varðandi umsagnir og minnisblöð frá sviðum Reykjavíkurborgar og miðlægri stjórnsýslu  um stöðu tillagna vegna betri nýtingar á fjármunum Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.

    Vigfús Karlsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25040003

    Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er jákvætt að hugmyndir íbúa og starfsfólks hafi verið teknar saman, en niðurstaðan veldur vonbrigðum. Í stað skýrrar hagræðingaráætlunar liggur að mestu fyrir safn stöðumata, minnisblaða og almennra áforma þar sem víða er talað um að „rýna“, „skoða“, „undirbúa“ og „greina“ frekar. Þó eru einstök dæmi um raunhæfan ávinning, svo sem lækkun veikindahlutfalls, innvistun verkefna hjá umhverfis- og skipulagssviði, LED-væðingu, hagræðingu í rekstri Droplaugarstaða og mögulegan ávinning af sölu Þorrasels. Slík dæmi sýna að tækifærin eru til staðar. Vandinn er að átakið virðist skorta festu. Það vantar heildstæða forgangsröðun, tímasetta aðgerðaráætlun, skýra ábyrgð, mælanleg markmið og sundurliðaðan fjárhagslegan ávinning. Borgarbúar eiga rétt á meira en góðum áformum. Það þarf að leggja fram raunverulega hagræðingaráætlun með fjárhæðum, ábyrgðaraðilum og skýrum skiladögum, fulltrúi Viðreisnar væntir þess að nýr meirihluti taki fjármál borgarinnar af meiri festu en hér er lýst.

    Fylgigögn

  14. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki þrjár tillögur KPMG til úrbóta til að styrkja stöðu persónuverndar hjá Reykjavíkurborg, í fyrsta lagi að efla hlutverk og ábyrgð, í öðru lagi að efla samræmingu og eflingu gæðamála og í þriðja lagi að stuðla að vitundarvakningu um persónuvernd í allri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Enginn kostnaður felst í tillögunum. Persónuverndarfulltrúa Reykjavíkurborgar verði falin innleiðing tillagnanna.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað. MSS2605000

  15. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 18. maí 2026, þar sem lögð er fram til kynningar skýrsla starfshóps um framtíðarfyrirkomulag akstursþjónustu fatlaðs og aldraðs fólks, ásamt fylgiskjölum.

    Bryndís Snæbjörnsdóttir, Haukur Þór Haraldsson, Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, Ólafur Steingrímsson og Þórunn Þórðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.. MSS25070080

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Akstursþjónusta fatlaðs fólks og aldraðra, sem í dag er rekin í gegnum Pant, er mjög mikilvæg þjónusta. Í þessari skýrslu er farið yfir nokkrar hugsanlegar útfærslur um framtíðarfyrirkomulag akstursþjónustunnar og virðist sem lítill munur sé á kostnaði við þær. Það ber að hafa í huga þó að hér er um viðkvæma þjónustu að ræða, og áður en núverandi verklag var tekið upp áttu sér stað nokkur mjög óheppileg atvik sem ber að forðast. Því leggjum við áherslu á að leitað verði leiða til að halda í núverandi stöðugleika og samlegð með rekstri stjórnstöðvar sem færist frá Strætó bs. til Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins.

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 22. apríl 2026 á aðgerðaráætlun stafrænnar stefnu Reykjavíkurborgar 2026-20230, ásamt fylgiskjölum. Jafnframt er lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 18. maí 2026.
    Frestað.

    Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON24090056

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 18. maí 2026, varðandi skýrsla B-hluta fyrirtækja um innleiðingu og eftirfylgni almennrar eigendastefnu 2022-2026, ásamt fylgiskjölum. MSS26050003

    Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Viðreisnar fagnar framlagðri skýrslu um innleiðingu og eftirfylgni almennrar eigandastefnu Reykjavíkurborgar 2022–2026. Eigandastefnan var mikilvægt framfaraskref í stjórnarháttum borgarinnar og hefur skapað skýrari ramma utan um meðferð eigendavalds Reykjavíkurborgar gagnvart B-hluta félögum, byggðasamlögum og öðrum félögum þar sem borgin fer með verulega hagsmuni. Sérstaklega er jákvætt að Reykjavíkurborg hafi með stefnunni skilgreint sig sem virkan eiganda, skýrt hlutverk eigandafyrirsvars, eflt upplýsingagjöf til borgarráðs og komið á faglegra fyrirkomulagi við tilnefningar í stjórnir. Tilnefningarnefnd, auknar kröfur um óháða stjórnarmenn og markvissari fjárhagsleg eftirfylgni eru allt mikilvæg skref í átt að betri stjórnarháttum, auknu gagnsæi og ábyrgari meðferð opinberra eigna. Skýrslan sýnir að innleiðingin hefur þegar skilað árangri og að ýmislegt hefur áunnist á fyrsta kjörtímabili stefnunnar. Jafnframt er ljóst að verkefninu er ekki lokið. Mikilvægt er að halda áfram af festu, ljúka útistandandi breytingum á samþykktum félaga, tryggja reglubundna skýrslugjöf eigandafyrirsvars og festa í sessi það verklag sem þegar hefur reynst vel. Almenn eigandastefna er aðferðafræði og tæki til að tryggja fagmennsku, ábyrgð og langtímahugsun í eignarhaldi borgarinnar. Borgarfulltrúi Viðreisnar er verulega ánægð með framsýni borgarinnar og að hún sé leiðandi opinber aðili í góðum stjórnarháttum.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 18. maí 2026, varðandi svar teymis Youth Climate Action Fund við umsókn Reykjavíkurborgar í ungmennasjóð loftlagslagsaðgerða og upplýst að ekki var hægt að bjóða Reykjavíkurborg sæti í þessari umferð áætlunarinnar, ásamt fylgiskjölum. MSS25120151

    Fylgigögn

  19. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030117

  20. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að heimila teymi stefnumótunar og þróunar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara heimild til að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf., kt. 6506190130, til viðræðna um framlengingu samnings um tímabundin afnot Taylors Tivoli Iceland ehf. af Miðbakka, Geirsgötu 15, í þeim tilgangi að Taylors Tivoli Iceland setji þar upp og reki parísarhjól á svæðinu í sumar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25050083

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að uppbygging á Miðbakkanum endurspegli þá sérstöðu sem hefur gert Reykjavík að aðlaðandi borg: Skapandi borgarlíf, menning, tónlist, matarmenning og tengsl við náttúruna. Að mati undirritaðra fellur Parísarhjólið ekki vel að þeim anda og dregur fremur upp ímynd af ferðamannavæddri afþreyingu sem gæti staðið hvar sem er. Undirrituð hefðu frekar viljað sjá verkefni sem styrkja sérkenni Reykjavíkur og skapa lifandi vettvang fyrir íbúa jafnt sem gesti eins og til dæmis matarmarkað eða leikrými fyrir börn og ungmenni. Með vísan til þessa velja undirrituð að sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    -     Kl. 11.29 víkur Hildur Björnsdóttir af fundinum og Friðjón R. Friðjónsson tekur þar sæti. 

    Fylgigögn

  21. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu, dags. 13. maí sl. sbr. bréf Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 15. maí sl. þar sem óskað er eftir afgreiðslu á vettvangi sveitarfélagsins. Í viljayfirlýsingunni er fjallað um vilja aðila til að vinna saman að mótun og uppbyggingu sérskólaúrræða fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu, en hún felur hvorki í sér lagalegar né fjárhagslegar skuldbindingar aðila.

    Samþykkt.

    Arnar Haraldsson og Páll Björgvin Guðmundsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -     Kl. 11:53 víkur Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir af fundinum. MSS26050043

    Fylgigögn

  22. Lagt fram minnisblað skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 19. maí 2026, um atvinnurými á jarðhæðum, ásamt fylgiskjölum.

    Kamma Thordarson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -     Kl. 11:56 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti. MSS25110117

    Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að brugðist sé við þeirri stöðu að atvinnurými á jarðhæðum standi auð eða nýtist illa, enda eru lifandi jarðhæðir lykilforsenda mannvæns borgarumhverfis, blandaðrar byggðar og þjónustu í nærumhverfi íbúa. Framlagt minnisblað staðfestir þó fyrst og fremst að borgina skortir nauðsynleg gögn, skýrar skilgreiningar og heildstæða stefnu um þessi mál. Það vekur athygli að tillögurnar sem lagðar eru fram eru enn á hugmyndastigi. Þær hafa hvorki verið kostnaðarmetnar né metnar með tilliti til jafnræðisreglu eða fordæmisáhrifa. Slíkt mat verður að liggja fyrir áður en borgin tekur ákvörðun um aðkomu sína, hvort sem um er að ræða styrki, hagstæð leigukjör, samstarf við fasteignaeigendur eða leigu borgarinnar á slíku húsnæði. Það er jákvætt að skoða skapandi starfsemi, félagasamtök, samfélagsrými og nærendurvinnslu-stöðvar sem mögulega starfsemi á jarðhæðum. En borgin má ekki verða björgunaraðili fyrir atvinnurými sem markaðurinn hefur ekki tekið við nema skýrir almannahagsmunir, gagnsæi og jafnræði séu tryggð. Áður en lengra er haldið þarf að liggja fyrir kortlagning, kostnaðarmat, lagalegt mat og skýr forgangsröðun.

    Fylgigögn

  23. Fram fer umræða um notkun almannarýmis á Ingólfstorgi. MSS26050061

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Því ber að halda til haga að þær hugmyndir sem fram komu í síðustu viku um að breyta Ingólfstorgi í markaðstorg byggja ekki á ákvörðun sem tekin var í ráðum borgarinnar, heldur virðast byggjast á misskilningi, en ekki stendur til af hálfu þessarar borgarstjórnar að fara í slíkar breytingar á Ingólfstorgi, þó við viljum gjarnan fá útimarkað í borginni í sumar á öðrum stað.

  24. Lagt fram bréf sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 11. maí 2026, varðandi bókun borgarráðs um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu. MSS25050113

    Fylgigögn

  25. Lagt fram minnisblað borgarlögmanns, dags. 18. maí 2026, um samspil gervigreindarnotkunar og persónuverndarlöggjafar í störfum sveitarfélaga. MSS25010120

    Fylgigögn

  26. Lagt fram minnisblað borgarlögmanns, dags. 18. maí 2026, um ákvæði um líkams- og munatjón í kjarasamningum Reykjavíkurborgar. MSS26050017

    Fylgigögn

  27. Lagt fram bréf forsætisráðuneytisins, dags. 5. maí 2026, varðandi bókun borgarráðs um almyrkva á sólu 12. ágúst 2026. MSS26030102

    Fylgigögn

  28. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum.

    Lagt er til að borgarráð samþykki eftirfarandi tillögur starfshóps samvinnuvettvangs til höfuðs misnotkunar vinnuafls: 1. Að áfram verði byggt á samstarfi Reykjavíkurborgar og ASÍ með áherslu á skilvirkt og formlegt upplýsingaflæði milli aðila, 2. Að komið verði á og viðhaldið sameiginlegum samskiptapunktum (pósthólfum) hjá báðum aðilum til að tryggja samfellu og rekjanleika í samskiptum, 3. Að unnið verði áfram að því að bæta yfirsýn yfir helstu verkefni og samningsaðila Reykjavíkurborgar, eftir því sem við á, til að styðja við eftirlit, 4. Að verklag um viðbrögð við ábendingum og mögulegum brotum verði skýrt og samræmt. Lagt er til að vísa eftirfylgni tillagnanna til skrifstofu fjármálaþjónustu- og ráðgjafar og útboðsteymis umhverfis- og skipulagssviðs, sbr. aðgerðaáætlun innkaupastefnu Reykjavíkur 2026.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS25070028

    Fylgigögn

  29. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kaup á niðurstöðum þjónustukönnunar Gallup, sbr. 3. liður fundargerðar borgarráðs frá 7. maí 2026. Jafnframt lögð fram umsögn þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 4. maí 2026.  
    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS26010002

    Fylgigögn

  30. Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 7. maí 2026. MSS26010007

    Fylgigögn

  31. Lagðar fram fundargerðir stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 23. febrúar, 6. mars og 6. mars. MSS26010018

    Fylgigögn

  32. Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 17. apríl. MSS26010015

    Fylgigögn

  33. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 6. mál (MSS24100050, MSS26040080, IER26040007, MSS23090170, VEL26030132, MSS26040050). MSS26050013

    Fylgigögn

  34. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26050012

    Fylgigögn

  35. Lagðar fram til afgreiðslu umsóknir í hverfissjóð Reykjavíkurborgar.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Árbæjar og Norðlingaholts.
    Samþykkt að veita Peru, Óperukollektífi styrk að fjárhæð kr. 180.000 vegna verkefnisins Fljótandi dívans.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Skólalúðrasveitar Árbæjar/Brekkna styrk að fjárhæð kr. 80.000 vegna verkefnisins Æfingadaga og hópeflis.
    Samþykkt að veita Sunnefu Pálsdóttur styrk að fjárhæð kr. 50.000 vegna verkefnisins Lífsorku, samveru og gleði.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Heiðarborgar styrk að fjárhæð kr. 80.000 vegna verkefnisins Sumarhátíðar leikskólans.
    Samþykkt að veita Ragnheiði Silju Kristjánsdóttur styrk að upphæð kr. 60.000 vegna verkefnisins Sungið um dýrin.
    Samþykkt að veita Margréti Aðalheiði Markúsdóttur styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Pop‑Up Yoga Reykjavík.
    Samþykkt að veita Sirkus Ananas styrk að fjárhæð kr. 40.000 vegna verkefnisins Sumarsirkuss.
    Samþykkt að veita Árvinum styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar/hverfahátíðar.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Selásskóla styrk að fjárhæð kr. 50.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar.
    Samþykkt að veita Mervi Orvokki Luoma styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Biodiversity in the City – 2026.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Breiðholts.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Fellaskóla styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar Fellaskóla og Foreldrafélags Fellaskóla.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Seljaskóla styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna verkefnisins Jákvæðs Breiðholt - Veggjalist í Seljahverfi
    Samþykkt að veita Sunnefu Pálsdóttur styrk að fjárhæð kr. 50.000 vegna verkefnisins Lífsorku, samveru og gleði - Breiðholt
    Samþykkt að veita GETA - samtökunum styrk að fjárhæð kr. 110.000 vegna verkefnisins Get Together.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Ölduselsskóla styrk að fjárhæð kr. 120.000 vegna verkefnisins Sumarhátíðar Ölduselsskóla.
    Samþykkt að veita Menningarsjóði Hallsteins Sigurðssonar styrk að fjárhæð kr. 180.000 vegna verkefnisins Endurlits samfélagssýningar.
    Samþykkt að veita Margréti Aðalheiði Markúsdóttur styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Pop‑Up Yoga Reykjavík.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Hólabrekkuskóla styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Sumarhátíðar Hólabrekkuskóla.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Breiðholtsskóla styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar Breiðholtsskóla.
    Samþykkt að veita Sirkus Ananas styrk að fjárhæð kr. 40.000 vegna verkefnisins Sumarsirkuss.
    Samþykkt að veita Memmm Play styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Úti að brasa - Útistarfs Opna Leikskóla Memmm.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Grafarholts og Úlfarsárdals
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Dalskóla styrk að fjárhæð kr. 180.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar í Dalskóla.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Ingunnarskóla styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna verkefnisins Hrekkjavökuhátíðar.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Sæmundarskóla styrk að fjárhæð kr. 60.000 vegna verkefnisins Skólaslita Sæmundarskóla og vorhátíðar Plútó.
    Samþykkt að veita Sirkus Ananas styrk að fjárhæð kr. 40.000 vegna verkefnisins Sumarsirkuss.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Grafarvogs
    Samþykkt að veita Björgu Ingu Erlendsdóttur styrk að fjárhæð kr. 120 .000 vegna verkefnisins Fræðslu fyrir foreldra.
    Samþykkt að veita Sirkus Ananas styrk að fjárhæð kr. 40.000 vegna verkefnisins Sumarsirkuss.
    Samþykkt að veita Korpúlfum styrk að fjárhæð kr. 240.000 vegna verkefnisins Leikrits sett upp af leiklistahópi Korpúlfa.
    Samþykkt að veita Mervi Orvokki Luoma styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Biodiversity in the City.
    Samþykkt að veita Memmm Play styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Úti að brasa - Útistarfs Opna Leikskóla Memmm.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Hlíðar
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Háteigsskóla styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar Háteigsskóla 2026.
    Samþykkt að veita Ingu Rún Björnsdóttur styrk að fjárhæð kr. 180.000 vegna verkefnisins Kyrrðar á Klambra - samveru slökunar og mjúks jóga.
    Samþykkt að veita Sirkus Ananas styrk að fjárhæð kr. 40.000 vegna verkefnisins Sumarsirkuss.
    Samþykkt að veita Sunnefu Pálsdóttur styrk að fjárhæð kr. 50.000 vegna verkefnisins Lífsorku, samveru og gleði.
    Samþykkt að veita Mervi Orvokki Luoma styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Biodiversity in the City.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Háaleiti og Bústaða.
    Samþykkt að veita Knattspyrnufélaginu Víkingi styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna verkefnisins Sumardagsinsi.
    Samþykkt að veita Sunnefu Pálsdóttur styrk að fjárhæð kr. 50.000 vegna verkefnisins Lífsorku, samveru og gleði.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Fossvogsskóla styrk að fjárhæð kr. 200.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar Foreldrafélags Fossvogsskóla.
    Samþykkt að veita Sirkus Ananas styrk að fjárhæð kr. 40.000 vegna verkefnisins Sumarsirkuss.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Múlaborgar styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna verkefnisins Jólaballs Múlaborgar.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Kjalarness.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Klébergsskóla styrk að fjárhæð kr. 80.000 vegna verkefnisins Foreldrafræðslu
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Klébergsskóla styrk að fjárhæð kr. 90.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar Klébergsskóla.
    Samþykkt að veita Önnu Lyck Filbert styrk að fjárhæð kr. 20.000 vegna verkefnisins Sumarblóma við Klébergslaug.
    Samþykkt að veita Foreldrafélaginu Álfasteini styrk að fjárhæð kr. 70.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar.
    Samþykkt að veita Foreldrafélaginu Álfasteini styrk að fjárhæð kr. 85.000 vegna verkefnisins Sumarhátíðar leikskólans Berg.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Laugardals.
    Samþykkt að veita Íbúasamtökum Laugardals styrk að fjárhæð kr. 180.000 vegna verkefnisins Útimarkaðs Íbúasamtaka Laugardals 2026.
    Samþykkt að veita Sunnefu Pálsdóttur styrk að fjárhæð kr. 50.000 vegna verkefnisins Lífsorku, samveru og gleði.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Langholtsskóla styrk að fjárhæð kr. 125.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar Langholtsskóla.
    Samþykkt að veita Lilju Bjarkar Haraldsdóttur styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Pop-Up Yoga Reykjavík.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Laugarnesskóla styrk að fjárhæð kr. 120.000 vegna verkefnisins Laugarnes á ljúfum – Laugarnesskóli
    Samþykkt að veita Sirkus Ananas styrk að fjárhæð kr. 40.000 vegna verkefnisins Sumarsirkuss.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi leikskólans Hofs styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Gleðigöngu.
    Samþykkt að veita Mervi Orvokki Luoma styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Biodiversity in the City.
    Samþykkt að veita Haraldi Ægi Guðmundssyni styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Sumarjams í Samtuni.
    Samþykkt að veita Púl og basl styrk að fjárhæð kr. 80.000 vegna verkefnisins Pílu og félagsskaps.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Vogaskóla styrk að fjárhæð kr. 125.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar Vogaskóla.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Miðborgar.
    Samþykkt að veita Guðbjörgu Sandholt styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Pop‑up tónleika í háskólum.
    Samþykkt að veita Umbók ehf. styrk að fjárhæð kr. 200.000 vegna verkefnisins Skúlptúrgarðs við Njálsborg.
    Samþykkt að veita Sunnefu Pálsdóttur styrk að fjárhæð kr. 50.000 vegna verkefnisins Lífsorku, samveru og gleði.
    Samþykkt að veita Ólafi Elliða Halldórssyni styrk að fjárhæð kr. 90.000 vegna verkefnisins Lúðraþyts í 150 ár.
    Samþykkt að veita Lilju Bjarkar Haraldsdóttur styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Pop-Up Yoga Reykjavík.
    Samþykkt að veita Sirkus Ananas styrk að fjárhæð kr. 40.000 vegna verkefnisins Sumarsirkuss.
    Samþykkt að veita Maríu Sigríði Halldórsdóttur styrk að fjárhæð kr. 70.000 vegna verkefnisins Sumarmarkaðs á Óðinstorgi.
    Samþykkt að veita Manar Abu Zer styrk að fjárhæð kr. 70.000 vegna verkefnisins Kids  Moms Support Club.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Austurbæjarskóla styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar Austurbæjarskóla.

    Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir í hverfissjóð Vesturbæjar.
    Samþykkt að veita Malgorzata Maria Trajkowska styrk að fjárhæð kr. 50.000 vegna verkefnisins TRASH CAN VOCABULARIES - a theatrical soundwalk about waste.
    Samþykkt að veita Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur styrk að fjárhæð kr. 200.000 vegna verkefnisins Höggmyndagarðsins.
    Samþykkt að veita Sirkus Ananas styrk að fjárhæð kr. 40.000 vegna verkefnisins Sumarsirkuss.
    Samþykkt að veita Foreldrafélagi Grandaskóla styrk að fjárhæð kr. 180.000 vegna verkefnisins Vorhátíðar.
    Samþykkt að veita Memmm Play styrk að fjárhæð kr. 100.000 vegna verkefnisins Úti að brasa - sumarstarfs Opna Leikskóla Memmm.
    Samþykkt að veita Steinunni Maríu Stefánsdóttur styrk að fjárhæð kr. 120.000 vegna verkefnisins 17.júní fögnuðar í Skerjafirði.
    Samþykkt að veita Prýðisfélaginu Skildi styrk að fjárhæð kr. 120.000 vegna verkefnisins Sumarhátíðar.

    Öðrum styrkumsóknum er hafnað. ÞON26030012

  36. Samþykkt að taka á dagskrá svohljóðandi tillögu borgarstjóra dags. 19. maí:

    Lagt er til að borgarráð samþykki framlengingu á gildistíma samnings Reykjavíkurborgar við Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) vegna reksturs Laugardalsvallar til og með 31. desember 2026 með nýjum viðauka þar sem framlagið yrði óbreytt þ.e. 6 m.kr. á mánuði. Framlagið rúmast innan ramma MÍR. Reykjavíkurborg og KSÍ hafa um árabil gert með sér samninga um rekstur Laugardalsvallar og er sá síðasti frá 13. ágúst 2014 en sá samningur hefur síðan verið framlengdur með viðaukum. Síðast var gildistími samningsins, sem átti að óbreyttu að líða undir lok í árslok 2025, framlengdur til 1. júní 2026 á grundvelli samþykktar borgarráðs frá 4. desember 2025. Nú er ljóst að sú framlenging er að líða undir lok en aðilar hafa ekki náð samkomulagi um framtíðarfyrirkomulag þótt samtal um slíkt hafi verið hafið. Er því óskað eftir því að gildistími verði framlengdur á nýjan leik, með sama hætti, þ.e. til sex mánaða til viðbótar, þ.e. út árið 2026, með óbreyttu framlagi af hálfu Reykjavíkurborgar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 

    Fylgigögn

  37. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar:

    Lagt er til að kostnaður verði metinn jafnóðum við fundahöld og skýrsluskrif á vegum Reykjavíkurborgar. Þegar skýrsla er samin verði kostnaður við skýrsluskrifin metin eftir því sem unnt er og hann gefinn upp í skýrslunni. Þegar starfshópur skilar af sér, verði kostnaður við hópvinnuna metinn og gefinn upp. Einnig verði haldið utan um kostnað vegna starfa fastra ráða og nefnda borgarinnar, til dæmis kostnað vegna starfa kjörinna fulltrúa, embættismanna og starfsmanna í þágu viðkomandi ráðs og kostnaðurinn gefinn upp við hver áramót.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað. MSS26050068

    Fylgigögn

  38. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar:

    Óskað er eftir yfirliti um allar lóðir, sem hafa verið seldar eða leigðar á vegum Reykjavíkurborgar í Gufunesi og á Ártúnshöfða frá árinu 2014.  Gerð verði grein fyrir sölu á lóðarréttindum og byggingarrétti og hvort um sé að ræða byggingarrétt fyrir atvinnustarfsemi eða íbúðarhúsnæði.  Þá verði gerð grein fyrir söluverði og greiðsluskilmálum í hverju tilviki fyrir sig.  Jafnframt verði gerð grein fyrir því hverjar þessara lóða hafi skipt um eigendur síðan borgin seldi þær úr sinni eigu og veitt yfirlit yfir eigendasögu ef þau gögn eru tiltæk. Einnig komi fram í hvaða tilvikum og þá hvenær einstaka lóðir hafi komist til uppbyggingar og hverjar ekki. MSS26050067

Fundi slitið kl. 12:30

Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir

Einar Þorsteinsson Friðjón R. Friðjónsson

Magnea Gná Jóhannsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 21.05.2025 - Prentvæn útgáfa