Stemning í gleðigöngu og regnbogahlaupi
Börn í leik- og grunnskólum, sem og á frístundaheimilum í Reykjavík fögnuðu fjölbreytileikanum á miðvikudaginn í tilefni af alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks sem er á sunnudaginn 17. maí. Stemningin og gleði voru allsráðandi í gleðigöngu og regnbogahlaupi sem minna á að öll eigi rétt á að vera eins og þau eru og að styrkur samfélagsins felist í margbreytileikanum.
Hundruð í gleðigöngu í Laugardal
Árleg gleðiganga í Laugarneshverfi var haldin með miklum glæsibrag þar sem um 500 börn og foreldrar þeirra tóku þátt. Að göngunni standa leikskólarnir Hof og Laugasól, ásamt Lauganesskóla og Laugarlækjaskóla, en gengið var frá skólunum og safnast saman á Þróttaravellinum í Laugardal.
Viðburðurinn er árlegur og haldinn í tilefni af alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks sem er 17. maí ár hvert.
Að lokinni göngu tóku við skemmtiatriði þar sem nemandi úr Laugarlækjaskóla spilaði lagið Fairytail á fiðlu ásamt vinum sínum úr öðrum hverfum. Páll Óskar steig svo á svið og skapaði líflega og gleðilega stemningu með söng sínum sem var í takt við fjölbreytileikann sem verið var að fagna.
Skipuleggjendur leggja áherslu á að gleðigangan sé vettvangur til að fagna fjölbreytileika og samstöðu í hverfinu. Með viðburðinum vilja þeir minna á mikilvægi þess að öll fái að vera eins og þau eru og að gleðin felist í fjölbreytileikanum.
Hlaupið undir tónlist og litaregni
Frístundaheimili Tjarnarinnar stóðu fyrir líflegu og litríku regnbogahlaupi á Ægissíðu og Klambratúni. Viðburðurinn var ætlaður börnum í þjónustu frístundaheimilanna og var markmið hans að fagna fjölbreytileika og efla samstöðu.
Í hlaupinu hlupu börnin ákveðna vegalengd á meðan starfsfólk stráði yfir þau marglitu litadufti, sem táknrænni athöfn til að sýna stuðning við fjölbreytileika og gleðina sem fylgir því að veraalls konar. Börn úr frístundaheimilunum Draumalandi, Eldflauginni og Halastjörnunni komu saman á Klambratúni, en börn úr Frostheimum, Selinu, Skýjaborgum og Undralandi hittust við leikskólann Sæborg við Ægissíðu. Hlaupið fór annars vegar fram eftir göngustígnum frá Sæborg að Faxaskjóli og hins vegar á Klambratúni þar sem hlaupið var í hring undir tónlist og litadansi.
Að hlaupi loknu tóku við gleðistundir þar sem boðið var upp á ís, tónlist og sápukúlufjör fyrir börnin áður en haldið var aftur í frístundaheimilin. Viðburðurinn markar jafnframt uppskeruhátíð þar sem vetrarstarfi frístundaheimilanna lýkur brátt.