Tvær viljayfirlýsingar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis
Tvær viljayfirlýsingar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni á næstu árum voru undirritaðar í dag, annars vegar við Bjarg íbúðafélag og hins vegar við Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) og Visku stéttarfélag háskólamenntaðra. Fyrirhuguð verkefni samræmast meðal annars markmiðum Húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar um fjölbreytt framboð húsnæðiskosta og félagslega fjölbreytni innan hverfa.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni við Bjarg hyggst Reykjavíkurborg úthluta félaginu lóðum með byggingarrétti fyrir búseturéttar- eða leiguíbúðir á nokkrum svæðum borgarinnar, meðal annars í Gufunesi, á Veðurstofuhæð, í Grundarhverfi á Kjalarnesi og á Kringlureit. Þá er í viljayfirlýsingunni við FÍN og Visku kveðið á um vilyrði fyrir uppbyggingu á þróunarlóðum.
Í báðum samningum er lögð áhersla á fjölbreyttar húsagerðir, blöndun íbúðategunda innan hverfa og aukið framboð smærri íbúða fyrir ólíka félagshópa. Þá skuldbinda félögin sig til að framselja Félagsbústöðum 5–10% íbúða á kostnaðarverði.
Þá hefur borgarráð samþykkt að Bjarg íbúðafélag taki við lóðarvilyrði fyrir byggingarrétti á allt að 50 íbúðum við Leirtjörn vestur í Úlfarsárdal, sem áður hafði verið úthlutað Leigufélagi aldraðra. Fyrirhugað er að þar rísi hagkvæmt húsnæði fyrir eldri borgara.
„Ég fagna þessum viljayfirlýsingum mjög og þessu öfluga samstarfi um uppbyggingu fjölbreytts og aðgengilegs húsnæðis í Reykjavík,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. „Það er frumskylda sveitarfélaga að stuðla að því að fólk geti eignast öruggt heimili á viðráðanlegum kjörum og með þessum verkefnum tökum við mikilvæg skref til að mæta þeirri ábyrgð af festu og metnaði.“
- Viljayfirlýsing Reykjavíkurborgar og Bjarg íbúðafélags.
- Viljayfirlýsing Reykjavíkurborgar, Visku og Félags íslenskra náttúrufræðinga.
-
Tillaga borgarstjóra um aðilaskipti- Leirtjörn vestur Úlfarsárdal.
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Þorkell Heiðarsson formaður FÍN.