Velkomin á nýja heimasíðu Borgarbókasafnsins

Róbert Reynisson
Borgarbókasafnið í Kringlunni. Víð mynd inni í safninu, hringborð fyrir miðju, bókahillur allt um kring. Líklega barnadeild.

Nýr vefur Borgarbókasafnsins hefur verið opnaður. Vefurinn þjónar áfram því hlutverki að auðvelda notendum eftir fremsta megni að nýta sér þjónustu safnsins en lögð var áhersla á að gera hann nútímalegan, skýran og einfaldan auk þess að stytta leiðir inni á vefnum.

Á nýjum vef Borgarbókasafnsins má sjá ýmsar breytingar í útliti og framsetningu efnis en tilgangurinn er óbreyttur, það er að gefa rétta og skýra mynd af öllu því sem finna má á Borgarbókasafninu, sem rekur átta útibú í Reykjavík.

Umfang síðunnar hefur minnkað nokkuð og  ný síða beinir notendum á vefinn borgarbokasafn.leitir.is þar sem hægt er að skrá sig inn á „mínar síður“. Þar er til dæmis hægt að:

  • skrá sig inn með kennitölu og lykilorði eða rafrænum skilríkjum
  • panta frátektir
  • framlengja útlán
  • skoða útlánasögu 

Þá fer leit í bókasafnskerfinu nú fram á borgarbokasafn.leitir.is. Ekki er lengur boðið upp á skráningu eða endurnýjun bókasafnskorta, eða greiðslu sekta, á netinu en unnið er að lausn á því. Þessari þjónustu sinnir starfsfólk bókasafnanna fljótt og vel eftir sem áður, þegar komið er á bókasafnið.

Í undirbúningi opnunar á nýjum vef var unnin þarfagreining og fór þróunarvinna fram í vetur. Vinnustofa var haldin og lágu niðurstöður hennar til grundvallar, þar sem lögð var áhersla á meðal annars aðgengileika, birtu og andrými. Verkefnastjóri vefdeildar hafði umsjón með verkefninu og fékk til liðs við sig sérfræðinga á vegum borgarinnar eftir þörfum. Forritun var í höndum Reload sem sá einnig um hönnun, í samráði við hönnuði Borgarbókasafnsins og stafrænnar vöruhönnunar hjá Reykjavíkurborg. Þá kom starfsfólk deildar miðlunar og nýsköpunar á Borgarbókasafninu að gerð og undirbúningi vefsins.

Enn er unnið að minniháttar lagfæringum og viðbótum á vefnum og er til að mynda stefnt að því að bjóða upp á leit og síun á viðburðayfirliti. Við hvetjum öll til að kynna sér nýjan og bættan vef og nýta sér fjölbreytta þjónustu Borgarbókasafnsins.

Borgarbókasafnið í Kringlunni. Horft inn eftir gangi með bækur á alla vegu.