Endurskoðunarnefnd
Ár 2026, mánudaginn 18. maí var haldinn 358. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:05. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, innri endurskoðandi.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á trúnaðarmerktum drögum að samandregnum árshlutareikningi samstæðu Orkuveitunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2026. IER26010002
Snorri Hafsteinn Þorkelsson, Bryndís María Leifsdóttir og Hrafnhildur Fanngeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd hefur fengið kynningu á samandregnum árshlutareikningi samstæðu Orkuveitunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2026. Endurskoðunarnefnd þakkar greinargóða kynningu og telur að árshlutareikningurinn sé tilbúinn til framlagningar í stjórn Orkuveitunnar að teknu tilliti til þeirra viðbóta sem fram komu á fundinum.
-
Lagt fram trúnaðarmerkt bréf regluvarðar Reykjavíkurborgar til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, dags. 5. maí 2026, og trúnaðarmerkt bréf regluvarðar Reykjavíkurborgar til borgarráðs, dags. 9. maí 2026, um meðhöndlun trúnaðargagna, ásamt fylgiskjali. IER26050002
-
Lagt fram afgreiðslubréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. apríl 2026, og nýjar verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum, sem samþykktar voru í forsætisnefnd með leiðréttingum þann 17. apríl 2026. IER26040008
Fylgigögn
-
Lagðar fram niðurstöður sjálfsmats endurskoðunarnefndar 2026 og fram fer umræða. IER26040001
Fylgigögn
-
Lagðar fram niðurstöður úr viðhorfskönnun endurskoðunarnefndar 2026 og fram fer umræða. IER26040002
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:00
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar 18.05.2026 - Prentvæn útgáfa