Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga

Raðhús við Laugalæk fengu viðurkenningu í fyrra. Veittar eru viðurkenningar fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum og fyrir lóðir þjónustu-, stofnana- og fjölbýlishúsa sem þykja til fyrirmyndar.
Litrík raðhúsalengja við Laugalæk.

Óskað er eftir ábendingum um hús og lóðir sem verðskulda fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar í ár. Veittar eru viðurkenningar fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum og fyrir lóðir þjónustu-, stofnana- og fjölbýlishúsa sem þykja til fyrirmyndar.

Frestur til 12. júní

Ábendingar skulu sendar inn með tölvupósti merktum Fegrunarviðurkenningar 2026 á skipulag@reykjavik.is í síðasta lagi þann 12. júní næstkomandi. 

Valið verður í höndum vinnuhóps sem skipaður er fulltrúum frá umhverfis- og skipulagssviði og Borgarsögusafni. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1968 þegar fegrunarnefnd Reykjavíkurborgar var skipuð og valdi í fyrsta sinn fegurstu götu borgarinnar en þá varð Safamýri fyrir valinu.