Bókmenntamerking til heiðurs Sigrúnu Eldjárn barnabókahöfundi
Sérstök bókmenntamerking til heiðurs barnabókahöfundinum Sigrúnu Eldjárn var afhjúpuð með viðhöfn við Lækjargötu 14 í dag.
Merkingin er í formi sérhannaðs brunnloks í gangstétt sem vísar til verka Sigrúnar og þeirra sterku tengsla sem þau hafa við borgarrýmið og ímyndunarafl barna. Með þessari viðurkenningu er sjónum beint að mikilvægu framlagi hennar til íslenskra barnabókmennta, en verk Sigrúnar hafa um áratugaskeið skipað veigamikinn sess í menningarlífi þjóðarinnar.
Fjöldi fólks var viðstatt afhjúpun bókmenntamerkingarinnar við Lækjargötu 14 og sá Líf Magneudóttir borgarfulltrúi um að afhjúpa brunnlokið. Á því er afsteypa af teikningu sem prýðir einmitt bókarkápu bókarinnar Allt í plati! eftir Sigrúnu. Allt í plati! er fyrsta barnabók Sigrúnar, sem hún samdi og myndskreytti, en bókin kom út árið 1980.
Sagan segir frá ævintýrum þeirra Höllu og Eyvindar sem leggja upp í könnunarleiðangur um Reykjavík ofan- og neðanjarðar. Þar koma við sögu hinir dularfullu krókófílar, torfbæir í Breiðholti og Loftur lyftuvörður í Hallgrímskirkju.
Sigrún Eldjárn hefur skapað sér einstaka stöðu sem rithöfundur og myndhöfundur, og verk hennar hafa haft djúpstæð áhrif á kynslóðir lesenda. Í bókum hennar mætast frásögn, myndlist og leikgleði á þann hátt sem eflt hefur lestraráhuga barna og leitt þau inn í heim bókmenntanna.
Með verkefninu er leitast við að draga fram bókmenntaarf Reykjavíkur í borgarlandslaginu og skapa nýjan áningarstað sem hvetur til uppgötvunar og samtals um bókmenntir.