Sýnum tillitssemi þegar hestar og hjól mætast

Hestar eru lifandi dýr og geta brugðist við skyndilegum hreyfingum, hávaða eða hraðri umferð með öðrum hætti en vegfarendur halda. Þess vegna skiptir miklu máli að að hægja á sér þegar vegfarendur nálgast hest og knapa og gefa sig fram með rólegum hætti. Mynd/Róbert Reynisson
hestar og hjól

Margir taka fram hjólið í maí og fleiri hjóla til vinnu, skóla og í frístundir. Á sama tíma eru hestar og knapar einnig á ferð innan borgarmarkanna, einkum í nágrenni hesthúsahverfa og á reiðleiðum borgarinnar. Þar geta ólíkir ferðamátar mæst og mikilvægt er að allir vegfarendur sýni tillitssemi og varúð.

Hestar eru lifandi dýr en ekki tæki

Hestar eru lifandi dýr og geta brugðist við skyndilegum hreyfingum, hávaða eða hraðri umferð með öðrum hætti en gangandi eða hjólandi vegfarendur gera ráð fyrir. Þess vegna skiptir miklu máli að hjólreiðafólk, gangandi, hlaupandi og akandi vegfarendur hægi á sér þegar þeir nálgast hest og knapa, gefi sig fram með rólegum hætti og forðist snöggar hreyfingar eða hávær hljóð.

Mikilvægt að fara rólega

Reiðstígar eru fyrst og fremst ætlaðir hestaumferð. Hjólreiðafólk ætti því að velja göngu- og hjólastíga eða aðrar hjólaleiðir þar sem þær eru til staðar. Þar sem leiðir skarast eða þar sem ekki verður hjá því komist að fara nálægt hestum er mikilvægt að fara rólega, halda góðu bili og virða merkingar og fyrirmæli á hverjum stað.

Góð samskipti skipta miklu máli

Góð samskipti skipta miklu máli. Þegar hjólandi vegfarandi nálgast hest aftan frá er gott að hægja vel á sér og láta vita af sér með rólegri rödd eða bjöllu í góðri fjarlægð. Ef hesturinn virðist órólegur eða knapi gefur merki er rétt að stoppa, bíða eða stíga af hjóli þar til öruggt er að fara fram hjá. Sama gildir um rafhjól og önnur smáfarartæki; hraði og hljóð geta komið hesti á óvart.

Fræðslumyndband

Samgöngustofa hefur áður látið útbúa fræðslumyndbandið Hestar og önnur umferð, þar sem farið er yfir samskipti hestaumferðar og annarrar umferðar. Myndbandið minnir okkur á að örugg sambúð byggist á tillitssemi, fyrirsjáanleika og rólegri umferð.

Þetta þarf að hafa í huga:

  • Hægjum á okkur þegar við sjáum hest.
  • Gefum merki með rólegum hætti.
  • Höldum góðu bili.
  • Forðumst skyndilegar hreyfingar, hróp og óvænt hljóð.
  • Virðum reiðstíga og veljum rétta leið þegar hún er í boði.
  • Stoppum eða stígum af hjóli ef aðstæður kalla á það.
  • Með tillitssemi komumst við öll öruggari leiðar — hvort sem við erum gangandi, hjólandi, akandi eða á hestbaki.