20 vetra afmælisveisla Landnámssýningarinnar
Almenningi er boðið að taka þátt í glæsilegri afmælisveislu í tilefni 20 vetra afmælis Landnámssýningarinnar, Aðalstræti 16, laugardaginn 9. maí kl. 10:00–17:00. Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa þar sem saga, leikur og fræðsla mætast í lifandi og skemmtilegu umhverfi. Gestir geta tekið þátt í skapandi smiðjum, fræðandi leiðsögnum og spennandi leikjum, auk þess að hitta víkinga og kynnast fornum siðum.
Dagskrá
10:00–14:00 – Föndursmiðja og búningahorn
10:00–17:00 – Fjölskylduratleikur
13:00–14:00 – Leiðsögn með Orra Vésteinssyni, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands
13:00–16:00 – Víkingar úr Rimmugýg bregða á leik
14:00–15:00 – Langborð: Vorum við víkingar?
- Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði við Háskóli Íslands
- Terry Gunnell, prófessor emeritus við Háskóla Íslands
- Jökull Tandri Ámundason
- Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur
14:00–15:00 – Leiðsögn á auðskilinni íslensku (fyrir þau sem eru að læra íslensku)
15:00–17:00 – Refskák (Halatafl) – Ertu refur eða lamb?
Refskák er fornt borðspil, líklega upprunnið á Norðurlöndum, þar sem einn refur tekst á við þrettán lömb. Markmið refsins er að ná lömbunum en þau leitast við að umkringja hann. Spilsins er meðal annars getið í Grettis sögu.
Aðgengi er gott í Aðalstræti. Gestir eru þó beðnir að hafa í huga að lýsing í sýningarsal við rústina er lítil og gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir.