Borgarráð gerir athugasemdir við framkvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
Borgarráð gerir alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að bjóða einungis upp á einn stað fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Aðgengi sé þannig skert verulega á tímum þar sem kjörsókn hafi dregist saman.
Á síðasta fundi borgarráðs, sem fram fór fimmtudaginn 30. apríl, var lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar varðandi tilkynningu sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Umfjöllunarefnið er það fyrirkomulag að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar, sem hófst 17. apríl, fer eingöngu fram í húsnæði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðasmára 1 í Kópavogi. „Við síðustu sveitarstjórnarkosningar hefur verið lögð áhersla á að kjósendur í Reykjavík geti greitt atkvæði utan kjörfundar í sveitarfélaginu sjálfu en nú verður það ekki í boði,“ segir í bréfi skrifstofu borgarstjórnar.
Bætt aðgengi hvetji til aukinnar kosningaþátttöku
Borgarráð ásamt áheyrnarfulltrúum lagði því fram bókun þar sem fram kemur að með því að staðsetja atkvæðagreiðsluna einungis á skrifstofu sýslumanns í Kópavogi sé aðgengi kjósenda í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum að atkvæðagreiðslunni skert verulega. „Bætt aðgengi kjósenda hvetur til aukinnar kosningaþátttöku en minnt er á að kjörsókn í sveitarstjórnarkosningum hefur dregist saman síðustu ár,“ segir í bókuninni. „Borgarráð hvetur sýslumann til að endurskoða þessa ákvörðun með hagsmuni kjósenda að leiðarljósi og tryggja fleiri kjörstaði í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu nú á lokasprettinum fyrir kjördag.“