Austurbæjarskóli - Endurgerð lóðar 1.áfangi 2026

Verkið snýr að endurgerð á lóð Austurbæjarskóla að Barónsstíg 32. 101 Reykjavík. Um er að ræða lagfæringu/styrkingu á viðkomandi svæði. Í þessum fyrri áfanga af tveimur verður lögð áhersla á endurgerð á neðri hluta lóðarinnar þar sem aðalleiksvæði er staðsett ásamt því að körfuboltavöllurinn verður endurgerður. Aðgengi fyrir alla, drenun lóðar, leiktæki, lýsing, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Þá verður bætt við girðingum með göngu og þjónustuhliðum til betri stýringar á umferð aðfangabíla sem og fótgangandi inná skólalóðina. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Maí - September 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir Austurbæjarskóli 2026

Hvað verður gert?

 

Upprif á malbiki á Körfuboltavelli og körfur teknar upp, halli á körfuboltavelli lagfærður. 

Upprif á aðalleiksvæði fyrir miðju lóðar hefjast, jarðvegsskipti undir nýju leiksvæði hefst.

Lagnavinna, ljósastaurar reistir, götuljósastregnir lagðir sem og drenlagnir og brunnar.

Steypuvinna, þ.e. steyptur stígur, jafnað undir gerfigras og lagning gervigrasi ásamt fallvarnarefni undir leiktæki. 

Unnið við hellulögn, uppsetningu leiktækja 

Vinna við uppsetningu 

Gróðursetning. 

 

Hvernig gengur?

Fyrstu tvær vikur í Maí 2026 - Upprif á Körfuboltavelli, jarðvegsskipti, halli á vellli lagfærður, nýjar undirstöður undir körfur steyptar. 

Hver koma að verkinu?

Verktaki

Vogaklettur ehf - Jóhannes Héðinsson

Verkeftirlit

VSÓ Ráðgjöf

1. Dagur Sölvi Sigurjónsson

2. Kristján Ingi Gunnlaugsson

Verkefnastjóri

Andri Þór Andrésson - Deild gatna, lóða og opinna svæða - Reykjavíkurborg
Last updated 06.05.2026