Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, miðvikudaginn 6. maí, kl. 9:00 var haldinn 379. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Líf Magneudóttir, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Hjálmar Sveinsson, Magnús Davíð Norðdahl og áheyrnarfulltrúinn Marta Guðjónsdóttir. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf forsætisnefndar dags. 30. apríl 2026 um leiðréttingu á verklagsreglum varðandi fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar. MSS23090170
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar um útfærslu og staðsetningu á að stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól frá stöðvalausum rafhlaupahjólaleigum.
- Kl. 9:16 aftengist Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir með rafrænum hætti og tekur sæti á fundinum.
Samþykkt.
Daði Baldur Ottósson, Valur Elli Valsson, Bjarni Rúnar Ingvarsson og Grétar Mar Hreggviðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK23110199
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Fulltrúi Framsóknar lýsir ánægju sinni með þeirri vinnu sem snýr að því koma skipulagi á deilibílastæði og stæði fyrir rafhlaupahjól, sem er löngu orðin tímabær. Mikilvægt er að farið verið í þessar aðgerðir án þess að skera niður um of fjölda almennra bílastæða.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Fulltrúi óháðra í umhverfis- og skipulagsráði og liðsmaður Miðflokksins telur jákvætt að komið verði upp sérmerktum stæðum fyrir rafhlaupahjól í borginni. Athygli vekur að þau stæði sem tillagan gerir ráð fyrir einskorðast eingöngu við hverfi vestan Elliðaáa en ekki gert ráð fyrir slíkum stæðum í eystri byggðum borgarinnar. Mikilvægt er að slíkum safnstæðum fyrir rafhlaupahjól verði komið upp í öllum hverfum borgarinnar en auðveldlega mætti koma slíkum stæðum fyrir við stoppistöðvar strætó.
Fylgigögn
-
Lagðar fram verklagsreglur um notkun plöntuvarnarefna og illgresiseyða skv. tillögu umhverfis- og skipulagsráðs á fundi ráðsins 15. apríl 2026. USK26040113
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Fulltrúar meirihluta í umhverfis- og skipulagsráði telja ekki forsvaranlegt að notkun skordýraeiturs og illgresiseyðis viðgangist í nærumhverfi íbúa þegar fyrir liggja raunhæfir og öruggari valkostir. Slík efni geta haft skaðleg áhrif á heilsu fólks og valdið raski á viðkvæmum vistkerfum, þar á meðal skordýralífi sem er undirstaða líffræðilegrar fjölbreytni. Með ákvörðun um bann, nema í afmörkuðum undantekningartilvikum á grundvelli leyfis sem sækja þarf um, er verið að setja skýr mörk um að heilsu íbúa og vernd náttúrunnar verði ekki fórnað fyrir þægindi eða hefðbundnar aðferðir sem eiga sér ekki lengur réttlætingu. Fulltrúarnir leggja áherslu á að opinberir aðilar beri sérstaka ábyrgð á að sýna fordæmi í umhverfismálum. Með þessari ákvörðun er stigið afdráttarlaust skref í átt að vistvænni starfsháttum og sjálfbærri umhirðu sameiginlegra svæða. Fulltrúarnir líta svo á að þessi stefna endurspegli bæði faglega þekkingu og skýran vilja íbúa um heilnæmt og eiturefnaminna umhverfi.
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. maí 2026 um aðgerðir um bætt loftgæði í Reykjavík. MSS26030005
Fylgigögn
-
Lögð fram í trúnaðarbók umhverfis- og skipulagsráðs tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. apríl 2026, að úthlutun styrkja úr Húsverndarsjóði árið 2026. Trúnaði verður aflétt við úthlutun styrkja.
- Kl. 9:36 tekur Einar Sveinbjörn Guðmundsson sæti á fundinum.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Óskar Örn Arnórsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26010220
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Borgarholts II, Engjahverfis C, vegna nýrrar lóðar við Starengi. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreind er ný lóð á svæðinu fyrir uppbygging fjölbýlishús, samkvæmt uppdr. Arkís Arkitekta, dags. 24. apríl 2026.
Samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og Viðreisnar að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins greiðir atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs. USK25040233Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst gegn fyrirliggjandi tillögu um þéttingu byggðar við Starengi. Íbúar í Grafarvogi hafa ítrekað lýst yfir skýrri andstöðu við áform um þéttingu innan hverfisins og eru margir orðnir brenndir af vinnubrögðum tveggja síðustu meirihluta. Íbúar Grafarvogs hafa jafnframt ítrekað lýst áhyggjum af því að leiðir inn og út úr hverfinu séu sprungnar og á meðan ekki hefur verið fundin lausn á því máli er tómt mál að tala um að fjölga íbúum í hverfinu. Mikilvægt er að virða vilja nærumhverfisins og horfa fremur til uppbyggingar á nýjum svæðum þar sem hægt er að byggja upp húsnæði með betri heildarsýn, sterkari innviðum og minni neikvæðum áhrifum á gróin hverfi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn situr hjá við afgreiðslu málsins. Þar sem kosningar eru í nánd þá telur fulltrúi Framsóknar eðlilegt að bíða með áframhaldandi vinnu með deiliskipulag í Grafarvogi þar til þeim er lokið, sérstaklega í ljósi þess hversu umdeildar þær þykja.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Miðflokkurinn leggst alfarið gegn öllum þéttingaráformum í grónum hverfum Grafarvogs og leggur til að fallið verði tafarlaust frá slíkum áformum enda eru þéttingaráformin í mikilli andstöðu við íbúa eins og margoft hefur komið fram á íbúafundum. Nú á að herja á útivistar- og opin svæði í Grafarvoginum. Grænu svæðin hafa ekki farið varhluta af ofþéttingarstefnu meirihlutans og nú á að nýta hvern einasta græna blett í grónum hverfum Grafarvogs til uppbyggingar. Lítið er að marka meirihluta sem kennir sig við umhverfisvernd en ætlar á sama tíma að halda sig við að nýta hvern einasta græna blett og opin svæði í Grafarvoginum til uppbyggingar sem kemur niður á lífsgæðum íbúa. Í aðalskipulaginu er lögð áhersla á gæði byggðar sem samræmist engan veginn þeirri stefnu að þétta byggð á kostnað þeirra örfáu grænu svæða sem eftir eru í borgarlandinu.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis, áfanga 1-6, vegna nýrra lóða við Hverafold. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreindar eru tvær nýjar lóðir á svæðinu fyrir fjölbýlishús, auk þess að skilgreindir eru sérstakir lóðarskikar fyrir bílastæði, samkvæmt uppdr. Trípólí Arkitekta, dags. 21. apríl 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat Eflu, dags. 18. mars 2026.
Samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og Viðreisnar að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins greiðir atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs. USK25040243Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst eindregið gegn fyrirliggjandi þéttingaráformum við Hverafold. Enn á ný ætlar meirihlutinn að þrengja að grónu hverfi Grafarvogs þrátt fyrir skýra andstöðu íbúa. Met var sett í athugasemdum við mál í Skipulagsgátt fyrir ári þegar 1.386 athugasemdir bárust við þéttingaráform meirihlutans í borginni, nánast allar neikvæðar. Þessi tillaga gerir ráð fyrir allt að 36 íbúðum á svæði þar sem 73 bílastæði við Foldatorg hverfa. Þá er gert ráð fyrir að 140 bílferðir bætist við daglega. Tillagan er óraunhæf, mun mæta mikilli andstöðu og verður átakamál í nærumhverfinu. Óskiljanlegt er að núverandi meirihluti ætli enn og aftur í átök við íbúa Grafarvogs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn situr hjá við afgreiðslu málsins. Þar sem kosningar eru í nánd þá telur fulltrúi Framsóknar eðlilegt að bíða með áframhaldandi vinnu með deiliskipulag í Grafarvogi þar til þeim er lokið, sérstaklega í ljósi þess hversu umdeildar þær þykja.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Miðflokkurinn leggst alfarið gegn öllum þéttingaráformum í grónum hverfum Grafarvogs og leggur til að fallið verði tafarlaust frá slíkum áformum enda eru þéttingaráformin í mikilli andstöðu við íbúa eins og margoft hefur komið fram á íbúafundum. Nú á að herja á útivistar- og opin svæði í Grafarvoginum. Grænu svæðin hafa ekki farið varhluta af ofþéttingarstefnu meirihlutans og nú á að nýta hvern einasta græna blett í grónum hverfum Grafarvogs til uppbyggingar. Lítið er að marka meirihluta sem kennir sig við umhverfisvernd en ætlar á sama tíma að halda sig við að nýta hvern einasta græna blett og opin svæði í Grafarvoginum til uppbyggingar sem kemur niður á lífsgæðum íbúa. Í aðalskipulaginu er lögð áhersla á gæði byggðar sem samræmist engan veginn þeirri stefnu að þétta byggð á kostnað þeirra örfáu grænu svæða sem eftir eru í borgarlandinu.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa dags. 28. apríl 2026. USK22120094
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa dags. 21. apríl 2026 og 28. apríl 2026. USK24070166
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 27. apríl 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164
Fylgigögn
-
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Suðurlandsbraut 56. Skipulagssvæðið afmarkast af Fákafeni til suðurs, lóðamörkum að Suðurlandsbraut 46-54 til vesturs, Suðurlandsbraut til norðurs og Skeiðarvogi til austurs. Skipulagsmörkum núgildandi deiliskipulags Skeifunnar, dags. 6. nóvember 2001, verður breytt samhliða. Tillaga að deiliskipulagi gerir ráð fyrir niðurrifi á núverandi byggingu á lóð og að í hennar stað komi tvær íbúðablokkir, 7 og 8 hæða, með 1. - 2. hæða tengibyggingu á milli, með raðhúsaíbúðum og verslunar- og þjónusturýmum á jarðhæðum. Í kjallara er gert ráð fyrir bílageymslu. Sameiginlegur inngarður verður í miðju byggingar ofan á þaki bílageymslu, ásamt sameiginlegum þakgarði ofan á þaki vesturhússins.
Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, lóðarhafa aðliggjandi lóða, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040373
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að skipulagslýsing fyrir Suðurlandsbraut 56 verði auglýst til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila um fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu. Mikilvægt er að slík uppbygging fari í opið samráðsferli enda um að ræða verulega breytingu á ásýnd og nýtingu svæðisins. Fulltrúinn hefur þó áhyggjur og er í raun andsnúinn þeim mikla þéttleika sem fyrirhugaður er á lóðinni, þar sem gert er ráð fyrir 7 og 8 hæða byggingum og mjög umfangsmiklu byggingarmagni á tiltölulega litlu svæði. Betur færi á því að uppbyggingin væri hóflegri og á „mannlegri skala“. Mikilvægt er að mat á áhrifum uppbyggingarinnar á umferð, bílastæðamál, hljóðvist, loftgæði og nærliggjandi byggð verði lagt fram snemma í ferlinu svo íbúar og hagaðilar geti gert sér betur grein fyrir áhrifum fyrirætlananna.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð, þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsókn Kanon arkitekta ehf., dags. 24. febrúar 2026, um breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 2 vegna lóðanna nr. 8 við Kleppsmýrarveg og nr. 2 við Bátavog. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðirnar eru sameinaðar og afmörkuð er ein ný lóð fyrir nýja íbúðarbyggð. Núverandi byggingar á lóðunum víkja fyrir nýrri byggð, samkvæmt uppdrætti Kanon arkitekta, dags. 23. febrúar 2026. Einnig eru lagðir fram skuggavarps- og skýringaruppdrættir Kanon arkitekta, dags. 23. febrúar 2026 og 20. og 28. apríl 2026, og skýrsla Eflu, dags. 17. apríl 2026, um niðurrifsáætlun þriggja bygginga við Kleppsmýrarveg 8, 8A og 8B og kolefnisspor niðurrifs.
Lögð fram svohljóðandi málsmeðferðartillaga fulltrúa Framsóknarflokksins:
Legg til að málinu verði frestað.
Málsmeðferðartillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar.
Upphafleg tillaga afgreidd.
Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020405
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að fyrirliggjandi tillaga fari í auglýsingu til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila, þótt betur færi á að ný borgarstjórn taki ákvörðun um slíkt þegar aðeins 10 dagar eru til kosninga. Um er að ræða umfangsmikla breytingu á svæðinu og mikilvægt að málið fari í opið samráðsferli áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Þó verður að benda á að hér er enn eitt dæmið um að starfandi atvinnu- og þjónustuhúsnæði víki fyrir mjög þéttri íbúðauppbyggingu í Reykjavík. Mikilvægt er að borgin horfi einnig til langtímaþarfar fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, þjónustu og minni rekstrareiningar innan borgarmarkanna, en ekki eingöngu til hámarksþéttingar íbúðarbyggðar. Jafnframt vekur athygli að fyrirhuguð íbúðabyggð er staðsett við mjög umferðarþungt svæði þar sem umferðarhávaði er þegar yfir viðmiðunarmörkum samkvæmt gögnum málsins. Mikilvægt er að áhrif hávaða, loftgæða, birtuskilyrða og þéttleika á lífsgæði íbúa verði metin með ítarlegum hætti við áframhaldandi vinnslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Fulltrúi óháðra Marta Guðjónsdóttir liðsmaður Miðflokksins harma að málmeðferðartillaga Framsóknar um frestun málsins hafi verði fellt af meirihluta flokkunum. Það kom bersýnilega í ljós að ekki er eining innan meirihlutans um þessa tilteknu útfærslu í umræðum um málið, auk þess skal benda á að vegna nálægðar komandi kosninga væri eðlilegt að ný borgarstjórn myndi taka þetta mál áfram og hraða afgreiðslu sem frekast má.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð, þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.
Fylgigögn
-
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í mars 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Skeifuna 7 og 9. Skipulagssvæðið afmarkast af götu Skeifunnar til suðurs, megin göngustíg í gegnum Skeifuna til vesturs, Suðurlandsbraut til norðurs og lóð Skeifunnar 9 til austurs. Skipulagsmörkum núgildandi deiliskipulags Skeifunnar, dags. 6. nóvember 2001, verður breytt samhliða. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir sameiningu lóðanna, niðurrifi á núverandi byggingum á lóð og að í þeirra stað komi randbyggð íbúðarhúsa með þjónustu og verslunum á jarðhæðum og íbúðum á efri hæðum. Á jarðhæð og í kjallara er gert ráð fyrir bílageymslum og ofan á þaki bílageymslu verður sameiginlegur inngarður fyrir íbúa. Á jarðhæð vestan við hús er gert ráð fyrir almenningsrými með skjólgóðu og gróðurríku útidvalarsvæði í tengslum við aðal göngu- og hjólastíginn sem liggur þvert um Skeifuna frá norðri til suðurs.
Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, lóðarhafa aðliggjandi lóða, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040374
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að skipulagslýsing fyrir Skeifuna 7 og 9 fari í auglýsingu til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila um fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu. Um er að ræða verulega breytingu á mikilvægu þróunarsvæði og mikilvægt að málið fari í opið samráðsferli á frumstigi. Þó verður að benda á að fyrirhuguð uppbygging felur í sér mjög mikla þéttingu þar sem byggingarmagn á lóðinni er margfaldað og gert ráð fyrir allt að 8 hæða byggð á svæði sem í dag einkennist af atvinnu- og þjónustustarfsemi. Þá er hér enn eitt dæmið um að starfandi atvinnuhúsnæði víki fyrir íbúðauppbyggingu í Skeifunni án þess að heildarsýn liggi fyrir um framtíðarþörf fyrir fjölbreytta atvinnu- og þjónustustarfsemi í borginni.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð, þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.
Fylgigögn
-
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Kringluna 7. Skipulagssvæðið afmarkast af Listabraut til suðurs, Kringlumýrarbraut til vesturs, borgarlandi sunnan Miklubrautar til norðurs og Kringlugötu til austurs. Hið nýja deiliskipulag nær í fyrstu til lóðar nr. 7 við Kringluna, en ráðgert er að fella nýsamþykkta deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðir nr. 1-5 við Kringluna inn í það.
- Kl. 11:05 víkur Einar Sveinbjörn Guðmundsson af fundi.
Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, lóðarhafa aðliggjandi lóða, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.
Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040375
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð, þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsókn Betula landslagsarkitekta ehf. dags. 14. ágúst 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir lóð nr. 3 við Langavatnsveg. Í tillögunni sem lögð er til felst að koma fyrir ferðaþjónustu og afmarka útivistarsvæði á lóðinni, samkvæmt uppdr. Betula landslagsarkitekta ehf., dags. 28. apríl 2025. Einnig er lögð fram greinargerð Betula landslagsarkitekta ehf., dags. 23. apríl 2026. Deiliskipulagið er unnið í samræmi við rammaskipulag Austurheiða.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.Íris Reynisdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25080143
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnar nr. 28 við Barónsstíg, Vörðuskóla. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur fyrir nýbyggingu Vörðuborgar verður víkjandi í tillögunni, lóð stækkar, akstur í gegnum Egilsgötu og inn á bílastæði norðan megin við Vörðuskóla verði lokað, bílastæði meðfram Egilsgötu tilheyri skóla og þeirri starfsemi sem þar verður, bílastæði norðan megin á lóð verði almenn bílastæði, setja inn nýja byggingarreiti fyrir sorp/geymslu, kvaðir verða settar á um stæði fyrir sorpbíla/aðföng, bílastæði fyrir hreyfihamlaða og að hæðarsetning lóðar taki mið af aðliggjandi umhverfi, samkvæmt uppdr. Betula landslagsarkitekta ehf., dags. 27. apríl 2026. Einnig lagt fram samgöngumat Verkís, dags. í febrúar 2026.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26040175
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að fyrirliggjandi tillaga um breytingu á deiliskipulagi við Vörðuskóla fari í auglýsingu til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila. Um er að ræða mikilvægt mál og rétt að það fari í opið samráðsferli. Nauðsyn er að benda á samgöngu- og öryggisþætti málsins. Fyrir liggur að hluti nemenda verða fluttir með skólabílum og ganga allt að 200 metra frá Sundhöll að skólanum um umferðargötu þar sem skýrslan bendir á veikleika. Jafnframt er ljóst að aðstæður á svæðinu eru þröngar og illa fallnar til aksturs þungra ökutækja. Nauðsynlegt er að tryggja örugga og raunhæfa aðkomu að skólanum áður en tillagan verður samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð , þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina að Ægisíðu 104, Leikskólinn Ægisborg. Skipulagssvæðið afmarkast til vestur af Ægisíðu og til suðurs af verslunar- og þjónustulóð þar sem bílaþjónustustöð er starfrækt, til austurs af einbýlishúalóðum við Einimel og til norðurs af raðhúsalóð við Kaplaskjólsveg. Í tillögunni sem lögð er fram felst að heimilt verði að rífa eldri byggingu, að hluta til eða öllu leiti, og að á lóðinni rísi átta deilda leikskóli sem getur tekið á móti allt að 160 börnum í stað fjögurra deilda leikskóla sem nú er, samkvæmt uppdr. Sp(r)int Studio ehf., dags. 24. apríl 2026. Einnig lagt fram Samgöngumat Eflu, dags. 21. apríl 2026.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26040352
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir leikskólann Ægisborg fari í auglýsingu til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila. Mikilvægt er að bregðast við aukinni eftirspurn eftir leikskólarýmum í hverfinu. Fulltrúinn bendir þó á að leikskólavandinn í Vesturbæ er verulegur og brýnt að tryggja að framboð á leikskólarýmum innan hverfisins verði raunverulega aukið áður en ráðist er í framkvæmdir. Mikilvægt er að uppbygging leysi vandann en flytji hann ekki til. Jafnframt er um verulega stækkun að ræða þar sem byggingarmagn á lóðinni er margfaldað og starfsemin tvöfölduð. Slík uppbygging kallar á raunhæfa og trausta samgöngulausn. Fyrirliggjandi gögn sýna að bílastæðaþörf getur farið umfram fyrirhugaðan fjölda stæða á álagstímum og að hluti eftirspurnar muni færast út í nærliggjandi götur. Nauðsynlegt er að tryggja að aðkoma, umferðaröryggi og áhrif á nærumhverfi séu metin með ítarlegum hætti áður en tillagan verður samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð , þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað um lagalegan grundvöll og stjórnsýslulegt umhverfi Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar. USK25090347
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að fela umhverfis- og skipulagssviði að undirbúa fyrirkomulag öryggisúttektar íbúabyggðar í nágrenni og í kringum Reykjavíkurflugvöll. Úttektin skal gerð af óháðum sérfræðingum á sviði flugrekstrar s.s. alþjóðlegra flugmálastofnana eða fyrirtækja sem sérhæfa sig í þess háttar verkefnum eins og t.d. NAC (Netherlands Aerospace Centre) og fleiri. Meta skal atriði eins og hávaða, loftmengun, jarðmengun, líkur á slysum og óhöppum og gera samanburð við aðra staði þar sem íbúabyggð og flugvöllur eru í miklu nábýli eins og í Reykjavík. Athugunin skal fyrst og fremst snúast um öryggi íbúa og íbúabyggðar með tilliti til ofangreindra þátta og annars sem kann að koma upp í úttekt eins og þessari.
Samþykkt. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. USK26040449
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. mars 2026 ásamt kæru nr. UUA2603003, dags. 6. mars 2026, þar sem kærður er óhæfilegur dráttur á að Reykjavíkurborg komi með niðurstöðu og afgreiðslu máls vegna grenndarkynningar á Laugarásvegi 63. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 10. mars 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 28. apríl 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að leggja fyrir byggingarfulltrúa Reykjavíkur að taka byggingarleyfisumsókn vegna framkvæmda að Laugarásvegi 63 til afgreiðslu án frekari tafa. USK26030127
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 22. apríl 2026 þar sem tilkynnt um að kæra UUA2601013 hafi verið afturkölluð. USK26010382
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. mars 2026 ásamt kæru nr. UUA2603008, dags. 17. mars 2026, þar sem óskað er eftir að neitun Reykjavíkurborgar samkvæmt bréfi byggingarfulltrúa, skjal 1, verði hafnað og leyft verða að byggja við einbýlishús sem nú þegar er á lóð Rafstöðvarvegar 41. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 16. apríl 2026. USK26030370
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. mars 2026 ásamt kæru nr. UUA2603011, dags. 20. mars 2026, vegna framkvæmda á jörðinni Hrafnhólar. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 20. apríl 2026. USK26030395
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um varanlegt búsetusvæði fyrir þau sem búa í húsbílum og hjólhýsum, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 10. maí 2023. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 22. apríl 2026.
Tillögunni er vísað frá. USK23050125
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um þvott og sópun stofnbrauta. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 4 liður, dags. 17. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs skrifstofu borgarlandsins dags. 22. apríl 2026.
Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar flokksins og Viðreisnar. MSS26020084
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um kaup á ryksugubíl. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 35. liður, dags. 26. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs skrifstofu borgarlandsins, dags. 22. apríl 2026.
Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar flokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS26020116
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Framsóknar um Kjalarnes, sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 3. september 2025. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu skipulags- og byggingarmála dags. 24. apríl 2026. USK25090040
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um bálstofu í Gufuneskirkjugarði, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 10. september 2025. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu skipulags- og byggingarmála dags. 24. apríl 2026. USK25090146
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Laugaveg 73, sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs, deild afnota og eftirlits dags. 4. september 2025. USK25040419
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar harmar að horft sé til því að eignir séu mannhæfar og því ekki kannað að stíga til neinna aðgerða. Er það von fulltrúans að leitast verði leiða við að setja skýrari stefnu um hvernig sviðið getur aðhafst í málum sem þessu þar sem ógn getur orðið fyrir borgarbúa, neikvæð ásýn veruleg eða ekki hægt að starfrækja rekstur án þess að gerðar verði breytingar. Engum er sómi af því að eignir fái að standa í svo langan tíma í reiðuleysi og borgin ætti að leita allra leiða til að fyrirbyggja þessa þróun. Að eign fái að standa í fjölda ára eftir að niðurrif hefur verið samþykkt vegna öryggissjónarmiða er ekki borginni, íbúum hennar né húseigendum til sóma.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Borgartún 34 ,sbr. 29. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs, deild afnota og eftirlits dags. 4. september 2025. USK25040418
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar harmar að horft sé til því að eignir séu mannhæfar og því ekki kannað að stíga til neinna aðgerða. Er það von fulltrúans að leitast verði leiða við að setja skýrari stefnu um hvernig sviðið getur aðhafst í málum sem þessu þar sem ógn getur orðið fyrir borgarbúa, neikvæð ásýn veruleg eða ekki hægt að starfrækja rekstur án þess að gerðar verði breytingar. Engum er sómi af því að eignir fái að standa í svo langan tíma í reiðuleysi og borgin ætti að leita allra leiða til að fyrirbyggja þessa þróun. Að eign fái að standa í fjölda ára eftir að niðurrif hefur verið samþykkt vegna öryggissjónarmiða er ekki borginni, íbúum hennar né húseigendum til sóma.
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Óðinsgötu 14 og 16, sbr. 30. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs, deild afnota og eftirlits dags. 4. september 2025. USK25040416
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar harmar að horft sé til því að eignir séu mannhæfar og því ekki kannað að stíga til neinna aðgerða. Er það von fulltrúans að leitast verði leiða við að setja skýrari stefnu um hvernig sviðið getur aðhafst í málum sem þessu þar sem ógn getur orðið fyrir borgarbúa, neikvæð ásýn veruleg eða ekki hægt að starfrækja rekstur án þess að gerðar verði breytingar. Engum er sómi af því að eignir fái að standa í svo langan tíma í reiðuleysi og borgin ætti að leita allra leiða til að fyrirbyggja þessa þróun.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Klapparstíg 19, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs, deild afnota og eftirlits dags. 4. september 2025. USK25040415
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar harmar að horft sé til því að eignir séu mannhæfar og því ekki kannað að stíga til neinna aðgerða. Er það von fulltrúans að leitast verði leiða við að setja skýrari stefnu um hvernig sviðið getur aðhafst í málum sem þessu þar sem ógn getur orðið fyrir borgarbúa, neikvæð ásýn veruleg eða ekki hægt að starfrækja rekstur án þess að gerðar verði breytingar. Engum er sómi af því að eignir fái að standa í svo langan tíma í reiðuleysi og borgin ætti að leita allra leiða til að fyrirbyggja þessa þróun.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stöðu húsnæðis við Þórsgötu 6,sbr. 32. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, 30. apríl 2025. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs, deild afnota og eftirlits dags. 4. september 2025. USK25040414
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar harmar að horft sé til því að eignir séu mannhæfar og því ekki kannað að stíga til neinna aðgerða. Er það von fulltrúans að leitast verði leiða við að setja skýrari stefnu um hvernig sviðið getur aðhafst í málum sem þessu þar sem ógn getur orðið fyrir borgarbúa, neikvæð ásýn veruleg eða ekki hægt að starfrækja rekstur án þess að gerðar verði breytingar. Engum er sómi af því að eignir fái að standa í svo langan tíma í reiðuleysi og borgin ætti að leita allra leiða til að fyrirbyggja þessa þróun.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um verkefni borgarinnar í umhverfismálum sl. 4 ár, sbr. 36. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 6. nóvember 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða dags. 24. apríl 2026. USK24110057
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Fulltrúi óháðra í umhverfis- og skipulagsráði og liðsmaður Miðflokksins leggur til að komið verði upp P- merktu sleppistæði við ráðhús Reykjavíkur við aðalinngang hússins, Vonarstrætismegin, til að auka og auðvelda aðgengi hreyfihamlaðra að húsinu. USK26050061
Frestað.
Fundi slitið kl. 12:08
Líf Magneudóttir Aðalsteinn Haukur Sverrisson
Andrea Helgadóttir Friðjón R. Friðjónsson
Hjálmar Sveinsson Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir
Magnús Davíð Norðdahl
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 6. maí 2026