Umboð og aðgangsstýring einstaklinga á mínum síðum

Umboð á mínar síður

Reykjavíkurborg notar Umboðskerfi Ísland.is og því þarf að skrá umboðið hjá þeim, meira um  umboð Ísland.is

Umboðið veitir aðgang að öllum gögnum hjá stofnunum sem nýta umboðskerfi  Ísland.is.

Þar má nefna stafrænt pósthólfi Ísland.is, Upplýsingum sem snúa að heilsu, eignum. fjármálum, fjölskyldutengslum hjá Þjóðskrá og fleira.
 

Umboðið felur jafnframt í sér heimild fyrir viðkomandi til að leggja fram umsóknir í mínu nafni hjá þeim stjórnvöldum sem nýta sér umboðskerfið fyrir t.d. akstursþjónustu panta mat og fleira.

Umboð á mínar síður fyrir einstakling sem er með rafræn skilríki

Einstaklingar geta gefið öðrum aðgang með umboði, í nokkrum einföldum skrefum á  Ísland.is:

  1. Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
  2. Velur Aðgangsstýring.
  3. Þar getur þú valið hverjum þú vilt veita aðgang, að hverju og í hversu langan tíma.

Einstaklingurinn sem fær umboðið getur í kjölfarið skráð sig inn fyrir hönd þess sem veitti umboðið.

Umboð á mínar síður fyrir einstakling sem er ekki með rafræn skilríki

Einstaklingar sem ekki eiga rafræn skilríki geta skráð umboðsmann til að sinna málum fyrir sína hönd. Sá sem fær umboðið getur í kjölfarið skráð sig inn sig á Mínar síður og skoðað gögn sem umboðið nær til. 

Athugið að umboð þetta veitir allsherjarumboð að stafrænum þjónustum í gegnum Umboðskerfi Ísland.is. Það veitir ekki umboð að öðrum þjónustum eða kerfum.

Aðeins einstaklingar geta veitt umboð til annara einstaklinga á pappír, umsókn þessi er ekki ætluð fyrirtækjum.

Eyðublað fyrir umboð á pappír

Þú sækir um í nokkrum einföldum skrefum:

1.    Prentar út eyðublað vegna umboðs einstaklinga
2.    Fyllir út alla reiti í eyðublaði, nöfn og kennitölur þurfa að vera í prentstöfum.
3.    Lætur tvo votta skrifa undir (ef vottar eru erlendir þarf að skila afriti af skilríkjum með eyðublaðinu).
4.    Skannar eyðublaðið eða tekur mynd af því.
5.    Sá sem verða á umboðsmaður sendir eyðublaðið til  http://Ísland.is í gegnum  umsóknarform