Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 30. apríl, var haldinn 5823. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir, Kjartan Magnússon, Líf Magneudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Einar Þorsteinsson tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Theódór Kjartansson, Heimir Snær Guðmundsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, þar sem lögð er fram til kynningar skýrsla Veðurstofu Íslands um Hraunavá á höfuðborgarsvæðinu - langtímahættumat, ásamt fylgiskjölum.
- Kl. 9:09 taka borgarstjóri og Ólöf Örvarsdóttir sæti á fundinum.
Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. Borgarfulltrúarnir Björn Gíslason og Sara Björg Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26040066
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Miðflokksins þakkar fyrir fróðlega kynningu á langtímaáhættumati á hraunvá á höfuðborgarsvæðinu. Tólf eldgos hafa orðið á Reykjanesskaga eftir að eldvirkni hófst þar á ný eftir tæplega átta alda hlé. Eldgosin hafa verið ólík og hefur hvert þeirrra komið á óvart með einhverjum hætti. Þótt sum gosin hafi ekki verið stór, hafa þau þó valdið verulegri loftmengun á Suðvesturlandi, bæði vegna gosmóðu og gosmengunar. Yfirstandandi gostímabil gæti staðið öldum saman og viðbúið er að hraun flæði yfir byggð í einhverjum tilvikum. Ekkert sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu er á svæðum, sem metin eru á efsta hættustigi, en mikilvægir innviðir eru á slíkum svæðum. Hvassahraun (Afstapahraun) er fráleitt flugvallarstæði. Þrátt fyrir hvert eldgosið á fætur öðru nálægt Hvassahrauni, vill Samfylkingin og aðrir vinstri flokkar í borgarstjórn ekki hverfa frá óraunhæfum hugmyndum sínum um uppbyggingu flugvallar þar. Svæðið, sem áformað hefur verið undir flugvöll í Hvassahrauni flokkast undir mesta áhættusvæði hraunflæðis á Reykjanesskaga. Jafnframt fellur það innan svæða með líkur á gosopnun. Tíð eldsumbrot á Reykjanesskaga hafa aukið mikilvægi Reykjavíkurflugvallar. Óhjákvæmilegt er að horfast í augu við þann möguleika að Keflavíkurflugvöllur lokist vegna eldgoss. Við slíkar aðstæður væri afar slæmt er Reykjavíkurflugvallar nyti ekki lengur við.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, þar sem lagt er fram til kynningar endurnýjað erindisbréf starfshóps um undirbúning samkeppnisviðræðna vegna þróunar og uppbyggingar nýs íbúðahverfis í Höllum, ásamt fylgiskjölum.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Ámundi Brynjólfsson, Oddrún Helga Oddsdóttir, Margrét Lára Baldursdóttir, Stefanía Scheving Thorarensen og Margrét Lilja Gunnarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Borgarfulltrúinn Sara Björg Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.- Kl. 10:30 víkur Einar Þorsteinsson af fundinum. MSS25100149
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um umfangsmikla uppbyggingu íbúahverfis í Höllum og nágrenni einkennast af ofurþéttingu og taka ekki mið af raunverulegum forsendum í Úlfarsárdal og Grafarholti. Samkvæmt fyrra skipulagi var gert ráð fyrir um 1.100 íbúðum á svæðinu. Nú er hafinn undirbúningur að uppbyggingu um 3.600 íbúða hverfis á umræddu svæði í samstarfi við innviðafélag. Til samanburðar eru um 4.500 íbúðir í Árbæjarhverfi og um 8.000 í Grafarvogshverfi. Núverandi innviðir í hverfinu bera ekki þá fjölgun íbúa sem fyrirhuguð samkvæmt yfirlýsingu borgarstjóra. Heildstæð framtíðarsýn hefur ekki verið kynnt hvernig staðið verður að samgöngum, skólahaldi, heilsugæslu og öðrum lífsgæðum í þessu stóra hverfi. Ljóst er að með slíkri ofurþéttingu verður umferðarskipulagi í Grafarholti og Úlfarsárdal stefnt í fullkomið uppnám. Þá er ljóst að miðað við almennar skipulagsforsendur vinstri meirihlutans í borgarstjórn, verður mikill skortur á bílastæðum hverfinu og líklegt að íbúar þeirra leiti í næstu hverfi í því skyni. Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja áherslu á að skipulag í Höllum verði unnið í víðtæku samráði við íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal. Miðað verði við hóflegt byggingarmagn og að innviðir verði byggðir upp samhliða íbúabyggð. Áhersla verði lögð á gott umferðarskipulag og næg bílastæði fyrir íbúa. Heildstætt mat verði gert á umferðaröryggi, hljóðvist og loftgæðum.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Með vinnu starfshóps um uppbyggingu í Höllum í Úlfarsárdal er brotið blað í skipulagningu hverfa í Reykjavík. Hér er verið að framlengja umboð hópsins svo unnt verði að ljúka nauðsynlegri kostnaðar-, forsendu- og áhættugreiningu og leggja fram fullbúin gögn til borgarráðs um næstu skref. Það er frábært að sjá aðferðafræði starfshópsins og spálíkön sem þau hafa verið að þróa til þess að sjá fyrir þróun skólahverfa og þörf fyrir pláss í grunn- og leikskólum yfir tíma, eftir því hvernig lýðfræði hverfa þróast. Þetta mun verða mjög gagnlegt verkfæri til þess að sjá fyrirfram hvar er þörf á frekari skólauppbyggingu eða hvar er tækifæri á frekari húsnæðisuppbyggingu til að nýta innviði. Með vinnunni er lagður traustur grunnur að hraðari og vandaðri uppbyggingu nýs hverfis. Hallarnir eru tímamótaverkefni hvað varðar hvernig við samþættum húsnæði, þjónustu og samgöngur um ókomna tíð.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15 apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóð nr. 28-30 við Ármúla, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120362
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki leigusamning við Selið Fasteignafélag ehf. um leigu á atvinnuhúsnæði í Ármúla 28-30, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt. USK26020100Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir hluta Bústaðavegar frá skipulagsmörkum Hverfisskipulags Hlíðarhverfis, Hlíðar 3.2, til vesturs að skipulagsmörkum Kringlubæjar II áfanga til norðurs og að afmörkun deiliskipulags Efstaleitis, RÚV reits, til austurs og til suðurs eru skipulagsmörk svæðisins afmörkuð sunnan við núverandi stígakerfi, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030076
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi II. áfanga Kringlubæjar, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040036
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Gufuness 1. áfanga vegna fjögurra lóða á reit A1, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24120211
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styður að tillagan verði auglýst til að kalla fram athugasemdir hagaðila og fá betri mynd af áhrifum hennar. Jafnframt er ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu bílastæðamála í hverfinu, sem þegar eru undir miklum þrýstingi. Forsendur um fækkun bílastæða í kjallara á grundvelli deilibíla eru óraunhæfar og geta leitt til aukins álags á nærliggjandi götur. Þá bendir fulltrúinn á að nauðsyn gæti verið að tryggja bílastæði ofanjarðar, sérstaklega fyrir hreyfihamlaða og gesti,. Þá er rétt að taka fram að fara verður í einu og öllu eftir gildandi reglugerðum um aðgengi fólks með skerta hreyfigetu.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á skilmálum deiliskipulags Hólmsheiðar, athafnasvæðis, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020368
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030120
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Reykjavegar, Hofteigs og Kirkjuteigs, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040131
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Gefið er að öryggi muni bætast til muna við lokun Hofteigs og breytingar á Reykjavegi, en rétt er að minna á að á Reykjavegi er nú mjög mikilvæg göngu- og hjólaþverun við Hofteig. Samkvæmt deiliskipulagsteikningum sem kynntar eru með málinu hliðrast sú þverun til norðurs, af beinni leið hjóla- og göngustígs um Laugardal yfir á gangstétt Hofteigs. Rétt er að ítreka að sú hliðrun verði ekki gerð nema með því að leiðrétta þá tengingu. Þessi leið er með fallegri hjólaleiðum Reykjavíkur, en er umfram allt öruggasta hjólaleiðin sem tengir Laugardal og Vogahverfi við fjölmenna íbúða- og atvinnubyggð í Túnum, um Hofteig og yfir brú á Kringlumýrarbraut. Börn beggja vegna Kringlumýrarbrautar og Laugardals sækja meðal annars tónlistarnám og íþróttir í hvora átt um þessa leið og fjöldi fullorðinna sömuleiðis fer hana til og frá vinnu. Sjálfsagt er að hafa hana í öndvegi.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillagan hefur það að markmiði að auka öryggi skólabarna á leið í skólaþorpið. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa áður lýst áhyggjum af öryggi barna á leið til skóla á svæðinu og styðja því að tillagan fari í auglýsingu.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sunda vegna lóðarinnar nr. 18 við Dyngjuveg, Leikskólinn Sunnuás, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040107
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins samþykkja að tillagan fari í auglýsingu enda mikilvægt að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila áður en endanleg ákvörðun er tekin. Fulltrúinn leggur áherslu á að vanda þurfi til verka við undirbúning framkvæmdarinnar, sérstaklega með tilliti til kostnaðar. Ljóst er að um verulega fjárfestingu er að ræða og mikilvægt að tryggja hagkvæma og raunhæfa niðurstöðu. Áhersla ætti að vera á að byggja hóflegt og vel útfært húsnæði sem þjónar þörfum leikskólans, fremur en að ráðast í kostnaðarsamar útfærslur eða hönnunarsamkeppnir sem geta aukið kostnað án þess að bæta rekstur eða þjónustu til lengri tíma.
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins ítrekar enn og aftur mikilvægi þess að staðið verði að uppbyggingu við Dyngjuveg 18 með þeim hætti að það valdi íbúum í nágrenninu sem minnstu ónæði. Brýnt er að ráðin verði bót á miklum bílastæðavanda á svæðinu og leitast við að bæta við fleiri bílastæðum í tengslum við framkvæmdirnar en nú er áformað. Nú þegar eru of fá bílastæði í götunni miðað við þá miklu starfsemi sem þar er og ríkir vandræðaástand af þeim sökum. Fyrirhugað er að fjölga bílastæðum þegar svokölluð ævintýraborg hverfur af svæðinu en það verður ekki fyrr en eftir 2-3 ár í fyrsta lagi. Ljóst er að úrbætur á svæðinu þola ekki svo langa bið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. apríl 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð vísi stefnu um gönguvæna Reykjavík 2036 til síðari umræðu í borgarstjórn, ásamt fylgiskjölum.
Vísað til borgarstjórnar.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS24110133
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrsta stefna Reykjavíkur um gönguvæna borg lítur hér fullbúin dagsins ljós eftir samráðsferli. Sérstök áhersla er á öryggi, aðgengi og vellíðan barna í hverfum borgarinnar. Lagt er upp með stórfellt átak í úrbótum á innviðum fyrir gangandi, bætta vetrarþjónustu fyrir gangandi með sérstökum snjósöfnunarsvæðum sem skerða ekki aðgengi gangandi, betri tengingar fyrir gangandi við almenningssamgöngur og að setja óskastíga inn í gangstéttarnetið, aðgerðir til að lækka raunhraða, bæta lýsingu og skapa ánægjulegt umhverfi sem hvetur til göngu. Stýrihópurinn var þess heiðurs aðnjótandi að fá aðstoð Walk21 og Jim Walker sem er helsti sérfræðingur í göngumálum í heiminum.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfi- og skipulagsráðs frá 15. apríl 2026, á tillögu götunafnanefndar að heiti á nýrri götu á athafnasvæði á Hólmsheiði, ásamt fylgiskjölum. Götunafnanefnd leggur til að heiti götunnar verði Draupnismörk.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 10:45 tekur Árelía Eydís Guðmundsdóttir sæti á fundinum. USK25120303
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. apríl 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna hönnunar á nýju íþróttahúsi við Langholtsskóla, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun heildar verkefnis er 1.350 m.kr.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25030102
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Hér er um að ræða afar brýna framkvæmd sem felur í sér byggingu nýs íþróttahúss Langholtsskóla sem getur líka nýst til að bæta úr brýnum aðstöðuvanda íþróttafélaganna í hverfinu: Ármanns og Þróttar. Íþróttahúsið verður tvöfalt stærra en núverandi íþróttahús skólans og mun mæta mun betur þörfum skólans og hverfisins. Mikilvægt er að setja framkvæmdina í fyrsta forgang í fjárfestingaáætlun næstu ára.
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 27. apríl 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki meðfylgjandi samninga um húsnæði að Austurstræti 8 fyrir Vesturmiðstöð, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040368
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Sæbrautarstokk, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsinsÓlöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Bjarni Rúnar Ingvarsson og Sólveig Sigurðardóttir taka jafnframt sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26010313
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Gleðiefni er að sjá framkvæmd Sæbrautarstokks nálgast. Með stokki munu lífsgæði íbúa í aðliggjandi hverfum batna mjög, með bættu öryggi, lækkun hávaða, minni mengun. Sömuleiðis bætist við líflegur garður sem tengir Voga og Vogabyggð, með hjóla og göngustígum og aðstöðu til þess að njóta útiveru. Íbúar í Vogabyggð hafa kallað eftir grænna umhverfi og betri aðstöðu innan hverfis til útiveru, ásamt auknu öryggi fyrir börn og óvarða vegfarendur. Eins mun opnast örugg og vistleg leið frá Vogum og Laugardal upp eftir Elliðaárdal og í Grafarvog. Gjarnan má minna á að höfnin er í mikilli nálægð við framkvæmdasvæðið og auðvelt að skoða fleiri möguleika hvað varðar brottflutning efnis til að minnka umhverfisáhrif af framkvæmdunum.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins taka undir mikilvægi Sæbrautarstokks sem lykilverkefnis í samgöngum Reykjavíkur. Framkvæmdin er forsenda fyrir bætt umferðarflæði, aukinni afkastagetu samgangna og tengingu við stærri innviði, þar á meðal fyrirhugaða Sundabraut eða Sundagöng. Mikilvægt er að undirbúningur og framkvæmd gangi hratt og vel fyrir sig. Tillögur að nýju deiliskipulagi fyrir Sæbrautarstokk og breytingum á deiliskipulagi Vogabyggðar 2 og Vogahverfis eru nauðsynleg aðlögun skipulags að framkvæmdinni. Á sama tíma er ljóst að um er að ræða fyrri áfanga þar sem heildarmynd uppbyggingar og endanleg útfærsla liggur ekki fyrir. Deiliskipulagið byggir að verulegu leyti á forhönnun og lykilforsendur, svo sem umferðargreiningar og áhrif á nærumhverfi, eru enn óljósar. Þá fela breytingarnar í sér heimildir til niðurrifs og tímabundið rask sem mikilvægt er að rökstyðja vel og meta í heildarsamhengi. Sérstaka áherslu þarf að leggja á að greiða fyrir umferð á framkvæmdatíma þannig að áhrif á íbúa, atvinnulíf og aðra vegfarendur verði sem minnst. Að þessu virtu samþykkja fulltrúarnir að tillögurnar verði auglýstar til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila.
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Miðflokksins telur mikilvægt að staðið verði þannig að undirbúningi Sæbrautarstokks, að mannvirkið beri hina miklu umferð, sem fyrirsjáanlegt er að fari um brautina til framtíðar. Við hönnun svo viðamikils mannvirkis er lágmarkskrafa að raunsæis verði gætt og það miðað við áætlaða umferð um Sæbraut til framtíðar. Þjóni göngin ekki sómasamlega því hlutverki sínu að greiða fyrir umferð, yrði miklum fjármunum kastað á glæ. Nú er áætlað að kostnaður við Sæbrautargöng muni nema um 27 milljörðum króna. Slíkt mat byggist augljóslega á bjartsýni. Rúmlega 29 þúsund bifreiðar fóru um Sæbraut á sólarhring árið 2019. Hönnun ganganna miðast við 41 þúsund bifreiðar en árið 2040 er þó áætlað að um 49 þúsund bílar fari um hana á sólarhring að því er fram kom á fundinum. Æskilegt er að hönnun ganganna taki mið af áætlaðri umferð til framtíðar en í ljósi áðurnefndra talna vakna spurningar um hvort það sé gert. Komið hefur fram að um 2/3 hlutar ganganna verði sex akreinar (3+3) að svokölluðum blöndunarreinum meðtöldum. Í ljósi vaxandi umferðar um Sæbraut til framtíðar er rétt að metið verði sérstaklega hvort ástæða sé til að öll göngin verði sex akreinar á breidd með 3+3 útfærslu.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis þannig að deiliskipulagsmörk verði samræmd við ný deiliskipulagsmörk fyrir Sæbrautarstokk, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Bjarni Rúnar Ingvarsson og Sólveig Sigurðardóttir taka jafnframt sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26030166
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Vísað er til bókunar undirritaðs undir 16. lið fundargerðarinnar.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. apríl 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar 2 vegna Sæbrautarstokks, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsinsÓlöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Bjarni Rúnar Ingvarsson og Sólveig Sigurðardóttir taka jafnframt sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26020129
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Vísað er til bókunar undirritaðs undir 16. lið fundargerðarinnar.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. apríl 2026, varðandi kynningu á drögum að hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar 2026-2030, ásamt fylgiskjölum.
Vísað til borgarstjórnar.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Bjarni Rúnar Ingvarsson og Kristinn Jón Eysteinsson taka jafnframt sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25050406
- Kl. 11:20 víkur Hildur Björnsdóttir af fundinum og Friðjón Friðjónsson tekur sæti.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Síðan 2010 hefur verið lögð mikil áhersla á uppbyggingu hjólainnviða í Reykjavík með gerð hjólreiðaáætlana. Árið 2010 voru hjólreiðar 2% af ferðum en eru í dag um 8% af ferðum, svo innviðauppbyggingin hefur skilað miklum árangri. Nú liggur fyrir ný hjólreiðaáætlun fyrir árin 2026-2030. Nýleg könnun sýnir að 14% fólks vill helst ferðast til vinnu á hjóli svo það eru mikil tækifæri falin í að efla hjólreiðar. Framtíðarsýn hjólreiðaáætlunar er hjólaborg á heimsmælikvarða, 15 mínútna borg og hjólreiðar allt árið og til að ná fram framtíðarsýn og meginmarkmiðum verður áfram fjárfest vasklega í hjólainnviðum um alla borg.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi samkomulag við fjármála- og efnahagsráðuneytið, f.h. Ríkissjóðs Íslands um fyrirhugaða uppbyggingu og þróun á lóðum við Laugaveg nr. 164 og Laugaveg nr. 166 í Reykjavík.
- Kl. 11.44 víkur Líf Magneudóttir af fundinum.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Oddrún Helga Oddsdóttir tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. USK26040098
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Samstarfsflokkarnir vilja ítreka að hér og í næstu dagskrárliðum er um að ræða afar þýðingarmikla samninga sem munu hafa veruleg jákvæð áhrif á húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík á komandi árum. Með þeim skapast forsendur fyrir fjölgun íbúða, auknu framboði og uppbyggingu hagkvæmra heimila fyrir fjölbreyttan hóp borgarbúa. Mikilvægt er að uppbygging sé í samræmi við borgarhönnunarstefnu og að uppbygging innviða svo sem skólaplássa haldi í við fjölgun íbúða á þessum svæðum. Samningarnir eru jafnframt skýrt dæmi um árangursríkt samstarf ríkis og borgar í þágu almannaheilla. Brýnt er að þessar áætlanir gangi fram án óþarfa tafa.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að ríkið leggi lóðir sínar undir húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík. Fulltrúarnir lýsa þó vonbrigðum með húsnæðispakkann sem boðar 1200-1400 íbúðir á ríkislóðum í borginni, en tekur ekki á boðuðum skattahækkunum, háum álögum eða þungum kvöðum á húsbyggjendur í borginni. Fulltrúarnir hafa jafnframt áhyggjur af fyrirhuguðum þéttleika á lóðunum sem standa í hverfum hvar innviðir eru þegar sprungnir. Fulltrúarnir lýsa andstöðu við áform um að 30% íbúða verði niðurgreiddar. Slík nálgun er umfangsmikil og vekur spurningar um áhrif á húsnæðismarkaðinn og hvata til almennrar uppbyggingar. Þá liggur fyrir að mikilvæga umsögn borgarlögmanns vantar í málið. Án hennar er ekki unnt að fullyrða að ákvörðun um samkomulagið sé tekin á fullnægjandi og upplýstum grundvelli. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á heilbrigðan húsnæðismarkað þar sem aukið framboð, einfaldara regluverk, lægri gjöld og minni kvaðir skapa skilyrði fyrir hraðari og hagkvæmari uppbyggingu. Með hliðsjón af framangreindu sitja borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hjá í málinu, en leggja jafnframt áherslu á að áfram verði unnið að því að auka húsnæðisuppbyggingu í borginni eftir áratuga vanrækslu vinstri meirihluta.
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Miðflokksins gerir alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð vegna samþykktar á samkomulagi vegna þróunar og uppbyggingar á lóðum við Laugaveg 164 og 166. Í 15. grein sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að sveitarstjórnarmenn skuli fá afhent þau málsgögn, sem nauðsynleg eru, til að þeir geti tekið upplýsta afstöðu til mála.Eðlilegt væri að bíða með afgreiðslu þar til fulltrúum í borgarráði hefði verið gefinn kostur á að kynna sér þýðingarmikil gögn málsins. Er þar einkum átt við ,,Umsögn borgarlögmanns um uppbyggingarsamkomulög lóðanna Laugavegar 164 -166, Borgartúns 5-7 / Guðrúnartúns 6, Grensásvegar 9, Seljavegar 32 og Laugarnesvegar 91.“ Rétt hefði verið að afhenda fulltrúum í borgarráði áðurnefnda umsögn áður en þeir tóku ákvörðun í málinu. Í umræddri umsögn gætu verið efnisatriði, sem hafa verulega þýðingu í málinu og áhrif á afstöðu einstakra borgarráðsfulltrúa til þess.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi uppbyggingarsamkomulag við Ríkissjóð Íslands, kt. 540269-6459, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar og breyttrar nýtingar á lóðunum Borgartún 5/Guðrúnartún 6, landeignarnr. L102758, og Borgartún 7, landeignarnr. L102761.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Oddrún Helga Oddsdóttir tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. USK26030131
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að ríkið leggi lóðir sínar undir húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík. Fulltrúarnir lýsa þó vonbrigðum með húsnæðispakkann sem boðar 1200-1400 íbúðir á ríkislóðum í borginni, en tekur ekki á boðuðum skattahækkunum, háum álögum eða þungum kvöðum á húsbyggjendur í borginni. Fulltrúarnir hafa jafnframt áhyggjur af fyrirhuguðum þéttleika á lóðunum sem standa í hverfum hvar innviðir eru þegar sprungnir. Fulltrúarnir lýsa andstöðu við áform um að 30% íbúða verði niðurgreiddar. Slík nálgun er umfangsmikil og vekur spurningar um áhrif á húsnæðismarkaðinn og hvata til almennrar uppbyggingar.Þá liggur fyrir að mikilvæg umsögn borgarlögmanns vantar í málið. Án hennar er ekki unnt að fullyrða að ákvörðun um samkomulagið sé tekin á fullnægjandi og upplýstum grundvelli.Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á heilbrigðan húsnæðismarkað þar sem aukið framboð, einfaldara regluverk, lægri gjöld og minni kvaðir skapa skilyrði fyrir hraðari og hagkvæmari uppbyggingu. Með hliðsjón af framangreindu sitja borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hjá í málinu, en leggja jafnframt áherslu á að áfram verði unnið að því að auka húsnæðisuppbyggingu í borginni eftir áratuga vanrækslu vinstri meirihluta.
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Miðflokksins gerir alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð vegna samþykktar á samkomulagi vegna þróunar og uppbyggingar á lóðum við Borgartún 5-7 / Guðrúnartún 6. Í 15. grein sveitarstjórnarlaga er kveðið á um sveitarstjórnarmenn skuli fá afhent þau málsgögn, sem nauðsynleg eru, til að þeir geti tekið upplýsta afstöðu til mála.Eðlilegt væri að bíða með afgreiðslu þar til fulltrúum í borgarráði hefði verið gefinn kostur á að kynna sér þýðingarmikil gögn málsins. Er þar einkum átt við ,,Umsögn borgarlögmanns um uppbyggingarsamkomulög lóðanna Laugavegar 164 -166, Borgartúns 5-7 / Guðrúnartúns 6, Grensásvegar 9, Seljavegar 32 og Laugarnesvegar 91.“ Rétt hefði verið að afhenda fulltrúum í borgarráði áðurnefnda umsögn áður en þeir tóku ákvörðun í málinu. Í umræddri umsögn gætu verið efnisatriði, sem hafa verulega þýðingu í málinu og áhrif á afstöðu einstakra borgarráðsfulltrúa til þess.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi samkomulag við fjármála- og efnahagsráðuneytið, f.h. Ríkissjóðs Íslands, kt. 540269-6459, um uppbyggingu á Grensásvegi 9.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Oddrún Helga Oddsdóttir tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. USK26040126
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að ríkið leggi lóðir sínar undir húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík. Fulltrúarnir lýsa þó vonbrigðum með húsnæðispakkann sem boðar 1200-1400 íbúðir á ríkislóðum í borginni, en tekur ekki á boðuðum skattahækkunum, háum álögum eða þungum kvöðum á húsbyggjendur í borginni. Fulltrúarnir hafa jafnframt áhyggjur af fyrirhuguðum þéttleika á lóðunum sem standa í hverfum hvar innviðir eru þegar sprungnir. Fulltrúarnir lýsa andstöðu við áform um að 30% íbúða verði niðurgreiddar. Slík nálgun er umfangsmikil og vekur spurningar um áhrif á húsnæðismarkaðinn og hvata til almennrar uppbyggingar.Þá liggur fyrir að mikilvæg umsögn borgarlögmanns vantar í málið. Án hennar er ekki unnt að fullyrða að ákvörðun um samkomulagið sé tekin á fullnægjandi og upplýstum grundvelli.Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á heilbrigðan húsnæðismarkað þar sem aukið framboð, einfaldara regluverk, lægri gjöld og minni kvaðir skapa skilyrði fyrir hraðari og hagkvæmari uppbyggingu. Með hliðsjón af framangreindu sitja borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hjá í málinu, en leggja jafnframt áherslu á að áfram verði unnið að því að auka húsnæðisuppbyggingu í borginni eftir áratuga vanrækslu vinstri meirihluta.
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Miðflokksins gerir alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð vegna samþykktar á samkomulagi vegna þróunar og uppbyggingar á lóðum við Grensásveg 9. Í 15. grein sveitarstjórnarlaga er kveðið á um sveitarstjórnarmenn skuli fá afhent þau málsgögn, sem nauðsynleg eru, til að þeir geti tekið upplýsta afstöðu til mála.Eðlilegt væri að bíða með afgreiðslu þar til fulltrúum í borgarráði hefði verið gefinn kostur á að kynna sér þýðingarmikil gögn málsins. Er þar einkum átt við ,,Umsögn borgarlögmanns um uppbyggingarsamkomulög lóðanna Laugavegar 164 -166, Borgartúns 5-7 / Guðrúnartúns 6, Grensásvegar 9, Seljavegar 32 og Laugarnesvegar 91.“ Rétt hefði verið að afhenda fulltrúum í borgarráði áðurnefnda umsögn áður en þeir tóku ákvörðun í málinu. Í umræddri umsögn gætu verið efnisatriði, sem hafa verulega þýðingu í málinu og áhrif á afstöðu einstakra borgarráðsfulltrúa til þess.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi samkomulag við Storð ehf., kt. 6606231830, um uppbyggingu á Seljavegi 32 og Mýrargötu Ánanaust.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Oddrún Helga Oddsdóttir tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. USK26040129
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að ríkið leggi lóðir sínar undir húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík. Fulltrúarnir lýsa þó vonbrigðum með húsnæðispakkann sem boðar 1200-1400 íbúðir á ríkislóðum í borginni, en tekur ekki á boðuðum skattahækkunum, háum álögum eða þungum kvöðum á húsbyggjendur í borginni. Fulltrúarnir hafa jafnframt áhyggjur af fyrirhuguðum þéttleika á lóðunum sem standa í hverfum hvar innviðir eru þegar sprungnir. Fulltrúarnir lýsa andstöðu við áform um að 30% íbúða verði niðurgreiddar. Slík nálgun er umfangsmikil og vekur spurningar um áhrif á húsnæðismarkaðinn og hvata til almennrar uppbyggingar.Þá liggur fyrir að mikilvæg umsögn borgarlögmanns vantar í málið. Án hennar er ekki unnt að fullyrða að ákvörðun um samkomulagið sé tekin á fullnægjandi og upplýstum grundvelli.Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á heilbrigðan húsnæðismarkað þar sem aukið framboð, einfaldara regluverk, lægri gjöld og minni kvaðir skapa skilyrði fyrir hraðari og hagkvæmari uppbyggingu. Með hliðsjón af framangreindu sitja borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hjá í málinu, en leggja jafnframt áherslu á að áfram verði unnið að því að auka húsnæðisuppbyggingu í borginni eftir áratuga vanrækslu vinstri meirihluta.
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Miðflokksins gerir alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð vegna samþykktar á samkomulagi vegna þróunar og uppbyggingar á lóðum við Seljaveg 32.Í 15. grein sveitarstjórnarlaga er kveðið á um sveitarstjórnarmenn skuli fá afhent þau málsgögn, sem nauðsynleg eru, til að þeir geti tekið upplýsta afstöðu til mála.Eðlilegt væri að bíða með afgreiðslu þar til fulltrúum í borgarráði hefði verið gefinn kostur á að kynna sér þýðingarmikil gögn málsins. Er þar einkum átt við ,,Umsögn borgarlögmanns um uppbyggingarsamkomulög lóðanna Laugavegar 164 -166, Borgartúns 5-7 / Guðrúnartúns 6, Grensásvegar 9, Seljavegar 32 og Laugarnesvegar 91.“ Rétt hefði verið að afhenda fulltrúum í borgarráði áðurnefnda umsögn áður en þeir tóku ákvörðun í málinu. Í umræddri umsögn gætu verið efnisatriði, sem hafa verulega þýðingu í málinu og áhrif á afstöðu einstakra borgarráðsfulltrúa til þess.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi uppbyggingarsamkomulag við Ríkissjóð Íslands, kt. 540269-6459, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar, stækkunar á lóð og breyttrar nýtingar á lóðinni við Laugarnesveg 91, landeignarnr. L103934.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Frestað.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Oddrún Helga Oddsdóttir tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. USK26030391
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi samkomulag við fjármála- og efnahagsráðuneytið, f.h. Ríkissjóðs Íslands um makaskipti á lóðum og lóðarhlutum í Reykjavík.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Oddrún Helga Oddsdóttir tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. USK26040125
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða viljayfirlýsingu um samstarf vegna framtíðarþróunar og skipulags á landi austan Korpúlfsstaða og árinnar Korpu, að mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Oddrún Helga Oddsdóttir tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. MSS26040031
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu matsnefndar um stofnframlag frá Reykjavíkurborg til Reir ehf. fyrir hönd óstofnaðrar húsnæðissjálfseignarstofnunar (hses.) vegna: Byggingar 120 íbúða á lóðum M og N á Stórhöfða. Stofnvirði verkefnisins er 8.200.000.000 kr. og 12% stofnframlag Reykjavíkurborgar er 984.000.000 kr. Ofangreind tillaga var samþykkt af matsnefnd vegna veitingu stofnframlaga 27. apríl 2026.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26030018
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu matsnefndar um stofnframlag frá Reykjavíkurborg til Floru ehf. fyrir hönd óstofnaðrar húsnæðissjálfseignarstofnunar (hses.) vegna: Verkefnisins Nýtt Batahús – Laugarásvegur 39. Stofnvirði verkefnisins er 275.500.000 kr. og 12% stofnframlag Reykjavíkurborgar er 33.060.000 kr. Ofangreind tillaga var samþykkt af matsnefnd vegna veitingu stofnframlaga 27. apríl 2026.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Halldóra Káradóttir og Karl Einarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26030018
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum.
Lagt er til að samþykkt verði tillaga að frá og með hausti 2026 verði opnuð ný starfseining Klettaskóla í fyrrum Korpuskóla fyrir fatlaða nemendur. Ákvörðun verði til 5 ára og endurskoðuð að þeim tíma liðnum með hliðsjón af komandi samningagerð við ríkið og nágrannasveitarfélögin vegna stofn- og rekstarkostnaðar. Áætlað er að viðbótar rekstrarkostnaður sérskóla hækki um 139 m.kr. á ársgrundvelli við opnun nýs úrræðis í fyrrum Korpuskóla og það falli til allt að 70 m.kr. á árinu 2026. Gert er ráð fyrir að um 60% kostnaðar heyri til reykvískra barna en 40% vegna barna frá öðrum sveitarfélögum. Þannig má gera ráð fyrir viðbótarfjárþörf skóla- og frístundsviðs verði 42 m.kr. á árinu 2026. Viðbótarfjárþörf verði fjármögnuð af liðnum ófyrirséð 09205, með þeim fyrirvara að unnt verði að rúma viðbótarútgjöld í gegnum nýtt fjármögnunar- og rekstrarlíkan sem er í smíðum fyrir sérskóla.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Frans Páll Sigurðsson og Steinn Jóhannsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26020032
Fulltrúar Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar samstarfsflokkanna fagna þessari mikilvægu breytingu sem munu leysa úr brýnni húsnæðisþörf Klettaskóla. Með því að eldri nemendur skólans frá 7.-10. bekk flytjist í hið vandaða húsnæði Korpuskóla verður mun rýmra um alla nemendur skólans og verður hægt að fjölga nemendum um 12 á næsta skólaári sem bætir verulega stöðu viðkomandi nemenda og aðstandenda þeirra. Einhugur var um málið í skóla- og frístundaráði og er skólaráði Klettaskóla þakkað sérstaklega fyrir einhuga stuðning við áformin. Með þessum breytingum er verið að draga úr óvissu og framtíðin verður bjartari fyrir þennan viðkvæma hóp barna.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 22. apríl 2026 á heimild til að hefja verkefnið „Nýtt fjárhagskerfi. Útboð og innleiðing,“ ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON25080011
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 22. apríl 2026 á heimild til að hefja þriðja fasa verkefnisins “Stafræn sorphirða” ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON25070230
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 22. apríl 2026 á heimildarbeiðni um að hefja vinnu við framþróun SkólaBúa 2026, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON25040036
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 22. apríl 2026 á heimildarbeiðni um að setja upp miðlægt mælaborð fyrir þjónustuver Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON26040037
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 22. apríl 2026 á heimildarbeiðni um að hefja vinnu við uppbyggingu gagnalandslags ÞON, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON26040084
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 22. apríl 2026 á heimild til að hefja vinnu á útboði og innleiðingu á nýrri DAM lausn Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON25100026
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. apríl 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð taki til afgreiðslu styrkumsóknir úr Hverfissjóði í samræmi við 8. gr. úthlutunarreglna Hverfissjóðs, ásamt fylgiskjölum.
Vísað til meðferðar styrkjahóps borgarráðs. ÞON26030012 -
Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 15. apríl 2026 á tillögu um stefnu í í málaflokki fatlaðs fólks og tillögu um aðgerðarskjal með stefnu í málaflokki fatlaðs fólks, ásamt fylgiskjölum.
Vísað til borgarstjórnar.Rannveig Einarsdóttir, Berglind Magnúsdóttir og Katrín Harpa Ásgeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL25090041
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 15. apríl 2026 á tillögu um tímabundna fjölgun rýma á Droplaugarstöðum, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Rannveig Einarsdóttir, Berglind Magnúsdóttir og Katrín Harpa Ásgeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL26040034
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Stýrihópur um málefni NEET hópsins var skipaður þann 5. mars 2026 og hefur nú lokið störfum. Markmiðið með vinnu hópsins var að leggja fram stefnumótandi tillögur sem sameina forvarnir, snemmtækan stuðning og virkniúrræði fyrir ungmenni í borginni. Áfangaskýrslan er fyrsta skil verkefnisins ásamt tillögum um áframhaldandi vinnu næstkomandi haust. Lagt er til að borgarráð samþykki neðangreindar tillögur: Skipaður verði verkefnahópur fagaðila og kjörinna fulltrúa til að halda áfram að gerð heildstæðrar stefnu og áætlun Reykjavíkurborgar um stuðning við ungt fólk sem ekki er í vinnu, skóla né þjálfun/virkniúrræðum. Stofnaður verði samstarfshópur fagaðila þvert á starfsstaði borgarinnar, ríkisstofnanir og félagasamtök, með virkri þátttöku ungmenna. Hlutverk hópsins verði að samræma vinnubrögð og verkferla og bæta samvinnu og flæði milli aðila sem koma að þjónustu við ungt fólk í NEET-hópi. Jafnframt leggur hópurinn til að núverandi vinna haldi áfram næstkomandi haust.
Greinargerð fylgir tillögunni,
Frestað. MSS26020091 -
Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 28. apríl 2026, varðandi tillögur stýrihóps um hlutverk Reykjavíkurborgar vegna þess að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt. MSS25100158Fylgigögn
-
Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030116
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðan samstarfssamning ReykjavíkurAkademíuna, hér eftir RAses. Samningurinn gildir fyrir árin 2026 og 2027. Reykjavíkurborg greiðir RAses framlag með eftirfarandi hætti: Ein milljón króna fyrir árið 2026 og ein milljón króna fyrir árið 2027, samtals 2 milljónir króna á samningstímanum. Greiðslur fara fram 15. maí 2026 kr. 1.000.000 og 15. maí 2027 kr. 1.000.000 gegn framvísun reikninga. Kostnaður færist á kostnaðarstað 09510 - ýmsar samningsbundnar greiðslur. Í tengslum við framlagið skal Reykjavíkurborg eiga rétt á 40% afslætti af almennu leiguverði á fundar- og fyrirlestraaðstöðu í húsnæði RAses í Hafnarstræti 5 auk tveggja áskrifta að óbundinni skrifborðsnotkun (hot-desking) í húsnæði RAses.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt. MSS26040056Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki: 1. Að boðið verði upp á tímabilskort í Klapp-appi Strætó í maí og júní 2026 fyrir reykvísk börn á grunnskólaaldri (1.–10. bekk) sem brúarlausn á meðan varanleg útfærsla er unnin. Foreldrar sæki sérstaklega um kortið og skólarnir sjái um umsýslu með kaupum. 2. Að börnum sem ganga í skóla á Kjalarnesi verði tryggt sambærilegt aðgengi að lausninni í gegnum niðurgreiðslu á ferðakostnaði þá mánuði sem brúarlausnin nær yfir. 3. Að starfshópurinn hefji viðræður við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf., sem tekur við rekstri af Strætó bs. 1. júlí 2026, um varanlega útfærslu á fríum strætóferðum fyrir reykvísk börn á grunnskólaaldri frá 1. júlí 2026. 4. Að sett verði af stað umfangsmat á NFC-uppfærslu Klapp-appsins sem starfshópur um málið leggur til að verði varanlega lausnin. Niðurstaða umfangsmats liggi fyrir sem allra fyrst svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir fyrir 1. júlí 2026. Heildarkostnaður við tillögurnar eru 47 m.kr fyrir tímabilið maí og júní og verði fjármagnaður með viðauka.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt. MSS26020006Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 27. apríl 2026, varðandi fyrirhugaða ferð borgarstjóra til vinaborgar Reykjavíkurborgar, Lviv í Úkraínu, dagana 6. til 10. maí nk. vegna málþingsins „Dignified Longevity: Creating Space for Care“. MSS26040036
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjórnar, dags. 27. apríl 2026, varðandi tilkynningu sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við sveitastjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí nk. MSS25050113
Borgarráð ásamt áheyrnarfulltrúum leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarráð gerir alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að bjóða einungis upp á einn stað fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Með því að staðsetja atkvæðagreiðsluna einungis á skrifstofu sýslumanns í Kópavogi er aðgengi kjósenda í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum að atkvæðagreiðslunni skert verulega. Bætt aðgengi kjósenda hvetur til aukinnar kosningaþátttöku en minnt er á að kjörsókn í sveitarstjórnarkosningum hefur dregist saman síðustu ár. Borgarráð hvetur sýslumann til að endurskoða þessa ákvörðun með hagsmuni kjósenda að leiðarljósi og tryggja fleiri kjörstaði í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu nú á lokasprettinum fyrir kjördag.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um þróun P-merktra stæða á fjölförnum stöðum miðsvæðis og í miðborginni, sbr. 23. liður fundargerðar borgarráðs frá 5. febrúar 2026. Jafnframt lagt fram svar samgöngustjóra, dags. 25. mars 2026. MSS26020028
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um stuðning borgarinnar til tónlistarþróunar ungs fólks, sbr. 28. liður fundargerðar borgarráðs frá 11. desember 2026. Einnig lagt fram svar menningar- og íþróttasviðs, dags. 14. apríl 2026. MSS25120053
Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Viðreisnar þakkar fyrir framlagt svar. Ljóst er að borgin sinnir mikilvægu hlutverki í að styðja við menningarlíf og skapa aðstöðu fyrir tónlistarfólk, ekki síst ungt og upprennandi listafólk. Jafnframt vekur svarið upp mikilvægar spurningar um skipulag og stefnu í þessum málaflokki. Stuðningur borgarinnar birtist í fjölbreyttum verkefnum og samningum við ólíka aðila, með mismunandi umfangi og fyrirkomulagi. Sú mynd sem dregst upp bendir til þess að stuðningurinn hafi þróast í áföngum fremur en á grundvelli skýrrar heildarstefnu og forgangsröðunar. Þá er fullyrt að jafnræðis sé gætt, en ekki liggur fyrir með skýrum hætti hvernig það er tryggt í framkvæmd, sérstaklega þegar horft er til þess að samningar og úrræði taka til afmarkaðra aðila. Mikilvægt er að borgin geti sýnt fram á gagnsæ og málefnaleg viðmið við úthlutun stuðnings. Að sama skapi er brýnt að halda skýrum mörkum gagnvart samkeppnismarkaði. Þótt stuðningur sé veittur í almannaþágu er ljóst að hann hefur áhrif á umgjörð og starfsskilyrði á markaði. Því er mikilvægt að borgin móti skýrari, heildstæða stefnu um stuðning við tónlistarsköpun ungs fólks.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar, dags. 28. apríl 2026:
Lagt er til að teknar verði upp viðræður við ríkisvaldið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar. Þess í stað fari það fé, sem ætlað hefur verið í brúarsmíðina, í aðrar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu. Þá verði strætisvagnatengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs bættar með því að vestari hluti Vesturhlíða verði lagfærður og gerður að svokallaðri strætógötu, þar sem einungis yrði heimilaður akstur strætisvagna og neyðarbifreiða.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Tillögunni er vísað frá. MSS26040074Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Fyrirliggjandi tillaga um að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar, er sennilega mesta sparnaðartillaga, sem flutt hefur verið á vettvangi borgarstjórnar. Leitt er að slíkri tillögu sé hafnað, án skoðunar, af stuðningsflokkum borgalínuverkefnisins, þ.e. fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og vinstri flokkanna, enda hefur aldrei verið meiri þörf á aðhaldi í opinberum fjármálum en nú. Fossvogsbrú yrði 270 metra löng stálbrú, sem tengja á saman tvö jaðarsvæði, Kársnes og Nauthólsvík. Brúin mun hafa mjög takmarkaðan almennan tilgang og flest bendir til þess að hún verði óarðbær og hafi neikvætt núvirði eins og borgarlínuverkefnið í heild sinni. Margar aðrar samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu eru arðbærar og miklu þarfari. Ljóst er að kostnaður við brúarsmíðina verður ekki undir ellefu milljörðum króna. Vegna gífurlegs kostnaðar ætti að hætta við Fossvogsbrú og verja fénu til þarfari framkvæmda. Ljóst er að hægt væri að stórbæta strætisvagnatengingar milli Nauthólsvíkur (Háskólans í Reykjavík) og Kópavogs með aðgerðum, sem kosta myndu um 1% af áætluðum kostnaði við Fossvogsbrú.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúaum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Borgarlínuverkefnið er mjög arðbær framkvæmd fyrir samfélagið svo hleypur á tugum milljarða hið minnsta enda ein mikilvægasta lausnin á samgönguvanda höfuðborgarsvæðisins.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Sem fyrr gerir borgarfulltrúinn Kjartan Magnússon fulltrúum Sjálfstæðisflokksins upp skoðanir með ódýrum hætti í pólitískum tilgangi. Afstaða Sjálfstæðisflokksins til Borgarlínu er skýr; flokkurinn kallar eftir gagngerri endurskoðun verkefnisins með áherslu á hagkvæmni, forgangsröðun og raunhæfa framkvæmd. Framkvæmdir við Fossvogsbrú eru þegar hafnar og því liggur fyrir að tillaga sú sem vísað er til er ekki tæk til afgreiðslu. Jafnframt er ljóst að undirbúningur næsta áfanga er langt kominn og útboð þegar farið fram. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa áður lýst verulegum áhyggjum af kostnaði við framkvæmdina og ítreka mikilvægi þess að tryggð verði fullnægjandi aðstaða fyrir siglingar á nýjum stað.
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi gagnbókun:
Margoft hefur komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn styður því miður borgarlínuverkefnið, sbr. atkvæðagreiðslur á Alþingi þar sem afstaða þingmanna flokksins til þess hefur komið fram. Þá er borgarlína sérstakt áherslumál núverandi oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn eins og margoft hefur komið fram í ræðu og riti. Það er mjög sérstakt að frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins reyni nú á lokaspretti kosningabaráttunnar að senda óljós skilaboð um að þeir styðji ekki lengur borgarlínu. Þeir segja þó aldrei berum orðum að þeir séu á móti þessu risavaxna opinbera verkefni heldur tala einungis óskýrt um að þeir vilji laga það. Þeir útskýra þó ekki nákvæmlega hvað felst í slíkri lagfæringu eða hvað hún myndi kosta. Miðflokkurinn er hins vegar eini flokkurinn í borgarstjórn, sem hefur afdráttarlaust þá skoðun að hætta beri við borgarlínuverkefnið en þess í stað skuli núverandi almenningssamgöngukerfi stórbætt með ýmsum hætti.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Gagnbókun fulltrúans dæmir sig sjálf og fulltrúarnir senda honum risa ljós.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð endurskoðunarnefndar frá 17. apríl 2026. MSS26010004
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 16. apríl 2026. MSS26010007
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 22. apríl 2026. MSS26010012
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðsfrá 22. apríl og 29. apríl 2026..
15. liður fundargerðarinnar frá 22. apríl er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 13 mál. (MSS26010013, MSS2601011, MSS26010006, MSS26040055, MSS26040035, ÞON24090056, MSS24040172, MSS26040042, MSS26040040, MSS26040048, MSS26040018, USK26040189) MSS26040001
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26040026
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir sem borist hafa borgarráði utan umsóknartíma.
Frestað. MSS25020031 -
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir upplýsingum um alla liði ársreiknings Reykjavíkurborgar 2025, þar sem gerð verði grein fyrir tölum úr upphaflegri (samþykktri) fjárhagsáætlun ásamt niðurstöðutölum (raunverulegri útkomu). Framsetning verði þannig að auðvelt verði að bera saman viðkomandi tölur. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um helstu liði og kennitölur ársreikninga Reykjavíkurborgar aftur til ársins 1993 eða a.m.k. eins langt aftur og tiltæk gögn ná. Hér er átt við rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymisyfirlit, sem eru á bls. 22 – 25 í ársreikningi 2025. Gott væri ef hægt væri að fá slíkar upplýsinar í Excel-skjali eða öðru aðgengilegu formi. Óskað er eftir því að ofangreindar upplýsingar berist sem fyrst og í síðasta lagi sólarhring áður en síðari umræða um ársreikning 2025 hefst í borgarstjórn.
Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. MSS26040086
- Kl. 13:30 víkur Árelía Eydís Guðmundsdóttir af fundinum.
- Kl. 13:40 víkur Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir af fundinum.
Fundi slitið kl. 13:52
Alexandra Briem Andrea Helgadóttir
Dóra Björt Guðjónsdóttir Friðjón R. Friðjónsson
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 30. apríl 2026 - Prentvæn útgáfa